Vísir - 17.09.1975, Page 20
VISIR
Miövikudagur 17. september 1975.
Reknetabátar:
Veiða ekki
fyrr en
verð
kemur
Fimmtán reknetabátar liggja
bundnir við bryggju I Hötn i
Hornafirði, vegna þess að nýtt
sildarverð hefur ekki verið
ákveðið. Meðan það hefur ekki
verið gert, neita eigendur bát-
anna að lireyfa þá.
Verðið átti að vera klárt á
mánudag. Yfirnefnd verðlags-
ráðs sjávarútvegsins hafði ekki
tekið ákvörðun um nýtt verð i
gærkvöldi, en ætlar að funda i
daga.
Sjómenn og útgerðarmenn á
Hornafirði hafa verið mjög
óánægðir með sildarverðið. Þeir
veiða mest sild sem ekki hefur
fengizt nema 14 kr. á kg. fyrir.
Þeir hafa lýst þvi yfir, að þeir
sætti sig ekki einu sinni við 24
krónur fyrir kg. af þessari sild.Ef
yfirnefnd verðlagsráðsins hækk-
ar ekki verðið mun meira, verður
sildveiðum i reknet liklega hætt.
— ÓH.
„AF HVERJU
GILDA EKKI SÖMU
REGLUR UM
ÞAGMÆLSKU
RÁÐUNEYTISINS?"
— spyr Jakob
,,Mér finnst að cf við hjá
Hafrannsóknarstofnuninni
eigum að gæta þagmælsku, sé
eðlilegt, að sömu reglur gildi
um Sjávarútvegsráðuneytið”,
sagði Jakob Jakobsson, fiski-
fræðingur, i viðtali við Vísi.
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur itrekað við starfsmenn
stofnunarinnar að fara eftir
þeim reglum sem gilda um
starfsmenn rikisins og fela i
sér að gæta þagmælsku um at-
riði, er þeir fá vitneskju um i
starfi og leynt skuli fara.
Sagði Jakob, að það væri
einkennilegt, að starfsmenn
ráðuneytisins þyrftu ekki að
hlíta þessum reglum eins og
starfsmenn Hafrannsóknar-
stofnunarinnar. Á meðan
þeim væri bannað að tala,
ræddi ráðuneytið um sama
mál við fjölmiðla, eins og
nýleg dæmi sanna.
,,Ég er alveg sammála þvi,
að ráðuneytið fái svigrúm til
að afgreiða mál' , sagði Jakob
og bætti við að þá væri eðlileg-
ast, að hvorugur aðili ræddi
við1 f jölmiðla. -EVI.
Minkur leggst á
endur við Tjörnina
,,Við veiddum að visu ekkcrt,
en ég tel þó alveg áreiðaniegt,
að það er minkur við litlu
tjörnina f Hljómskálagarðinum.
Bæði er, að við tjörnina fannst i
gær dauð önd, sem hafði verið
bitin i hnakkann, og svo fundu
hundarnir frá Veiðimálastjórn
greinilega lykt af mink við
nokkrar holur,” sagði
Reymond Steinsson, lög-
regluþjónn, f viðtali við Vísi i
morgun.
Tilkynnt var til miðborgar-
lögreglunnar í gær, að minkur
hefði sézt i tjörninni i Reykja-
vfk. Fóru lögreglumenn þegar
með alvæpni á staðinn og hófu
leit með hundum, en án
árangurs.
Greinilegt var samt, að
minkur er við tjörnina, þvi að
hundar veiðimálastjórnar fundu
slóð hans við litlu tjörnina syðst
i Hljómskálagarðinum. Rótuðu
Reymond Steinsson, lögreglu-
þjónn, er hinn vigalegasti með
byssuna. Þrátt fyrir það slapp
minkurinn f þetta sinn, en von-
andi næst hann þó innan tfðar.
hiindarnir þar upp jarðvegi og
sýndu öll merki þess að hafa
fundið sterka lykt.
Reynt var að sprengja
minkinn út, með þvi að hella
bensini i holur og kveikja i, en
það bar engan árangur.
Varð lögreglan frá að hverfa
við svo búið, en fylgzt verður
vandlega með tjörninni á
næstunni og reynt að gera allt til
að komast fyrir þennan óvætt i
fuglabyggðinni.
-HV.
Forvitnin dró vegfarendur að þar sem minkbitna öndin fannst. Það er ekki algeng sjón heldur aö sjá
lögreglumenn eða aðra með alvæpni I Reykjavik miðri.
Ætlum ekki að stofna
til skemmdarstarfsemi í
— segir Sólveig Ólafsdóttir formaður
Kvenréttindafélags íslands
þjóðfélaginu
Það er ennþá óljóst hve margar konur munu taka
sér fri 24. október, sagði Sólveig ólafsdóttir formað-
ur Kvenréttindafélags íslands. Ennþá er þetta mál
á undirbúningsstigi. Skipuð hefur verið nefnd til að
athuga þátttöku kvenna og fá konur til að taka þátt i
þessu fríi.
Auðvitað eru störfin sem konur
gegna misjafnlega mikilvæg og
verður hver og ein kona að gera
það upp við sig hvort hún telur sig
vera ómissandi eða ekki. Það er
ekki ætlun okkar að efna til
skemmdarstarfsemi i þjóðfélag-
inu, sagði Sólveig.
Karlmenn segja að konur séu
mikilvægar i þjóðfélaginu og án
þeirra gæti þjóðfélagið ekki starf-
að, en þeir sýna ekki þessa hugs-
un i verki. Til dæmis þegar vinnu-
veitandi vill ekki taka konu I
vinnu, ef hann hefur völ á þvi að
fá karlmann i starfið. Viö þekkj-
um mörg dæmi um þetta.
En með þessari vinnustöðvun
ætlum við fyrst og fremst að sýna
fram á hve við erum ómissandi i
þjóðfélaginu og f öðru lagi að gera
konum meövitaðan samtakamátt
sinn með því að stöðva allan at-
vinnurekstur, einnig heimilis-
reksturinn, sagði Sólveig.
Þaö er mikil pólitisk breidd I
þessum samtökum, þvi flest póli-
tisku samtakanna hafa tilnefnt
fulltrúa. Og ef verkalýðssamtökin
styðja okkur og Rikisstarfsmenn
taka þátt i friinu, þá er gefið að
það verður mikil pólitisk breidd I
þessari hreyfingu.
— HE.
BARÁTTAN UM
SÖLUBÖRNIN
Dugleg sölubörn er grundvöll-
ur þess að lausasala dagblaðs
gangi vel. — Þetta vita þeir,
sem gefa út VIsi og Dagbiaðið.
Ljóst er, að mikil samkeppni
er nú hafin um sölubörnin og
lofa báðir gulli og grænum skóg-
um.Dagblaðið gefur kók og
popcorn og kannski Prince Polo,
og þaö hefur stofnað félag, sem
minnir örlitið á Sendisveina-
félagið forðum daga. Visir hefur
efnt til happdrættis, þar sem
margir vinningar eru dregnir út
vikulega og happdrættismiða fá
sölubörnin fyrir hver tiu seld
blöð. Einnig verður dreginn út
einn stór-vinningur sem er
utanlandsferð.
— Þessi samkeppni um sölu-
börnin er tvlmælalaust af hinu
góða. Þau hafa ekki verið ofsæl
af sölulaununum, og verður allt
umstangið til þess að þau fá
smá uppbót.
— Óskar Karlsson dreifingar-
stjóri VIsis, talar oft um „harða
kjarnann” I hópi sölubarnanna,
og á myndinni hér til hliðar sést
hann að afgreiöa nokkra, sem
flokkast I þann hóp. — Og stríðið
heldur áfram.