Vísir - 17.09.1975, Qupperneq 7
Vlsir. Miðvikudagur 17. september 1975.
7
. M) WMl
drungalega hugsunarhátt ný-
lendutímans. Þar til viðbótar
koma Brasilla og Indland, bæði
stór og búa yfir miklum mögu-
leikum.
öllum þessum rikjum er það
sameiginlegt aö lýðræði I vest-
rænum skilningi fyrirfinnst ekki
og mannréttindi eru af skornum
skammti. Þótt Indland gumaði
löngum af lýöræöi og þingræöi
er nú allt slikt úr sögunni þar
a.m.k. I bili og I reynd hefur alla
tið rlkt þar eins flokksstjórn. 1
Austurlöndum er nú opinskátt
rættum það að vestrænt lýðræöi
henti þar ekki meira aö segja
dregið I efa að það eigi langa
framtið fyrir sér I Evrópu.
Valdajöfrar bírœfnir
Mörg þessi rlki guma af
sóslalisma og margir eða flestir
flokkar kenna sig meö
einhverjum hætti við hann, en
óvlða er nokkurn snefil af
honum aö finna. Auðurinn er á
fárra manna höndum, stór-
gróðamenn og valdajöfrar eru
svo blræfnir að telja sig
sóslalista, þótt þeir breyti I
flestu gegn sóslalistiskum
viðhorfum, og almenningur er
menntunarsnauöur og reynslu-
lltill I pólitík og veit naumast
hvað gera skal, heldur jafnvel
að allt sé i himnalagi.
Af hinum nýju valdaríkjum
fer mest fyrir Iran, og mikið er
gert úr transkeisara sjálfum
sem persónu og stjórnara. Um
enga ríkisráðendur finnst mér
fjallaðá Vesturlöndum af meira,
dómgreindarleysi en hann og
þá sem ráða og ráöið hafa i
Saudi Arabiu.
transkeisari viröist njóta
mikils trausts á Vesturlöndum,
kaupir hluti I stórfyrirtækjum
með sllkri áfergju aö helst
svipar til þess sem sagt er i
skrýtlum um bændur úr villta
vestrinu sem jafnvel keyptu sér
heil feröamannahótel til að
gista I eina nótt. Sjálfur dregur
hann enga dul á að hann hyggst
gera riki sitt að stórveldi, og
kveður sig þiggja innspírasjónir
frá sjálfum Allha um hversu
stjórna skuli landinu.
En I rlki hans er þó ekki
fagurt um að litast. Almenn-
ingur er fátækur og litið hirt um
kjör hans af hálfu stjórnar-
valda, menntun enn sem
kannski er eðlilegt næsta lítil og
mannréttindi aðallega I
stjórnarskránni.
Þá hefur keisarinn komið sér
upp einhverri voðalegustu
öryggislögreglu sem til er I
heiminum. Staöhæft er I Austur-
löndum aö engin lögregla standi
henni jafnfætis um miskunnar-
lausar yfirheyrslur nema ef
vera skyldi Gestapo Hitlers, og
er það þó dregið i efa.
Þessi þokkalega stofnun
hjálpar keisaranum að halda
um stjórnartaumana. Hann
hefur nýverið farið heldur háöu-
legum orðum um Evrópulönd,
kveður þau á niðurleiö — þaö er
mjög almenn skoðun I
Austurlöndum — ekki vegna
þess, segir keisarinn, aö fólkið i
þeim sé lélegt, heldur sé þeim
illa stjórnað og stjórnarformið
úrelt. En ef hans fyrirkomulag
er það sem koma skal vitum viö
hvað i vændum er, þvi mörg
Evrópulönd kynntust þvi undir
Hitler á striðsárunum.
Kvennabúr og
þrœlasala
Saudi-Arabía er meðal hinna
oliuauðugustu landa, en þjóðin
fámenn, enda mikill hluti
landsins eyöimörk, gulgrá eöa
jafnvel sumstaðar allt að þvi
brún, og vinjarnar svo dökk-
grænar að til aö sjá virðast þær
nærri svartar.
Saudi-Arabía er á þvl stigi aö
þar eru kvennabúr, og þræla-
hald ekki úr sögunni. Til
skamms tima stóð þrælasala
með miklum blóma yfir Rauða-
haf frá Eritreu, og má vera aö
hún haldi áfram enn. Þá munu
hegningarlög I Saudi-Arabiu
vera þannig enn aö sá sem
stelur einhvurjum smámunum
skal handhöggvast, og aftökur
eru þar einsog vlöa annar-
staðar látnarfara fram viö há-
tíðlega athöfn að fornum sið.
Mannsllfið er metiö á all ann-
an hátt I flestum þessum lönd-
um en hjá okkur á Norðurlönd-
um og raunar I Evrópu yfirleitt.
í sumum Afrlkulöndum eru
menn til aö mynda skotnir fyrir
litll afbrot og aftökur meö heng-
ingu talin skemmtiatriöi.
Það er lfka vafasamt hvort
baö tilheyrir hugsunarhætti
stjórnendánna I þessum löndum
yfirleitt að taka fullt tillit til
almennings. Viða er það talið
sjálfsagt að eiginmaður megi
berja konuna slna, a.m.k. ef
ekki sér á henni. og einnig ríkir
visst hlifðarleysi við almenning.
Ég hef til að mynda hvergi
komið þarsem meira er um
bæklaða aumingja viö betl á
götunum en I Mombasa I Kenyu,
og er þó hinn aldni Kenyatta
talinn einhver merkasti stjórn-
andi þriöja heimsins.
Framfarir í orði en
minni ó borði
t þessu ljósi veröur einnig að
dæma það sem kallast fram-
farir. Viða viröist átt við það
aðallega að rikið sýnist nútlma-
legt og myndarlegt. Og með I
framförunum er aö koma upp
sterkum her. Tillitsleysi stjórn-
valda I hungursneyöinni I Afrlku
segir mikla sögu. Stjórnar-
herrar fóru ekki á vergang
fremuren vant er.
Samt er veriö að gera
óhemjustór átök I þessum
löndum I þá átt aö auka
velmegun og atvinnumöguleika.
Orð mln hér á undan segja ekki
nema hálfa söguna. En glans-
póleraðar frásagnir diplómata
sem taka kurteisina framyfir
sannleikann, eru heldur ekki
sagan öll. Þeir tala um þaö sem
verið að reyna fremuren hvaö
ER.
Frá sjónarmiöi okkar hér á
Norðurhjaranum er margt af
þessu fólki einsog börn (kannski
finnst þeim við vera óskaplega
gamalt fólk), og við mundum
ekki við bein kynni eiga gott
með aö skilja þaö afþvi skyn
þeirra og tilfinningallf er mótað
við allt aðrar hefðir. Skemmti-
kvikmynd sem búin er til fyrir
það mundi naumast skiljast hér
afþvl þær tilfinningalegu svar-
anir sem fram koma I myndinni
eru okkur framandi.
Það er kallað skrýtla hér á
Vesturlöndum aö furstinn I Abu
Dabi lét nýveriö dreifa konfekti
úr þyrlum yfir þegna slna. Hann
hefur vafalaust verið á sinn hátt
aö gefa þeim hlutdeild I
nýfengnum auöi, og kannski
langaði þá ekki meira til annars
en fá sllkan munað þótt okkur
finnist þá vanhagi um eitthvað
annaö fremur.
Abu Dabi er lítill gróðurreitur
viö Persaflóa, og sjórinn fram-
undan undarlega grænn
Skrýtið að þarsem gróðurinn
virðist nærri svartur er sjórinn
fagurgrænn. Þetta er einsog
nýreist draumaborg á sand-
inum við ströndina, byggingar
nýtlskulegar, en samt greini-
lega geröar eítir öðru feguröar-
skyni en okkar.
Dubai er áþekkur staöur. En
Kuwait er einsog miödepill
heimsins miöað viö hin
smáríkin.
Annað þekkist ekki á þessu
svæði en furstinn ráði öllu, og
bræður slna eöa syni gerir hann
að ráðherrum svo heita má aö
halda megi ráðuneytisfundi á
einkaheimilinu. En þessar örfáu
valdafjölskyldur við Persaflóa
ráða yfir óhemju auði og þarna
er I rauninni miklu meira
auövald en viö þekkjum dæmi
til hér norðurfrá.
En samt er heimurinn ein
heild, og múra misskilningsins
á milli þjóðanna, á milli fólksins
sem þjóðirnar myndar, verður
að brjóta niður. Og það verður
helst með því að menn viti deili
á hvers annars kostum og
göllum, fremuren að kynna sér
yfirlýsingar stjórnarherra og
ráðamanna.
S.H.
Þegor pysjan
flýgur ó Ijós
Undanfarnar vikur hefur veriö
mikið aö gera hjá yngri kynslóð-
inni I Vestmannaeyjum. — Pysj-
an, lundaunginn, hefur verið
aðal-áhugamál krakkanna. Pysj-
an fer úr holum slnum á kvöldin
og flýgur I áttina að Ijósunum I
bænum. Unginn nær ekki flugi
aftur af sjálfsdáðun. Krakkarnir
safna pysjunum I kassa, oft ná
þau 150 til 200 pysjum á kvöldi.
Daginn eftir er svo arkað með
fuglinn út á Eiði eða út á Hamar
og þar er 'honum sleppt. Unginn
er feginn frelsinu og myndi áreiö-
anlega segja ,,takk” ef hann
mætti mæla. — Þessi pysju-leikur
barnanna I Vestmannaeyjum
hefur veriö árlegur viðburður, og
mörgum fuglinum bjargað frá
bráðum bana.
Ýmsir héldu að gosið myndi
fæla lundann frá Heimaey en svo
reyndist ekki. Hann kom aftur
tryggur eyjunum sinum. Lundinn
kemur ávallt I sömu holuna ár
eftir ár, og sumir segja, að hann
hafi leitaö að holum sem komnar
voru undir hraun og ösku. Ýmsir
ganga svo langt að fullyrða aö
hann hafi brunnið til bana I þess-
ari leit sinni. Þá sögu seljum við
ekki dýrari en við keyptum. — En
vart er hægt að hugsa sér eyjarn-
ar án lunda og börnin láta sér
annt um þennan elskulega fugl.
Hér fylgja nokkrar myndir frá
björgunarstarfibarnanna. Lovlsu
á litlu myndinni erum við búnir
að kynna á’forsiöu. — A annarri
mynd sjáum við krakkana eltast
við pysju undir bil, en hún vill
ekki láta ná sér og er einn strák-
urinn kominn hálfur undir bílinn.
Og hver er svo fengurinn? Jú,
þessi fallegi pysju-ungi, sem
snáöinn heldur á og fer um mjúk-
um höndum. — Allar þessar
myndir hefur ljósmyndari og
fréttaritari VIsis i Eyjum, Guð-
mundur Sigfússon, tekið.
ILU I ATVINNA I BODI HUSNÆDI I BODI KENNSLA I HREINGERNINCAR I TAPAD — FUNDID
Forsjálir...
Forsjálir lesa þjónustuauglýsingar Vísis.
Þeir kiippa þær jafnvel út og varðveita.
Þannig geta þeir valið milli margra aðila
þegar á þjónustu þarf að halda.
ÓSKAST KEYPT ATVINNA ÓSKAST
HUSNÆDI ÓSKAST
OKUKENNSLA
BARNACÆZLA