Vísir - 29.09.1975, Síða 19
Vísir. Mánudagur 29. september 1975
19
j í KVÖLD | í DAG | |
Þaö er óhætt aö segja að Eiffel-turninn I Paris sé hérna i fullum blóma! Birgir Kjaran segir frá
hversdagslifinu I iéttum dúr I þessari litriku borg i kvöld.
Útvarp kl. 20.30:
„Slitrur úr
Parísardagbók
— Birgir Kjaran hagfrœðingur
segir fró hversdagslífinu
í París órið 1952
,,Þctta eru myndir af lifinu i
Paris, eins og það kemur út-
lendingi fyrir sjónir,” sagði
Birgir Kjaran hagfræðingur
sem flytur frásöguþátt i útvarp-
inu i kvöld.
Þátturinn heitir „Slitur úr
Parisardagbók”. Birgir dvaldi i
Paris hluta úr árinu 1952. ,,Ég
var þar að friska upp á gamla
menntun,” sagði hann okkur.
1 léttum dúr lýsir hann fyrir
okkur hversdagslifinu i þessari
heimsborg eins og það kom hon-
um fyrir sjónir.
„Mér likaði mjög vel við
Paris. Gerir það ekki öllum? En
á þessum árum var Paris allt
önnur en hún er i dag. Ég hef
komið þangað aftur eftir þetta,
og þá fannst mér hún öðruvisi.”
Birgir gat þess lika að það
væri annað að búa i Paris við
heldur litil efni heldur en að
kóma þangað og búa á frekar
dýru hóteli sem ferðamaður.
Þannig fær maður kannski
minna út úr peningunum.
En við ættum að fræðast
nokkuð nánar um þessa borg i
kvöld, sem öðrum borgum
fremur hefur alltaf verið sveip-
uð einhverjum ævintýraljóma.
—EA
Sjónvarp kl. 22.00:
Armenar og
Seldsjúkar
f sjónvarpinu i kvöld fáum
við að vita sitthvað um Ar-
mena og Seldsjúka. Sýndur
verður fimmti þátturinn i
mynda flokknum „Frá
Nóaflóði til nútimans”. Þýð-
andi og þulur er Gylfi Páls-
son. Meðfylgjandi mynd er
úr einum þáttanna.
Sjónvarp kl. 20.35:
Upp komast
svik um síðir...
— „Allra veðra von" í kvöld
Sekt eða sakleysi heitir 4 þátt-
urinn sem sýndur verður i
myndaflokknum Allra veðra
von i sjónvarpinu i kvöld.
Siðasti þáttur endaði með þvi
að síminn hringdi heima hjá
Tom Simpkins. Honum var sagt
að Ted væri látinn.
Þátturinn i kvöld hefst á þvi
að verið er að reyna að koma
þessum upplýsingum til sonar
þeirra Normu ogTeds sem heit-
ir Nick. Hann stundar nám i há-
skóla.
Upplýsingarnar komast til
hans og hann fer heim til móður
sinnar og systur sem báðar eru
langt niðri eftir áfallið, sérstak-
lega þó dóttirin, sem veit ekki
enn að hún er dóttir Simpkins.
Þá gerist það að Kate, eigin-
kona Philips Harts fréttir um
samband hans við Andreu
Warner. Vegna þessa verður
mikið uppistand á heimilinu.
Kate krefst þess að Philip sliti
sambandinu við Andreu.
Hann hittir hana og segir
henni frá þessu. Hún vill helzt af
öllu halda áfram að hafa eitt-
hvað samband við hann....
Ýmislegt fleira skeður i þætt-
inum i kvöld, en það sjáum við
nánar klukkan 20.35.
Það má svo geta þess að vetr-
ardagskráin tekur gildi um
mánaðamótin, og þá flyzt þessi
myndaflokkur yfir á sunnu-
dagskvöld. Alls eru þetta 7 þætt-
ir. —EA
— Hva — mynd núna — og þetta sem er bara
vatn með vitaminpillunum mlnum!
| SJÓNVARP •
Mánudagur
29. september 1975
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Allra veðra von. Bresk
framhaldsmynd. 4. þáttur.
Sekt eða sakleysi. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. Efni
þriðja þáttar: Einn af bestu
vinum Simpkins, Baden
Roberts bæjarfulltrúi, kem-
ur öllu i uppnám á bæjar-
stjórnarfundi, en það verður
til þess, að Simpkins fer að
endurskoða fyrri afstöðu
sina. Hann venur komur
sinar til Normu Moffat og
hughreystir hana, er Ted,
maður hennar, meiðist al-
varlega i bilslysi. Shirley
dóttir þeirra Normu og
Simpkins kemur hins vegar
kuldalega fram við þau og
finnst undir niðri, að þau
eigi sök á slysinu. Andrea
Warner og Philip Hart
halda áfram að hittast, þeg-
ar þvi verður við komið.
Kvöld eitt hringir siminn
heima hjá Tom Simpkins.
Norma segir honum að Ted
hafi látist á sjúkrahúsinu.
21.30 Iþróttir. Myndir og
fréttir frá iþróttaviðburðum
helgarinnar. Umsjónar-
maður ómar Ragnarsson.
22.00 Frá Nóaflóði til nútim-
ans. Breskur fræðslu-
myndaflokkur um menning-
arsögu Litlu-Asiu. 5. þáttur.
Armenar og seldsjúkkar.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
22.30 Dagskrárlok.
Mánudagur
29. september
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis” Málfriður
Einarsdóttir þýddi. Nanna
Ólafsdóttir les (19). Einnig
les Ingibjörg Stephensen
' ljóð.
15.00 Miðdegistónleikar. Jan
Tomasow og Anton Heiller
leika Sónötu i A-dúr op. 6
nr. 11 fyrir fiðlu og selló
eftir Albinoni. Hátiðar-
hljómsveitin i Bath leikur
Hljómsveitarsvitu nr. 1 i C-
dúr eftir Bach, Yehudi
Menuhin stjórnar. Helmut
Hucke og hljómsveitin
Consortium musicum leika
óbókonsert i C-dúr eftir
Haydn, Fritz Lehan
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 Sagan: „Ævintýri
Pickwicks” eftir Charles
Dickens. Bogi Ólafsson
þýddi. Kjartan Ragnarsson
leikari les (13)
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaanki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Helgi J. Halldórsson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Rósa B. Blöndals talar.
20.00 Mánudagsiögin. 1
20.30 Slitur úr Parisardagbók.
Birgir Kjaran hagfræðingur
flytur frásöguþátt.
21.00 „Davidsbundlertanze”
op. 6 eftir Robert
Schumann.Murray Perahia
leikur á pianó.
21.30 Útvarpssagan:
„Ódámurinn” eftir John
Gardner. Þorsteinn
Antonsson þýddi. Þorsteinn
frá Hamri les (8)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Búnaðarþáttur. Ingvi Þor-
steinsson magister talar um
landgræðsluáætlunina.
22.35 Hljómplötusafnið. 1
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
Frétir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Frd Fjölbrauta-
skólanum Breiðholti
Fjölbrautaskólinn i Breiðholti verður
settur laugardaginn 4. október kl. 14.00 i
húsakynnum skólans við Austurberg.
Nemendur mæti i skólann föstudaginn 3.
október á timanum frá kl.9.00 til 16.00 til
að staðfesta námsbrautir og til viðtals við
kennara skólans og námsráðgjafa.
Skólameistari.