Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 11
Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975
n
A hverju ári koma þiísundir
islendinga á Laugardalsvöllinn
til að horfa á okkar bestu
iþróttamenn etja kapp við er-
lenda menn, eða keppa hvor við
annan. Knattspyrnan er þar i
fyrsta sæti, eins og i flestum
öðrum löndum heims, enda
heillar hún marga. Okkar knatt-
spyrnumenn hafa lika staðið sig
vel á Laugardalsvellinum i
sumar, og sjaldan hafa Is-
lendingar gengið eins oft glaðir
út úr dal heitu lauganna eins og
einmitt i ár. Þar ber hæst sigur
íslands yfir Austur-Þýzkalandi,
en sjaldan hafa önnur eins
fagnaðarlæti heyj-st i dalnum og
þá. Hér erum við með nokkrar
svipmyndir frá knattspyrnu-
leikjum i sumar — ekki þessar
vcnjulegu myndir af mönnum
að elta boltann, — heldur af hin-
um venjulegu áhorfendum.
Þegar mikið er um að vera á vellinum er oft þröngt setinn bekkurinn I stúkunni. En stundum er nun iíka
hálftóm, og þá fá krakkarnir aðleggja undir sigannan helminginn.
LJOSM: LA
TEXTI: KLP
Það er ágætt að eiga regnhlif ef maður fer ekki I stúkuna. En það er
ekkí alltaf jafn vinsælt hjá þeim sem eru fyrir aftan eigandann.
Það er gott að totta góðan vindil. En þegar spennan er mikil vill oft gleymast að kveikja I honum, en
hann endist þá þeim mun betur.
Ef maður á ekki regnhlif getur stór og góöur trefill komið að góðum notum — Það er að segja ef það er Jafnt ungir sem gamlir hafa gaman af þvi að fara á völlinn, og áhuginn
rigning. leynir sér ekki þegar þangað er komið.