Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 14

Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 14
14 Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975 Visir. Fimmtudagur 2. október 1975 15 Tískufötin í Karnabœ: Föt úr riffluðu flaueli og stutt- ir leðurjakkar Nú eru flestallar buxur með rass- vösum, eins og sjá má á þessum terelyne buxum, sem fást i Karnabæ og kosta 4.880 krónur, fyrir utan beltið. Flestar buxur eru nú framleiddar fyrir meðalbreið belti. Karnabær hefur fjórar verslanir sem selja karlmannafatnað. í versluninni á Laugavegi 66 varð verslunarstjór- inn, Erlendur Borgþórs- son, fyrir svörum. „Karlmannaföt tir riffluðu flau- eli seljast mest nú. Þau virðast ætla að verða það vinsælasta I vetur. Þau eru I mörgum litum og kosta 16.900 krónur, allar stærðir. Við framleiðum þessi föt sjálfir. Þessi flauelsföt eru með sport- legra sniði en áður hefur tiökast á fötum,” sagði Erlendur. Hann sagði að föt úr sléttu flau- eli væru einnig vinsæl. Stakir jakkar úr sléttu flaueli seljast einnig vel. „Stuttjakkar úr leðri eru i tisku núna. Þeir kosta 22.500 krónur. Síöir jakkar úr leðri kosta þúsund krónum meira. Stuttjakkar úr öðrum efnum eru lika vinsælir, t.d. úr flaueli. Þeir kosta 9.380 krónur. Þá fást einnig fóðraðir nælon stuttjakkar, sem kosta 9.900 krónur,” sagði Erlendur. Um skyrtur sagði hann, að flibbarnir hefðu nú allir hvöss horn, en væru mismunandi lang- ir. Skyrtumar eru nokkuð litrik- ar, með munstri. Hjá Karnabæ kosta skyrtur frá 2.490 kr. upp i 3.990 kr. Bindi hafa öll sömu breidd og eru yfirleitt bundin með Karnabær spáir þessum riffluðu flauelisfötum sinum góöu brautar- gengi I vetur. Salan á þeim hefur verið mikil. Þau kosta 16.900 krón- ur með vesti, allar stærðir. VISIR UTURA HERRAFA TA TÍSKUNA Kaiimannafatatisk- an hér á landi i vetur liggur nokkuð ljós fyrir. Tiskan hefur ekki tekift mikluni brevting- um. Þó eru ákveðnar linur sem ggngið er út frá. o o Visir kannaði i gær i þremur af stærstu 0 tiskufatavérslununum i Iteykjayik, hvaða fatn- aður væri mest i tisku nú. — ÓH Ljósm: Jim P. STEFÁNSSON HF. HVERFISGÖTU103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092 PART Kóróna fötin með Sam- sniðinu, sem eldri við- skiptavinir Herrahússins kaupa mest. Axlalínan er bein, jakkaboðungarnir breiðir, og vasar utaná. Spæll er að aftan. Fötin kosta 18 til 20 þúsund, án vestis. Pessi algreiðslustúlka Karna- bæjar tekur sig ekki slöur vel út I fjörlegri karlmannaskyrtunni en stæðilegur karlmaður mundi gera. Skyrtan kostar 3.690 krón- ur, og bindiö, sem raunar er með tvöföldum hnút, kostar 1.190 krónur. Jakki úr sléttu flaueli, notaður stakur við buxur i öðrum lit. Jakkinn kostar 12.900 krónur. einföldum „loftmiklum” hnút. Þau kosta 1.190 krónur. „Peysur fylgja yfirleitt ekki neinni sérstakri tisku,” sagði Er- lendur, „en jakkapeysur eru einna vinsælastar nú. Algengasta efnið ér acryl. Unga fólkið vill peysur sem hægt er að stinga I þvottavélina.” Stuttir leðurjakkar eru I tisku. Þessi kostar 22.500. Erlendur upplýsti einnig, að nú væri yfirleitt rassvasar á öllum buxum, lika þeim „finni”. Hann sagði, að þrátt fyrir að ýmiss konar efni væru vinsæl stund og stund, þá stæði terelyne alltaf fyrir sinu. „Terelyne er alltaf gjaldgengt og við seljum mikið föt úr þvi. önnur efni eru sjaldnast vinsæl lengi. Buxur úr terelyne eru si- gildar hvar sem er.” Aðspurður um hvaða aldurs- hópur verslaði mest I Karnabæ, sagði Erlendur, að það væri að sjálfsögðu mest unga fólkið. „Við fáum þó oft viðskiptavini þrjátiu til fjörutiu ára Fyrir eldri karlmenn: Sportlegt snið — og bein axlalína LEYLAND pjónusta um land alk P. Stefánsson hf. hefur gert samning viö eftirtalda aðila um viögeröir og varahluta- þjónustu á Land Rover, Range Rover, Austin og Morris bifreiöum. ,,Trench-coat" frakkinn sem herrahússmenn segja að slái í gegn í vetur. Frakkar með þessu sniði munu fást úr þremur efnum, þegar sala hefst á þeim. Þeir kosta frá 13 til 16 þúsund krónur, eftir efni. Menn sem eru komnir á fer- tugsaldurinn vilja margir ekki siður fylgjast með tiskunni en þeir yngri. Við könnuðum hverskonar tiska stæði þeim til boða, hjá Herrahúsinu i Aðal- stræti, sem hefur flesta við- skiptavini á aldrinum frá 25 ára og upp úr. Stærsti hópur við- skiptavinanna er á aldrinum 25 til 40 ára. „Okkar lina er likust skandin- avisku linunni, eins og hún er á hverjum tfma. Viðskiptavinur- inn vill fá það sem er nýtt og við erum með það sem er nýjast er- lendis nú,” sagði Guðmundur Ólafsson, verslunarstjóri. „íslendingar sækjast mikið eftir einhverju nýju. 1 fötunum nú er mikið um spæla, utan- ásaumaða vasa, og útlit þeirra er sportlegt. Einnig höfum við látlausari föt, Sam-sniðið. Þau eru mjög vinsæl h já eldri mönn- um, meóan þeir yngri velja Lord-sniðið. A þvi sniði hafa axlimar hækkað. Axlalinan er bein,” sagði Guðmundur. Hann sagði að einlit föt væru vinsælust. Brúnt og blátt hefur mest gengið en nú er meira far- ið að seljast af grænu. „Menn kaupa ekki bara dökk föt nú eins og áður. Flestir hafa lika sætt sig við útviðu buxum- ar. Þó er alitaf einn og einn sem vill þær ekki og biður um að þær séu þrengdar.” BOLUNGARVÍK: Vélsmiðja Bolungarvikur, ÍSAFJÖRÐUR: Vélsmiðjan Þór. SAUÐÁRKRÓKUR: Kaupfélag Skagfirðinga. PATREKSFJÖRÐUR: Vélsmiðjan Logi HRÚTAFJÖRÐUR: Bílaverkstæði Steins Eyjólfss. Borðeyri, BÚÐARDALUR: Kaupfélag Hvammsfjarðar, VÍÐIDALUR: Vélaverkstæðið Víðir, BORGARNES: Bifreiða og trésmiðjan. HAFNARFJÖRÐUR Bílaver AKÓ. KEFLAVÍK: Bílasprautun Birgis Guðnas.- SELFOSS: Kaupfélag Árnesinga @ Austin Jaguar Morris Rover Triumph KÓPASKER: Kaupfélag N.Þingeyinga ÞÓRSHÖFN: Kaupfélag Langnesinga. SIGLUFJÖRÐUR: Bílaverkstæöi Magnúsar Guðbrandss. HÚSAVÍK: .Vélaverkstæðið Foss. ÓLAFSFJÖRÐUR: Bilaverkstæðið Múlatindur. AKUREYRI: Baugur H/F. EGILSSTAÐIR: Arnljótur Einarsson. REYÐARFJÖRÐUR: Bílaverkstæðið Lykill. HORNAFJÖRÐUR: .Vélsmiðja Hornafjarðar. VÍK í MÝRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga. HVOLSVÖLLUR: Kaupfélag Rangæinga. í tiskuversluninni Adam eru vinsælust jakkaföt úr terelyne og ull, Adamson-fötin. „Þau eru framleidd fyrir Kóróna-búðirnar. Adam er ein þeirra,” upplýsti afgreiðslu- maður i versluninni okkur um. „Við erum nýbyrjaðir að selja nýtt snið, svokallað Lord- snið. Það er linan hjá okkur i vetur. Fötin njóta þegar mikilla vinsælda,” sagði afgreiðslu- maðurinn. Hann sagði að mest seldust nú .einlit föt, brún og drapplituð. „Við eigum aldrei nóg til af brúnum fotum, eftirspurnin eftir þeim er svo mikil.” Adamson-fötin með Lord- sniðinu kosta 19.950 krónur með vesti. Afgreiðslumaðurinn sagði einnig, að föt úr riffluðu flaueli væru mjög vinsæl. Að sögn hans stefnir allt i þá átt, að einlit föt og stakir jakkar hljóti mestar vinsældir. Skyrtur hjá Adam eru svipað- ar þeim sem fást i Karnabæ. Þær kosta frá 2.600 krönum upp I 3.300 krónur. Flestar kosta kringum 3000 krónur. Hnepptar peysur með kraga eru mikið seldar svo og hnepptar peysur með tveimur tölum. Þær kosta frá 3.800 krónum upp i rúmar 5000 kr. Gallabuxur hjá Adam eru frá Falmer. Þær eru flestar úr denim og kosta frá 3.500 upp i 4000 krónur. Adamson föt með Lord-sniði, sem Kóróna búðirnar hafa nýiega sett á markað. Fötin eru úr blöndu af terelyne og ull, og kosta með vesti 19.950 krónur. Um skyrtur sagði Guðmund- ur, að þær væru töluvert mikið munstraðar, með allskonar figúrum, teikningum, blaðaúr- klippum os..frv. á hvitum grunni. Menn vilja yfirleitt að skyrtur falli þétt að og þvi býður Herrahúsið upp á þrjár viddir áf skyrtum. Skyrtur kosta frá 2000 upp i 4000 krónur eftir þvi hvaðan þær koma. „Við búumst við mikilli sölu á svokölluðum „Renchcoat” frökkum i vetur. Við fáum * fyrstu sendinguna bráðlega. Þessir frakkar eru siðir, tvihepptir, með löfum og spæl- um, og stórum hornum. Frakk- ar hafa verið stuttir, en nú er sen sagt verið að breyta um. Af öðrurn hlifðarfatnaði má nefna stutta mjög vinsæla frakka, sem kallast „pee-coat”. Yngri mennirnir kaupa þá mikið”, sagði Guðmundur einnig. „Pee-coat”, Islenskt nafn er ekki til, frakki sem yngri viðskipavinirnir hjá Herra- húsinu hafa keypt mikið. Frakkinn kostar 13.980 krónur. „Veðurfarið hér hamlar fjöl- breytni i klæðaburði mjög mik- iö. En með auknum fritima_á siöari árum hefur fatavalið orð- iö fjölbreyttara. Menn sem áður fyrr sáust ekki úti nema i jakka og pressuðum buxum, i skyrtu með bindi, þeir klæðast kannski gallabuxum, blússum og öllu sportlegri fatnaði,” sagði Guð- mundur ólafsson að lokum. Lord-sniðið vinsœl- ast í Adam — og mest spurt um brúnu litina

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.