Vísir - 06.10.1975, Síða 4

Vísir - 06.10.1975, Síða 4
4 Vlsir. Mánudagur 6. október 1975 Veizlusalir Hótel Loftleiöa standa öllum opnir HOTEL LOFTLEIÐIR Raftæknir — Rafvirki Raftæknir eða rafvirki óskast til starfa í heimtaugaafgreiðslu vorri. Starfið krefst m.a. hæfni til skipulegra vinnubragða og snyrtimennsku við gerð verkblaða, auk tjáningarhæfni gagnvart verktökum og öðrum viðskiptavinum. Laun samkvæmt launakerfi Reykjavikur- borgar Nánari upplýsingar varðandi starfið eru veittar á skrifstofu vorri i Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 4. hæð og þar fást einnig umsóknar ey ðublöð. p\3 f aIvciih iJL 1REYKJAVÍKUR RAFMAGNS VEITA FÓLKSBILADEKK - VÖRUB’LADEKK - TRAKTORSDEKK Fyrirliggjandi flestar stæröir af japönskum TOYO hjólbörðum. Einnig mikiö úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæöu veröi. Sendum i póstkröfu. HJÓLBARÐASALAN BORGARTUNI 24 Slmi 14925. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 34., 37. og 39 tbl. Lögbirtinga- blaös 1975 á hluta I Álfheimum 56, þingl. eign Guömund- ar Norödal o.fl., fer fram eftir kröfu Jóns E. Ragnarsson- ar hrl. á eigninni sjálfri, miövikudag 8. október 1975 kl. 11.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 26., 28. og 30. tbl. Lögbirtingablaös 1975 á hluta i Hllðargeröi 25, þingl. eign Einars H. Guðmunds- sonar, fer fram eftir kröfu Baldvins Jónssonar hrl, á eign- inni sjálfri, miövikudag 8. október 1975 kl. 16.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. [HORNKLOFIJ Ólafi þarf ekki að lá aö gengið sé fram hjá flokks- bræörum hans við embættis- veitingar, a.m.k. ekki þar sem hann ber nokkra ábyrgð. Ólafur ber ábyrgð á 16 skipunum i sýslumanna, bæjarfógeta, dóm- ara-og saksóknaaembætti. Þau eru: 1. Saksóknari rfkisins, 2. Yfirborgardómarinn i Reykjavik 3. Hæstaréttardómari 4. Bæjarfógetinn á Akranesi 5. Sýslumaðurinn i Dalasýslu 6. Lögreglustjórinn I Bolunga- vík 7. Bæjarfógetinn á ísafirði 8. Sýslumaðurinn i Stranda- sýslu 9. Sýslumaðurinn i Þingeyjar- sýslum 10. Lögreglustjórinn á Horna- firði 11. Lögreglustjórinn á. Kefla- víkurflugvelli 12. Bæjarfógetinn í Keflavfk 13. Bæjarfógetinn i Bolungavík 14. Sýslumaðurinn i Snæfells-og Hnappadalssýslu 15. Bæjarfógetinn I Vestmanna- eyjum 16. Yfirsakadómarinn i Reykja- vik og svo réði ólafur skipun toll- stjórans iReykjavik. Þrettán af þessum sautján embættis- mönnum eru framsóknarmenn, þrfr sjálfstæðismenn og einn óflokksbundinn vinstrimaður. Framsóknarmenn eru hins veg- ar I miklum minnihluta meðal lögfræðinga. Er nú svo komið, að þegar rætt er um laus emb- ætti, er heyra undir Ólaf Jó- hannesson, er vanalegasta mót- báran: Hann uppfyllir ekki skil- yrðin, — hann er ekki fram- sóknarmaður. Hin þröngu sjónarmið Fljótamannsins i embættisveitingum verða þó vlðsýn ef borin eru saman við menntamálaráðherrann. Sjónarmið hans draga svo dám af hinni þröngu útsýn frá bæjar- hellunni I Mjóafirði, að undrun sætir.Þessa dagana er ráðherr- ann önnum kafinn að veita emb- ætti fræðslustjóra, og hefur enn enginn utan raða framsóknar fengið embætti. Þessi embætti eru skipuð að fengnum tillögum fræðsluráða viðkomandi kjör- dæma. Hafa framsóknarmenn meirihluta I þeim flestum. Búið er að veita þrjú embætti. A Austurlandi kusu framsóknaivx menn traustan framsóknar- mann til starfans, og var engin fyrirstaða hjá ráðherranum að staðfesta tilmæli fræðsluráðs. A Suðurlandi þurfti að stinga dúsu upp I framsóknarmann, sem ekki fékk nógu hátt sæti á lista, og þess vegna var nauð- synlegt að ganga fram hjá hæf- asta manninum. Vegna innan- flokksdeilna hafði þó einn fram- sóknarmannanna hugmyndir um að kjósa eftir sannfæringu og þar með hinn hæfa umsækj- anda. Þá var brugðið á það ráð að biða eftir þvi að maðurinn færi i fri úr kjördæminu og á meðan var framsóknarmaður- inn kosinn. A Vesturlandi var einn um- sækjanda maður, sem ekki upp- fyllti lagaskilyrðin. Honum hafði verið hafnað sem skóla- stjóra við Samvinnuskólann. Móti honum sóttu einn prestur, doktor i uppeldisfræðum, einn yfirkennari og þrlr skólastjórar grunnskóla. En öllum þessum mönnum var hafnað til þess að kjósa eina framsóknarmanninn I hópnum, — hinn vonsvikna umsækjanda skólastjóra- stöðunnar i Bifröst. Rétt er að taka fram, að sjálfstæðismenn studdu þessa hneykslisveitingu einhuga. Framsóknarmenn eiga sér kosti eins og aðrir menn. Þeim þykir t.a.m. flest- um vænt um börnin sin, og eiga sér hugmyndir um þjóðlegan metnað og nauðsyn framfara, aö ekki sé talað um hinn brenn- andi áhuga á viðgangi Sam- bandsins. En það að vera fram- sóknarmaður er þrátt fyrir allt þetta alls ekki spurningin um afstöðu til þjóðmála, — heldur spuming um innræti. PÉTUR INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1975; 2.FL. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Með heimild í lögum nr. 11/ 1975, auk heimilda eldri laga til þess að gefa út ný spari- skírteini í stað þeirra, sem upphaflega voru útgefin og innleyst hafa verið að við- bættri verðlagsuppbót, hefur fjármálaráðherra, f. h. ríkis- sjóðs, ákveðið útgáfu og sölu á spariskírteinum ríkissjóðs 1975 — 2. fl., áð fjárhæð allt að 300 millj. kr. Kjör skírteina eru í aðalatr- iðum þessi: Meðaltalsvextir eru um 4% á ári, þau eru lengst til 18 ára og bundin til 5 ára frá útgáfu. Skírteinin eru verðtryggð og er grunnvísitala þeirra sú byggingarvísitala, sem Hag- stofan skráir miðað við 1. nóvember n. k. Skírteinin eru skattfrjáls og framtalsfrjáls á sama hátt og verið hefur. Þau skulu skráð á nafn. Skírteinin eru gefin út í þremur stærðum, 5.000, 10.000 og 50.000 krónum. Sala skírteinanna hefst 7. þ. m., og eru þau til sölu hjá bönkum, bankaútibúum og innlánsstofnunum um allt land svo og nokkrum verðbréfa- sölum í Reykjavík. Sérprentaðir útboðsskilmál- ar liggja frammi hjá þessum aðilum. Október 1975. fj®) SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.