Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 8
Visir. Fimmtudagur 2. október 1975
FiUGMAL
r
Umsjón Oli Tynes
Pon Am flugstjórinn
og gomli
flugbóturinn
Hann var búinn að vera
flugstjóri hjá Pan Ameri-
can i mörg ár og átti að baki
þúsundir flugtima á Boeing 707
og öðrum farþegaþotum. Svo
fór hann i fri til Jómfrúreyja og
þar rakst hann á gamlan
Grumman Goose flugbát.
Hann hafði ekki flogið
Grumman Goose siðan hann var
strákur en gamla „ástin” bloss-
aði strax upp að nýju. Hann
keypti þvi gömlu gæsina og
skemmti sér konunglega við aö
fljúga leiguflug á henni i sumar-
friinu. Satt að segja varð hann
steinhissa á þvi hverjar viötök-
urnar urðu. Það liðu ekki nema
nokkrir dagar þangað til allt var
fullbókað.
Visir að flugfélagi
Aður en hann vissi af varö
gamla gæsin orðin visir aö flug-
vélagi. En hann varð að halda
aftur til Pan American, svo
hann réði flugmann til að halda
starfseminni áfram.
Farþegunum hélt áfram að
fjölga, svo hann varð að kaupa
aðra Grumman Goose og svo
enn aðra.
Hann gat auövitað litið verið
þarna sjálfur og það vantaöi
flugmenn og hitt og þetta annað.
Þá datt honum snjallræði i hug.
Hann lét það spyrjast meðal
kolleganna að það væri skortur
á flugmönnum til að fljúga
Grumman Goose flugbátum á
Jómfrúreyjum.
Hann fékk engan frið næstu
daga, þvi flugstjórar Pan
American hringdu I hann nætur
sem daga, til aö tryggja sér
starf. Þeir fengu ekkert kaup,
en það hefði ekki getað skipt
minna máli.
Borðalagðir
bátaflugmenn
Charles Blair heitir hann,
stofnandi flugfélagsins, sem nú
heitir Antilles Air Boats. Og
Charles Blair þurfti ekki að
ANTILLES m BOATS
Charles Bleir (standandi) og annar flugstjóri frá Pan American, setja eldsneyti á fyrstu „gæsina’
mm
Gæsin i fiugtaki i höfninni á St. Croix.
kviða flugmar.naskorti meðan
hann var að byggja upp litla
flugfélagið sitt. Oftast verða
smáfélög að byggja starfsemi
sina i fyrstu á ungum mönnum
sem enn eru að læra ýmislegt i
sambandi við flugið. Flugmenn-
irnir sem Blair hafði I sinni
þjónustu höfðu hinsvegar að
baki fimmtán til tuttugu þúsund
flugtlma.
Viðgerðarmenn og
bátsstjórar
Þeir sluppu heldur ekki við
flugið eitt. Þeir þurftu lika að
hjálpa til við viðhaldið á flug-
vélunum og að þvo af þeim salt-
ið eftir daginn. Þeir þurftu að
selja farmiða og stjórna bátun-
um sem fluttu fólkið út að flug-
bátunum.
En þeir buðu ekki upp á neinn
lúxus og enginn virtist kæra sig
um hann. Einn tuttugu þúsund
tima flugstjóri sagði: „Eina
þjónustan sem við veittum far-
þegunum var að ýta undir boss-
ann á þeim þegar þeir klöngr-
uðust úr bátnum, upp i flugvél-
ina.
Stækkaði og stækkaði
En öllum virtist standa á
sama um þjónustuleysið og
Antilles Air Boats stækkaði og
stækkaði. Það var farið að halda
uppi föstum áætlunarferðum til
nærliggjandi eyja i Karabiska
hafinu og það var alltaf upp-
pantað.
Blair hélt þvi áfram að kaupa
Grumman Goose flugbáta.
Hann skemmti sér lika alveg
konunglega og ákvað loks að
hætta störfum hjá Pan Ameri-
can og taka við sem yfirflug-
stjóri og framkvæmdastjóri hjá
sjálfum sér. Hann og kona hans,
leikkonan Maureen O’Hara,
fluttust þvi til St, Croix.
Og stækkaði enn
t dag rekur Antilles Air Boats
tuttugu Grumman Goose flug-
báta, sem hver tekur tiu far-
þega. Þar að auki er það með
eina Super Catalinu sem tekur
28 farþega og nýlega var keypt-
ur fjögurra hreyfla Sikorsky
2-44 sem tekur 47 farþega.
Gamla gæsin sem Blair sá i
sumarfrlinu sinu hefur eignast
marga unga.
Vildu ekki
hœtto á
margar
lendingar
Suðurríkja flugher- gamalla herflugmanna
inn, nefnir sig hópur sem tóku þátt i siðari
B-29 Superfortress vél suðurrikjaflughersins.
heimsstyrjöldinni.
Meðal þeirra eru
margir garpar, en lik-
lega má þar frægastan
nefna Jimmy Doolittle,
sem stjórnaði fyrstu
loftárásinni á Tokyo.
Hann lagði upp með B-25 flug-
sveit sina frá flugmóðurskipi og
þótti það hið mesta ævintýri, þvi
B-25 var stór og þung (á þeirra
tima mælikvarða) „landflug-
vél.”
Þessar gömlu kempur hafa
það „hobbi” að safna gömlum
herflugvélum. Þeir eru að reyna
að ná I að minnsta kosti eitt
sýnishorn af öllum þeim vélum
sem tóku þátt i styrjöldinni.
Þeir fara i söfnunarferöir út
um allan heim og eru sumar
þeirra hinar ævintýralegustu.
Þeir hafa þegar safnað að sér
tugum véla, sem öllum er haldið
i fyrsta flokks flughæfu ástandi.
Nýjasta vélin þeirra er B-29
Superfortress, en það var
stærsta fjögurra hreyfla
sprengjuflugvélin sem tók þátt I
hildarleiknum. Henni var beitt
i Kyrrahafsstriðinu gegn Japön-
um og það var vél af gerðinni
B-29 sem varpaði fyrstu kjarn-
orkusprengjunni á Hiroshima.
Fulltrúar Suðurrikja flug-
hersins fóru til China Lake I
Bandarikjunum, þar sem flot-
inn hefur skotæfingastöð. B-29
vélin sem þeir fengu átti einmitt
að verða skotmark til æfinga
fyrir nýja sjóliða.
Það var auðvitað byrjað á að
fara i smá reynsluflugferð. En
þegar upp I loftið var komið,
fóru þeir að velta málinu fyrir
sér. Enginn þeirra hafði nefni-
lega flogið svona vél áður. Þeir
ákváðu þvi að minnka áhættuna
af þvi að vera alltaf að lenda
flugvél sem þeir kunnu litið á,
með þvi að fljúga henni bara
beint heim til Texas. Það gerðu
þeir og þessi eina lending sem
þeir sluppu með, með þessu
móti, tókst ágætlega.
,/LÍTIL"
RISAÞOTA
Boeing 747 er stærsta farþegaþota i hcimi. Nýlega var kynnt
minni gerð af henni og er hún kölluð 747 SP. Skammstöfunin
stendur fyrir „Special Performance” og er á þvi byggð að þótt sú
litla hafi samskonar hreyfla og sú stóra er hún 47 fetum styttri.
Hún er þvi bæði hraðfleygari og langdrægari, þótt hún taki færri
farþega.
FLUGSÍÐU-
BRANDARINN
Þaö var gífurleg um-
ferð um Kennedyflugvöll
og margar vélar biðu í
„stakknum" eftir að fá
að lenda. Flugturninn
fékk tilkynningu:
,,Ég er í biðflugi í
fimmþúsund fetum."
Það var andartaks þögn
en svo kom skræk og
skelfingu lostin rödd yfir
I jósvakann:
,, Þú getur ekki verið í
fimmþúsund fetum. ÉG
er í biðflugi í fimmþús-
und fetum."
Það varð aftur andar-
taks þögn en svo kom
fyrri röddin aftur: ,,Þú
ert aðstoðarf lugmaður-
inn minn, fiflið þitt."