Vísir - 17.09.1975, Page 13
Visir. Miðvikudagur 17. september 1975.
13
Oliuleiðslan mikla frá Alaska.
— Finnst þér kaupið þitt yera of
lágt? Nú, þá er bara að skipta um
starf. Hvað segir þú um 260 þús-
und krónur á viku? Á VIKU, ekki
mánuði. Þetta kaup er hægt að fá
en ekki þorum við að lofa þvi að
starfið verði eins þægilegt og það
sem þú ert i núna.
Bandarikin skortir olfu. Þessi
iðnaðarrisi er háðari svarta gull-
inu en mörg lönd önnur og gerir
allt sem hægt er til að það haldi á-
fram að streyma. Þess vegna er
nú veriö að leggja 1300 kilómetra
langa oliuleiðslu frá Alaska til
iðnaðarhéraðanna.
20 þúsund i vinnu
Þetta er hrikalegt verkefni,
enda gert ráð fyrir að það kosti
meira en eitt þúsund milljarða
króna. Yfir 20 þúsund menn og
konur vinna myrkranna milli við
lagningu leiðslunnar sem á að
vera tilbúin fyrir fyrsta júli 1977.
Kostnaðurinn er óskaplegur en
leiðslan á lika að (lytja fimmtung
af allri oliu sem Bandarikin flytja
inn og það er ekkert smáræði
heldur.
Þrælavinna við
erfið skilyrði
Það er ekki fyrir neina aukvisa
að stunda þessa vinnu. A veturna
er kuldinn svo mikill að ef einhver
blæastur er getur menn kalið á
örfáum minútum ef einhver lik-
amshluti er óvarinn.
Það getur verið dauðadómur ef
maður er einhvers staðar einn á
ferð á vélknunu farartæki sem
drepur á sér. Fleiri en einn hafa
látið lifi á þann hátt.
Kaupið hátt
En kaupið er lika I samræmi við
það. Menn geta fengið ævintýra-
leg laun. Beverley Bonomo fær
624 þúsund krónur á mánuði
fyrir að mála seriu-númer á rör,
við Prudhoe Bay. Lewis Paske
ekur flutningabil. Hann fer tvær
ferðir i viku með birgðir frá Fair-
banks til Pridhoe Bay. Það er 800
kilómetra vegalengd. Paske
hefur um 936 þúsund krónur I
mánaðalaun.
Gus Frank er 19 ára gamall.
Hann er nánast sendill.
Hann sækir bjór, kaffi, nagla og
hvað annað sem kann að vanta
fyrir félaga sina. Hann fær 520
þúsund á mánuði.
Faglærðir menn og sérfræðing-
ar fá auðvitað enn hærri laun.
Faðir Gus Frank er rafmagns-
maður. Hann fær rúma eina
milljón i kaup á mánuði fyrir sjö-
tiu tima vinnuviku. Þótt vinnan sé
erfið og vinnudagurinn langur er
nóg af ævintýrafólki sem vill
hjálpa til við að leggja þessa
miklu leiðslu.
Myndin er af Renee Levine, sem er framkvæmdastjóri stofnunar
þeirrar, er listamennirnir starfa fyrir, og Jan Williams, nefndur
listrænn stjórnandi, en er jafnframt kunnur hljóðfæraleikari.
Kannski slá
þau í gegn!
— Tónlistarviðburður í Kópavogi
Nýstárlegir tónleikar verða i húsnæði Tón-
listarskóla Kópavogs i kvöld klukkan 21. Þar
koma fram sex bandariskir hljóðfæraleikarar
en stjórnandi þeirra er kunnur slaghljóðfæra-
leikari, Jan Williams. Fólk þetta er á leið frá
Bandarikjunum til meginlands Evrópu og leit
hér við svona rétt til gamans.
Við þekkjum
Þorkel
„Við þekkjum Þorkel, flugum
með Loftleiðum, og þess vegna
var tilvalið að hafa hér viö-
dvöl,” sagði Jan I viötali við
VIsi. „Við komum á þriðjudags-
morgun og förum I fyrramálið,”
bætti hann við. — Siðan leikur
hópurinn I Baden Baden, Vinar-
borg og fyrir BBC I Lundúnum.
— Allir eru hljóöfæraleikararnir
frá „Center of the Creative and
Performing Arts” i Buffalo,
New York. Ekki er vafi á þvi, að
tónleikar þessir vekja mikla
athygli og munu koma mörgum
á óvart. — Um þessa nýbreytni
segir Þorkell Sigurbjörnsson:
„1 kvöld, miðvikudagskvöld,
hefst „Nýtt” i Kópavogi. Þetta
verða tónleikar og sýningar
með efni, sem yfirleitt stendur
ekki annars til boða hér á landi.
Margir framúrstefnulistamenn
koma við hér á landi á leið sinni
milli heimsálfa, og hafa ekkert
á móti þvi að láta krækja i sig af
einhverri brúnni yfir Kópavogs-
gjá á leiðinni á Hótel Loftleiði
— eða þaðan aftur út á völl.
Eitthvað
nýstárlegt
Allt þetta fólk hefur eitthvað
nýstárlegt fram að færa og að-
standendur þessarar starfsemi
gera sér grein fyrir þvi að ekki
veröur það að allra skapi — en
láta sér það I léttu rúmi liggja.
Ekki verður reynt að hæna fólk
að með fyrirferðarmiklum aug-
lýsingum um „heimsfrægð og
snilld,” þvi að við vitum, að öll
heimsfrægð og viðurkenning á
snilld kemur alltaf löngu á eftir
að afrekin hafa veriö unnin.
„Nýtt” I Kópavogi verða þvi
sýningar og tónleikar, þar sem
fólk verður kynnt áöur en — eöa
i þann mund, sem þaö er að öðl-
ast þessa viðurkenningu um-
heimsins.
Slá þau i gegn?
I kvöld kl. 9 koma fram
„Evenings for New Music” frá
Bandarikjunum á leið sinni i
Varsjárhaustið. Kannski „slá
þau I gegn” þar, kannski ekki,
a.m.k. munu þau sem koma á
„Nýtt” I Kópavogi geta fellt
fyrsta dóminn um það. Þessir
flytjendur leika á venjuleg
hljóðfæri, óvenjulega tónlist á
óvenjulegan hátt. Siðar i vetur
verður m.a. boðið upp á mann,
sem spilar á tölvur — og ham-
ingjan veit upp á hverju verður
tekið næst.
Ætlunin var að hýsa þessa
starfsemi I húsnæði þvi þar sem
Kópavogsbió var en þar er nú
verið að gera endurbætur, svo
aö i þetta skipti verða tónleik-
arnir i húsnæði Tónlistarskólans
i Kópavogi, Álfhólsvegi 11.
Smáauglýsingur Visis
Markaðstorg
tækifæranna
Vísir auglýsingar
■Hverfisgötu 44 sími 11660