Vísir - 02.10.1975, Side 13
er búinn ab krrta m»g af og
rú eft«r aft gnta sparkaöAlli
il ekki missu sUrfíft., þa8 eru
<i peningarn- ir.,,„
Hér er skýrslan
um siöasta Iðik
Hamborogh Alli!!
"Þakka þér^S
fyrir Bob... |
NáÖu strákunum
saman
gjörlega óverjandi fyrir Sigurð
Dagsson.-
Jóhannes átti mörg góð tæki-
færi i leiknum, en tókst ekki að
skora fleiri mörk. Grimur
Sæmundsson varði t.d. einu sinni
frá honum á linu með þvi að
skalla knöttinn yfir þverslá, og
Sigurður Dagsson var einnig vel
staðsettur þegar Jóhannes komst
f færi i fyrri og siðari hálfleik.
Valsmenn léku allan timann
sóknarleik. Var það hetjulega
gert, en bar engan annan árangur
en aðfá á sig mörg mörk. Má með
sanni segja að þeir hafi aldrei átt
glætu i leiknum — þó að þeir
sýndu ágætan samleik á köflum
úti á vellinum.
Aðeins tvivegis komust þeir
nálægt þvi að skora, en i bæði
skiptin björguðu leikmenn Celtic
á siðustu stundu. f fyrra skiptið
skoti . frá Atla Eðvaldssyni en
i siðara skiptið eftir að Hermann
Gunnarsson hafði komist i gegn.
Eftir að Jóhannes hafði skorað
mátti Sigurður Dagsson fjórum
sinnum sækja knöttinn i netið hjá
sér i fyrri hálfleik — og svo aftur
tvisvar i siðari hálfleik.
Dalglis skoraði mark númer
tvö með skalla, en McClusky það
þriðja úr vitaspyrnu eftir að
Sigurður hafði haldið Dalglis rétt
við markið. Jóhannes átti heiður-
inn af fjórða markinu er hann
■ ■■■ — ■■■ ■■ ■
Björn BJöndal
skrifar fró
Glasgow....
sendi knöttinn á milli manna á
Hood, sem skoraði með þrumu-
skoti. Dean skoraði svo fimmta
markið eftir fyrirgjöf frá Hood.
Leikmenn Celtic tóku lifinu
með ró i siðari hálfleiknum. Ekki
voru samt margar minútur liðnar
þegar þeir komu knettinum i net-
ið hjá valsmönnum i sjötta sinn i
leiknum — Callaghan sá um það
eftir að hafa leikið varnarmenn
Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975
Visir. Fimmtudagur 2. október 1975
Sovétskur sigur á HM
Eins og við var búist sigruðu
sovésku stúlkurnar i heims-
meistarakeppninni i körfuknatt-
leik kvenna, sem lauk i gærkvöldi
I Cali i Colombiu.
Þær léku til úrslita við Suður-
Kóreu og sigruðu með miklum
yfirburöum eins og i öllum leikj-
um sinum i undankeppninni, sem
staðið hefur yfir i Colombiu sið-
ustu daga.
Þær voru 15 stigum yfir i hálf-
leik — 57:42 — en sigruðu með 25
stiga mun — 103:78. Þetta var i
sjötta sinn sem sovésku stúlkurn-
ar sigra i heimsmeistarakeppn-
inni i körfuknattleik, en þetta var
sjöunda HM-mótið sem haldið er.
Sigurður Dagsson hafði nóg að gera i leiknum gegn Celtic I gærkvöldi.
Hann fékk lika að sækja knöttinn sjö sinnum i markið hjá sér, og hefur
hann sjaldan þurft að gera það eins oft i öll þau ár, sem hann hefur
staðið i marki fyrir Val eða landsliðið.
Vals sundur og saman. Siðasta
markið i leiknum kom þegar um
10 minútur voru eftir, og var þar
Hood aftur að verki — eftir send-
ingu frá Dalglis.
Fleiri urðu mörkin ekki, og má
segja að valsmenn hafi sloppið
vel með þessa „súpu”. Enginn
bar af i valsliðinu i þessum leik.
Sigurður Dagsson hafði mikið að
gera og stóð vel fyrir sinu og
verður ekki sakaður um mörkin.
Dýri Guðmundsson var einnig
góður og sömuleiðis Hermann
Gunnarsson, sem þó hafði litið að
gera þarna i framlinunni.
Jóhannesi Eðvaldssyni gekk bet-
ur að skora fyrir Celtic i leiknum
gegn Val i gærkvöldi en i leiknum
hér heima, þar sem honum mis-
tókst m.a. tvær vítaspyrnur.
Fó 2 milljónir
fyrir sigurinn
KR _
Ármann
Fram
1R
Leiknir
B-RIÐILL:
Vikingur
Valur
Þróttur
Fylkir
Næstu leikir:
Samkvæmt skránni eru næstu
leikir á sunnudaginn kemur i
Laugardalshöllinni. 1R—Leiknir
kl. 19.00 og KR—Ármann strax á
eftir.
Jafntefli í
Frakklandi
Ahugamannalándslið Frakk-
lands og Austurrikis gerðu jafn-
tefli 1:1 i landsleik I knattspyrnu i
Thionville i Frakklandi i gær-
kvöldi.
Bæði mörkin voru skoruð i fyrri
hálfleik, og voru frakkarnir á
undan að skora.
hvorki hann né aðrir bjuggust við
að hún yrði svona há.
Hef engon
áhuga á
Dundee Utd.
„Ég fór á tvær æfingar hjá
Dundee United til að sjá hvernig
þetta væri, en ég hef ekki hinn
minnsta áhuga á því að gerast at-
vinnumaður” sagði Sigurður
Haraldsson, vara m ark vörður
Vals, er við töluðum við hann hér
i Glasgow i gær.
,,Ég fór utan til að sjá hvernig
þetta væri og að athuga með nám
i tannlækningum. Það kostaði
ekkert að skoða þetta hjá þeim,
en lengra náði það ekki”.
Sigurður fór utan með Dundee
United eftir leikinn við Keflavik,
ásamt Óskari Tómasyni. Óskar
mun ilengjast eitthvað hjá
Dundeo og fær að leika með vara-
liðinu n.k. laugardag, en Sigurður
ætlar að fara aftur heim með
Valsmönnunum.
Enska knattspyrnusambandið
hefur tilkynnt, að það muni
greiða leikmönnum sinum fimm
þúsund sterlingspund — nær 2
milljónir islenskar — ef þeir sigri
i Evrópukeppni landsliða i knatt-
spyrnu. Er þetta hæsta greiðsla
sem englendingar hafa boðið
landsliðsmönnum sinum til þessa
fyrir að sigra i móti.
Hver leikmaður mun fá 2.000
sterlingspund fyrir að sigra i riðl-
inum,sem England er i, og er allt
útlitfyrir að svo verði, þvi að þeir
eru þar enn i efsta sæti.
Fyrir sigur i átta liða úrslitun-
um á hver leikmaður að fátOOO
sterlingspund, önnur þúsund
fyrir sigur i undanúrslitunum og
loks siðasta þúsundið fyrir að
sigra i sjálfum úrslitaleiknum.
Don Revie fór fram á að
greiðsla til leikmanna sinna i
landsliöinu yrði hækkuð eftir að
hann tók við af Alf Ramsey — en
,,Ég var búinn að segja það
heima á islandi, að við myndum
sigra i þessum leik hér á Park-
head með sex til sjö marka mun,”
sagði Jöhannes Eðvaldsson — is-
lendingurinn sem leikur með
skoska liðinu Celtic — eftir 7:0
sigur Celtic yfir Val i Evrópu-
keppni bikarmeistara hér i
Glasgow i gærkvöldi.
,,Ég vissi það að um leið og
strákarnir kæmust á almennileg-
an völl gætu þeir sýnt hvað i þeim
býr, en það gátu þeir ekki á
Laugardalsvellinum, sem er ólikt
verri en þessi völlur. Það var
gaman að þessum leik og þá ekki
siður að skora fyrsta mark leiks-
ins — þótt það hafi verið á móti
minum gömlu félögum — þvi að
það var smá-sárabót eftir mistök-
in þegar ég lét vin minn Sigurð
Dagsson verja frá mér vitið i
fyrri leiknum.”
Jóhannes skoraði markið á sjö-
undu minútu leiksins. Wilson
sendi þá knöttinn úr aukaspyrnu
fyrir markið, og skoraði Jó-
hannes með þvi að „moka”
boltanum upp i markhornið al-
Gilroy vill
ekki aftur
til íslands
Menn voru ekki á einu máli
um ágæti þeirrar ákvörðunar
Valsþjálfarans Joe Gilroy að
skipa sinum mönnum að leika
sóknarleik á móti Ceitic.
Voru menn almennt á þvi,
að Válsmenn hefðu ekki efni á
svoleiðis „lúxus” og töldu
sumir að Gilroy hefði þarna
aðeins verið aö sýnast fyrir
löndum sinum.
Hann vildi ekkert um þetta
ræöa eftir leikinn og var ekki
beint i góðu skapi er við
spjölluöum við hann siðar um
kvöldið — sjálfsagt fengið að
heyra þaö frá einhverjum, aö
þetta hafi verið mistök hjá
honum.
Við spurðum hann að þvi
hvort hann ætlaði að vera með
Valsmennina aftur næsta ár,
en hann þvertók fyrir það.
„Ég ætla ekki.aftur til ts-
lands”, sagði hann. „Mér hef-
ur verið boðiö að taka viö is-
lenzka landsliðinu af Tony
Knapp og einnig hefur mér
verið boðið að þjálfa annað 1.
deildarliö. En ég mun hvorugu
tilboðinu taka, þvi að ég hef
engan áhuga á aö fara aftur tii
islands'.!”
Ekki er enn vitað hvenær
bandariski risinn sem leika á
með KR i körf uboltanum f vetur
er væntanlcgur til landsins. KR-
ingarnir búast við honum á
morgun, en þeirra fyrstu leikir
verða nú um helgina. Þá leikur
KR m.a. við Armann og þar
mætast atvinnumennirnir að
vestan — Carter úr KR og
Rodges úr Armanni — þ.e.a.s. ef
Carter verður kominn. Það er
Rodges sem er á þessari mynd
ásamt þjálfara sinum, Ingvari
Sigurbjörnssyni, á fyrstu æfingu
hans með Armanni, scm var i
fyrrakvöld. Ljósmynd Einar...
Jóhannes opnaði botn-
lokið hjó Valsmönnum!
— Skoraði fyrsta mark Celtic í leiknum við gömlu félagana fró íslandi,
og síðan flœddu mörkin yfir þó — alls urðu þau sjö talsins
og var það síst of mikið miðað við tœkifœri
Hinn skotharði og eldsnöggi leikmaður KR, Simon Unndórsson, er hér kominn i gott skotfæri I leiknum viö IR f gærkvöldi og broti úr sekúndu
siöar en Einar ijósmyndari okkar náöi að smella af, steinlá boltinn f netinu hjá ÍR-ingum.
HILMAR SKORAÐI EFTIR
AD LEIKNUM VAR LOKIÐ
Það nœgði KR til að sigra ÍR og komast í úrslit á móti Víking í Reykjavíkurmótinu
KR-ingar tryggðu sér svo gott
sem sigurinn i A-riðli Reykja-
vikurmótsins i handknattleik i
gærkvöldi er þeir sigruðu ÍR með
einu marki — 23:22 — f hörku
STADAN
Staðan f Reykjavikurmótinu
eftir leikina í gærkvöldi:
Arm ann—Leiknir
KR—1R
A-RIÐILL:
22:17
23:22
spennandi og skemmtilegum leik.
Ármann er eina liðið sem getur
komið i veg fyrir að KR leiki til
úrslita við Viking í mótinu, en til
þess verða ármenningar að sigra
KR-inga með miklum mun i
síðasta leiknum og komast þá i
úrslit á betri markatölu.
Þarf það að vera stórsigur, þvi
að KR-ingar eru með ellefu mörk
I plús eftir leikinn I gærkvöldi en
Ármann með fimm mörk i plús
eftir fimm marka- sigur yfir
Leikni í gærkvöldi. Voru ármenn-
ingar i hálfgeröu basli með breið-
holtsbúana lengst af i leiknum —
og var það ekki fyrr en undir lokin
— orðnir tveim færri — að þeim
tókst að skjótast almennilega
fram úr þeim.
KR-ingarnir höfðu yfir á móti
1R langt fram i siðari hálfleik —
11:9 I leikhlé og 15:13 þegar 20
minútur voru eftir. Þá skoruðu
ÍR-ingar tvö mörk — 15:15 — og
komustyfir 19:18 þegar 8minútur
voru til leiksloka.
Sigur þeirra virtist vera i húsi
þegar þrjár minútur voru eftir af
leiknum, þvi að þá voru þeir
tveim mörkum yfir — 21:19. En
KR-ingarnir gáfust ekki upp og
náðu að jafna 22:22 þegar 26
sekúndur voru til leiksloka.
Þá fengu IR-inga'r boltann en
misstu hann er Guðjón Marteins-
son átti vafasamt skot á markið,
sem Emil Karlsson, sem nú er
kominn aftur til KR, átti auðvelt
með að verja. Hann greip boltann
og sendi hann þegar fram á tvo
KR-inga, sem voru komnir fram
yfir miðju.
Þar var sá sem greip boltann
snúinn niður af einum IR-ingi og
dómararnir dæmdu umsvifalaust
vitakast um leið og flauta tima-
varðarins gall.
Þjálfari Vals — Hilmar Björns-
son — fékk það vandasama hlut-
verk að taka vitið, en honum
brást ekki bogalistin — sendi bolt-
ann i vinstra markhornið við mik-
inn fögnuð KR-inga. —klp —
Eitt frá
íslandi
í hópnum
Akranes er eina islenska liðið sem er i hin-
um stóra hóp evrópskra knattspyrnuliða,
sem hefur tryggt sér rétt til að leika i annarri
umferð i Evrópumótunum þrem. 1 gærkvöldi
voru leiknir yfir 60 leikir i þessum mótum, og
horfðu á þá milljónir manna i flestum lönd-
um Evrópu. Aðcins einn leikur er eftir —
leikur Banja Luka og Rumelange i Evrópu-
keppni bikarmeistara, en hann fer fram i
kvöld. Þau lið sem komust i aðra umferð i
þessum þrem stærstu knattspyrnumótum
Evrópu, eru þessi:
Evrópukeppni meistaraliða
Akranes, islandi.
Malmö FF Sviþjóð.
Hajduk Split, Júgoslvaiu.
Juventus, italiu.
Borussia Mönchengladbach, Vestur-Þýska-
landi.
RWD Molenbeek, Belgiu.
Bayern Munchen, Vestur-Þýskalandi.
PSV Eindhoven, Holiandi.
Benefica, Portugal.
Ruch Chorsow, Póllandi.
Derby County, Englandi.
Dinamo Kiev, Sovétrikjunum.
Glasgow Ranger, Skotlandi.
AS St Etienne, Frakklandi.
Ujpesti Dozsa, Ungverjalandi.
Real Madrid, Spáni.
Evrópu keppni bikarmeistara
Boavista, Portugal.
West Ham United, Englandi.
RC Lens, Frakklandi.
AC Fiorentina, ttalfu.
Wrexham, Wales.
Sturm Graz, Austurriki.
Sachsenring Zwickau, Austur-Þýskalandi.
Atlentico Madrid, Spáni.
Ararat, Sovétrikjunum.
Haldas Vasutas, Ungverjalandi.
RSC Anderlecht, Belgiu.
Eintracht Frankfurt, Vestur-Þýskalandi.
Celtic, Skotlandi.
Stal Rzeszow, Póllandi.
FC De Haag, Hollandi.
UEFA-keppnin
Spartak Moskva, Sovétríkjunum.
Hertha Berlin, Vestur-þýskalandi.
FKS Stal, Póllandi.
Carl Zeiss Jena, Austur-þýskalandi.
Royal Antwerp, Belgiu
Ajax, Hollandi.
Vaxjöe, Sviþjóð.
Dundec United, Skotlandi.
Liverpool, Englandi.
Slask Wroclaw, Póllandi.
1. FC Köln, Vestur-Þýskalandi.
Athlone Town, trlandi.
Ipswich Town, Englandi.
FC Brugge, Belgiu.
San Sebastian, Spáni.
FC Porto, Portugal.
SV Hamborg, Vestur-Þýskalandi.
AC Milan, ttaliu.
Sportin, Portugal.
Inter Bratislava, Tékkoslovakiu.
Honved Budapest, Ungverjalandi.
MSV Duisburg, Vestur-Þýskalandi.
Barcelona, Spáni.
AS Roma, ttaliu.
Dynamo Dresden, Austur-Þýskalandi.
AEK Aþenu, Grikklandi.
Galatasary, Tyrklandi.
Lazio Roma, ttaliu.
Vasas Budapest, Ungverjalandi.
Torpedo Moskva, Sovétrlkjunum.
Leviski Spartak, Búlgariu.
Red Star, Júgoslaviu.