Vísir - 23.09.1975, Blaðsíða 10
10
Visir. Þriðiudagur 23. september 1975
LlíenwoodCM
k T^Tj 7P,kI
0
véV\n
íldViúsVÍf^Í
d'
' ÍÚOWt
fenwood
X ufeTTlB
HEIMIUSSTÖBF'N
en ven|'j'e9
' . 0n mik\n me>ra, nota
HOn et a«t ^Moart^' 'áan'69
^ 11h'S,P 6vax«Kv6ro, «££
s'JQ aere. _rBBnmef>s- °5' opn8rt, 9r®°
^kavéUrtö«os^'afi d6^" con -
S“.“"",Ttkr 35.5*u*
fA
slrrn 21240
Laugave9>
FÓLKSBÍLADEKK - VÖRUBÍLADEKK -
TRAKTORSDEKK
Fyrirliggjandi flestar stærðir af japönskum TOYO
hjólbörðum.
Einnig mikið úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU
HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæðu veröi.
Sendum í póstkröfu.
HJÓLBARÐASALAN
BORGARTÚNI 24
Sfmi 14925.
SENDILL OSKAST
Piltur eða stúlka óskast til sendistarfa
fyrir eða eftir hódegi
Hafið samband
við
afgreiðsluna
eða ritstjárn
visir
Síðumúla 14 — Sími 86611
Piltur - Stúlka
óskast til aðstoðar við útkeyrslu eftir há-
degi,ekki er nauðsynlegt að viðkomandi sé
alla daga vikunnar,
Hafið samband við
afgreiðsluna
Hverfisgötu 44
VISIR
Simi 86611.
$
Hér leikur Billy Wilder Sherlock Holmes I
einni af hinum fjölmörgu myndum, sem
gerðar hafa verið um kappann. Reyndar
er þetta söguleg mynd, þvi að þarna fékk
Holmes koss i fyrsta sinn á hvita tjaldinu.
Myndin heitir: „Einkalif Shcrlock
Holmes”.
Sherlock
Holmes
endurlífgaður
Áhugi aðdáenda eins frægasta leynilögreglumanns
allra tíma# Sherlock Holmes, hefur verið endurvak-
inn, segir rithöf undurinn Nicholas Meyer í viðtali við
Bruce Russell, fréttamann Reuters í Hollywood. Mey-
er er þekktur fyrir Sherlock Holmes „uppvakninga"
sína.
Hann hefur m.a. skrifað Sher-
lock Holmes bókina „Sjö pró-
sent upplausnin”. Hann segir,
að Holmes sé nú endurlifgaður
bæði á hvita tjaldinu, á leiksvið-
inu og I bókum.
Fyrsta Holmes saga Meyers
seldist innbundin i 300 þúsunda
upplagi og i meir en 2 millj. i
pappirskiljum. Von er á nýrri
bók frá Meyer næsta vor og
nefnist sú „Hryllingurinn i West
End”.
— Sherlock Holmes er án efa
vinsælasta sögupersóna, sem
sköpuð hefur verið, segir Meyer
um hugarfóstur sir Arthurs
Conan Doyle. — Hann á sölumet
á öllum tungumálum og eina
bókin, sem hefur verið seld i
stærra upplagi en Holmes
sögurnar, er biblian.
— Ég held, að á hverjum 10
árum endurvekist áhuginn á
Sherlock Holmes, segir Meyer,
— en að jafnaði á hann a.m.k.'2
millj. aðdáenda, sem aldrei
missa sjónar af honum.
Meyer telur, að a.m.k. 136
kvikmyndir hafi verið búnar til
um Holmes og dr. Watson, hinn
trygga fylgisvein hans.
Þar sem Doyle skrifaði ekki
nema 60 sögur, hafa hinar verið
Myndlist á floti
Hvað er nú þetta? Skrimsli á Tjörninni eða er maður að drukkna? Nei,
þetta er myndlistarsýning, sem Gunnar Gejr Kristjánsson hélt niöri á
Tjörn á sunnudaginn.
Siðast liðinn sunnudag var
fremur óvenjuieg listasýning
niðri á Tjörninni. Þar var Gunnar
Geir Kristjánsson búinn að koma
fyrir þremur skúlptúrverkum úr
froðuplasti og vögguðu listaverk-
in hægt á öldunum.
Að sögn Gunnars, þá er þetta
nýr stfll I myndlist, sem hann
kallar verðbólgustil.
Gunnar hafði fest myndlistar-
verkin við stjóra, en I mestu vind-
hviðunum losnaði eitt þeirra,
sem Gunnar nefnir „Rikisstjórn-
in” og flaut listaverkið tignarlega
I átt að Tjarnarhólmanum. Gunn-
ar Geir brá skjótt við og óð á eftir
„Rikisstjórninni” alveg upp að
mitti og færði hana að landi og
tjóðraði fasta. Þegar Gunnar kom
upp á bakkann hriðskalf hann af
kulda og varð að fara heim að
skipta um föt. Sagði hann að
„Rikisstjórnin” væri eina verkið,
sem hefði losnað og væri þetta i
annað sinn, sem hann þyrfti að
vaða út eftir þessu ódæla lista-
verki.
Annars var Gunnar Geir
ánægður með þessa sýningu og
margt manna var komið til að
horfa á. En endurnar héldu sig i
hæfilegri fjarlægð frá þessum
undarlegu „figúrum”, þvi að það
væri hæpið, að þarna væri ný, áð-
ur óþekkt andategund á ferðinni.
— HE.