Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975 7 Breiðholt: „Áreiðanlega hesta hverfið í Reykjavík!" Þaö þykir alltaf sjálfsagt að spyrja þá f ullorðnu álits á hlutunum. Það er öllu sjaldgæfara að við leitum til barnanna og spyrjum þau hvað þeim f innst um þetta eða annað. En þegar til þess kom að við heimsóttum íbúa í Breiðholtinu til þess að for- vitnast um það hjá þeim hvernig það er að búa í þessu umskrifaða og umtal- aða hverfl, létum við ekki nægja þá fullorðnu, heldur tókum krakkana tali líka. Þeir hafa sínar skoðanir líka. Við spjölluðum við krakka sem hittum á göt- unni í efra og neðra Breiðholti. „Þaö er alveg stórfint að eiga heima hérna. Breiðholtið er áreiðanlega besti staðurinn i Reykjavik.” Það voru hressir strákar sem við hittum við Fellaskóla sem þetta sögðu. Þeir voru i fótboita þegar við ákváðum að trufla þá. Allir sögðust þeir vera 15 ára gamlir og enginn þeirra hefur búið lengur i Breiðholti en i tvö ár. Þeir hafa þvi allir saman- burð við önnur hverfi og muna „Stundum leikum viö okkur hérna, stundum á róló eða ein- hvers staðar.— Arni Sig- urðsson og Friðjón Unnar Hall- dórsson. þau vel, þar sem þeir eru orðnir þetta gamlir. En það er eins gott að vita hvað þeir heita, sem við erum að tala við: Skúli Hafsteinsson, Baldur Þór Baldursson, Magnús Sigurðsson, Gunnar Valdimars- son, ómar Gislason og Birgir Gunnarsson. „Við erum allir i Fellaskóla,” sögðu þeir. „Jú, það er alveg ágætur skóli. Það eina sem vantar hér i skólann eru fleiri mörk!” Og kannski ekki skritið þó þeir segi það þegar þeir verja öllum friminútum i fótbolta. En mörkin eru liklega nógu mörg, þvi þau eru að minnsta kosti tvö. Iþróttahús sögðu þeir að yrði tilbúið um mánaðamótin og eitt- hvaðhöfðu þeir heyrt um að þar yrði byggð sundlaug. „Við vild- um gjarnan hafa sundlaug hérna.” — Hvað fleira vilduð þið fá hingað ef þið fengjuð að ráða? „Við vildum fá einn Tónabæ hingað upp eftir”, varð einum að orði og hló dátt. „Við förum sumir hverjir þangað. Svo væri stórfint að fá bió hingað svo maður þurfi ekki alltaf að fara svona langt til þess að sjá ein- hverja mynd.” Og einn bætti við: „Ég vildi gjarnan fá KR hingað!” Þeir ú-uðu hann niður, nokkrir... — Getið þið ekki farið á böll og séð bió i Fellahelli? (Fellahellir er sá staður sem býður upp á ýmiss konar æskulýðsstarf- semi. „Nei, það er voðalega litið fyrir okkur þar. Jú, að er hægt að fara i diskótek þar en margir okkar vilja nú frekar fara i Tónabæ, þangað fara svo marg- ir. Við förum aldrei i bió i Fella- helli. Yfirleitt eru bara myndir með Gög og Gokke, voða slapp- ar, —og þá klukkan þrjú. Það er aðallega eitthvað fyrir 12 ára krakka i Fellahelli.” ,,Ég er bara voöalega ánægð!” Það er Elfa Ellertsdóttir sem er svona ánægð i Seljahverfinu i Breiðholti. „Ég á heima i Akra- seli og ég er 11 ára,” sagði hún okkur þegar við stöðvuðum hana á reiðhjólinu sinu. „Ég er búin að eiga heima hérna i svona fjóra mánuði. Aður átti ég heima á Kóngs- bakka.” — A hvorum staðnum er skemmtilegra? „í Akraseli. Af hverju? Af þvi að nú eigum vib heima i einbýl- ishúsi en áöur áttum viö heima I fjölbýlishúsi.” Elfa sagðist vera i öldusels- skóla. — Er langt fyrir þig að fara I skólann? „Við förum i skólabil þangað en við verðum að labba heim. Ef við flýtum okkur, þá erum við svona tiu minútur.” — Finnst þér ekkert vanta hér ! hverfið? „Nei, ekki neitt.” „Verður gott hér i framtiðinni” í neðra Breiðholti hittum við tvo stráka, sem sögðust heita Magnús Sigurðsson og Helgi Einarsson. Þeir virtust önnum „Viö vildum fá einn Tónabæ hingað”, sagði sá með húfuna, Baldur Þór Baldursson. Hinir heita (f.v.) Skúli Hafsteinsson, Magnús Sigurðsson, Gunnar Vaidimarsson, Ómar Gíslason og Birgir Gunnars- son. Ljósm.: LA. Þeir voru að reyna að mæla sólarhæðina. Magnús Sigurðsson og Helgi Einarsson. kafnir við eitthvað á gagnstétt- inni, en þegar við ætluðum að forvitnastum hvaö þeir væru að gera, vildu þeir ekkert segja. Loks fengust þeir til þess. Þeir voru að reyna að mæla sólarhæðina. „Við vorum að læra þetta i eðlisfræði áðan,” sögðu þeir. Þeir eru I Hóla- brekkuskóla og eru 15 ára. Báðir hafa átt heima i neðra Breiðholti i nokkur ár. „Það er alveg ágætt að eiga heima hérna,” sögðu þeir. „Við kunn- um betur við okkur hér en þar sem við áttum heima áður.” „Hér verður áreiðanlega gott að vera i framtiöinni,” sagði Magnús. „Nú er Fjölbrautar- skólinn að koma og svo verður hér áreiðanlega ýmislegt.” Þeir voru annars sama sinnis og hinir strákarnir sem við töi- uðum við. „Það má gjarnan vera bió hérna,” sögðu þeir. „Hér fæst allt...........” Þeir siðustu sem við spjölluð- um við eru bara 8 og 9 ára. Arni Sigurðsson og Friðjón Unnar Halldórsson kváðust þeir heita. „Það er gott að eiga heima hérna,” sögðu þeir. „Við erum i Fellaskóla og það er ágætt að vera þar. Ef okkur langar i fót- bolta þá getum við það á skóla- lóðinni. Svo er róló hérna sem er ekkert mjög langt I burtu. Hér fæst lika allt i búðunum sem við þurfum að fá.” —EA Hún Elfa Ellertsdóttir segist vcra „voðalega ánægð" að búa i Selja- hverfinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.