Vísir - 06.10.1975, Síða 5
Vísir. Mánudagur 6. október 1975 5
'LÖND í MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
Stórsigur
Kreisky
kanslara
og jafnað-
armanna
Jafnaöarmenn Austurríkis
eru sigri hrósandi eftir kosning-
arnar um helgina sem tryggðu
Bruno Kreisky kanslara þeirra
fjögurra ára stjórnarsetu til
viðbótar. — Þetta eru þriðju
kosningarnar i röð, þar sem
jafnaðarmenn fara með sigur af
hólmi.
Þeir höfðu hreinan meirihluta
á þingi, þar sem 183 fulltrúar
eiga sæti, og halda honum á-
fram, eftir sigurinn i gær, þar
sem þeir fengu meira atkvæða-
magn en nokkru sinni áður, eða
50,6%.
Úrslitin þykja vera persónu-
legur sigur fyrir hinn 64 ára
gamla kanslara, sem hratt at-
lögu stjórnarandstöðunnar, en
hiin hefur einkum veist að
stefnu hans i efnahagsmálum.
Greinilegt er, að dr. Kreisky
ætlar að sigla meðan þessi byr
endist. Lýsti hann'þvi yfir i gær-
kvöldi, þegar úrslitin lágu fyrir,
að hann hefði ekki hugsað sér að
draga sig i hlé, áður en næsta
kjörtimabil verður á enda.
Hann lét að þvi liggja, að
vænta mætti breytinga á stefnu
stórnarinnar. ,,Ef umbóta
verður þörf, munum við reyna
þær,” sagði hann.
Talning utankjftrstaðaat-
kvæða lýkur ekki fyrr en á
morgun, en þótt þau séu um
270.000 talsins, þykir ekki lik-
legt, að hlutföllin haggist. Á
meðan eru úrslitin þau, að jafn-
aðarmenn fengu 94 þingsæti,
ihaldsmenn 78 og frjálslyndi
frelsisflokkurinn 11 þingsæti.
Kosningatölur sýndu litlar
breytingar frá siðustu kosning-
um 1971, enda þykja Austur-
rikismenn með eindæmum
flokkstryggir kjósendur.
Jafnaðarmenn bættu þó við
sig 1,3% f Vinarborg, sem er
fjölmennust niu kjördæma
Austurrikis.
Dr. Kreisky og flokkur hans
hafa nú farið með sigur af hólmi
þrennar kosningar i röð. Fáir
leiðtogar aðrir i Vestur-Evrópu
geta státað af svo öruggu fylgi.
Flestir höfðu búist við þvi, að
á timum efnahagserfiðleika og
samdráttar hefði stjórnarflokk-
urinn tapað einhverju fylgi, og
komu þvi niðurstöður kosning-
anna nokkuð á óvart. Er dr.
Kreisky þakkað þetta, þvi að
hann nýtur mikillar persónu-
legrar virðingar langt út fyrir
raðir flokksmanna sinna, og
hefur dregið að flokkunum at-
kvæði úr röðum hinna.
Ijrslitin eru mikil vonbrigði
dr. Josef Taus, hinum 42 ára
gamla leiðtoga Ihaldsflokksins,
sem verður að biða að minnsta
kosti fjögur ár til viðbótar, áður
en hann getur látið sig dreyma
um aðkomasti stjórnaraðstöðu.
Dr. Taus er nylega tekinn við
forýstu ihaldsmanna.
Bruno Kreisky kanslari:
Persónufylgi hans er þakkað
sigurinn að þessu sinni.
Horfði ó konu
sína og börn
brenna
Átakanlegt slys varð i
Philadelphiu i gær, þegar
ibúöarhús brann þar, en i eld-
inum fórst húsmóðirin, tvær
dætur hennar og sonur ná-
grannans. Húsbóndanum var
bjargaðút á nærklæðunum, og
scst hann hér á myndinni i
hjálparvana neyð sinni horfa á
sina nánustu brenna inni, og
leitar örlitillar huggunar i
handtaki nágrannans, sem um
leið verður að sefa konu sina,
þvi að sonur þeirra er lika inni
i brennandi húsinu.
SKÆRUUÐAR I
ARGENTÍNU
ORÐNIR STÓRTÆKIR
26 manns iétu lifið i árás, sem
vinstrisinna skæruliðar gerðu á
hersveitarbækistöð i Formosa i
norðurhluta Argentinu i gær-
kvöldi.
í bardaganum, sem var hinn
grimmilegasti er háður hefur
verið milli þessara aðila féllu
elíefu hermenn i valinn og
fimmtán skæruliðar.
Samtimis þessu gerði annar
hópur skæruliða árás á flugvöll-
inn I Formosa og felldu þar einn
hermann.
En þriðji hópur skæruliðanna
rændi meðan þessu fór fram
Boeing 737 farþegaþotu og
neyddu hana til að lenda á flug-
veílinum i Formosa. Tóku þeir
þar upp i flugvélina félaga sina,
sem komustaf frá bardaganum i
herstööinni og flugu með þá suður
iland, þar sem þeir hurfu i felur.
Það er talið, að 60 skæruliðar
eða meir hafi tekið 1 þátt i árás-
inni á herstöðina. Þegar árás-
inni var hrundið, flúðu sumir til
fjalla, en öðr.um tókst að komast
á flugvöllinn, þar sem flugvélin
beið þeirra til taks.
Hratt árósinni
Hér fyrir neðan er brugðið
upp svipmynd úr fátækra-
hverfi Baltimore,þar sem lög
frumskógarins gilda, eins og
viða i ámóta skuggahverfum.
— Hver er sjálfum sér næstur.
Aðgerðarlausir horfa ná-
grannarnir á Ernest Mitchell
(52 ára) reka af höndum af-
brotaunglinga, sem ætluðu að
ræna af honum atvinnuleysis-
styrknum. Hnifum var brugð-
ið en engan sakaði. — Ræn-
ingjarnir flúðu, en styrkurinn
var örugglega geymdur i
brjóstahaldara .konu
Mitchells.
Sprengjan þeytti jeppanum 20
metra í loft upp
Stjórn Spánar kemur
saman til skyndifundar i
dag til að hugleiða enn
strangari aðgerðir gegn
hryðjuverkamönnum,
eftir sprengingu i gær-
dag, sem varð þrem
þjóðvarðliðum að bana.
Þrátt fyrir mikla andúð, sem
dauðadómarnir á skæruliðum og
aftökur þeirra vöktu erlendis, eru
yfirvöld á Spáni staðráðin i þvi að
halda öfgahópum i skefjum og
búa sig undir að ganga jafnvel
enn lengra til að halda uppi lögum
og reglu.
Þrir lögreglumenn voru myrtir
i Madrid á miðvikudaginn til við-
bótar þeim tólf, sem þegar hafa
látið lifið á þessu ári fyrir hendi
skæruliða.
í gær sprakk sprengja, sem
skæruliðar höfðu komið fyrir á
vegi skammtfrá San Sebastian i
héraði Baska. Þeytti sprengjan
Landrcverjeppa 20 metra i loft
upp. í jeppanum voru fimm þjóð-
varðliðar, og biðu þrir þeirra
bana samstundis. Hinir tveir
særðust alvarlega og liggur annar
milli heims og helju.
17 ARA I FALLÖXSNA
Verjendur sautján ára pilts,
sem dæmdur var til dauða i
Beauvais I Frakklandi í gær fyrir
morð á gamalli konu — munu að
likindum áfrýja dómnum.
„Slikur ddmur vekur hryllings-
viðbrögð. Hann er villimann-
legur,” sagði einn verjenda
piltsins.
1 Frakklandi fara aftökur
fram með fallöxi.
Siðast var táningur leiddur
undir fallöxina 1889 þegar
sautján ára slátrari var dæmdur
til dauða fyrir morð á dyraverði.
Þegar dauðadómurinn var
kveðinn upp yfir piltinum i gær,
féll hann saman i réttarsalnum.
,,Þið getið ekki dæmt mig til
dauða. Ég er undir lögaldri,”
snökti hann.
Hann var fundinn sekur um að
hafa pyntað ogstungið til bana 69
ára konu, sem hann rændi. tveir
félagar hans, sem voru með hon-
um að verki, sömuleiðir undir
lögaldri báðir voru dæmdir i 20
árafangelsi. Fjórði pilturinn fékk
12 ára fangelsi.
Yfirvöld i Frakklandi hafa
staðið uppi ráðalitil gagnvart
auknu ofbeldi unglingaafbrota-
fólks. Hefur fjölgað mjög
hryllingsverkum glæpalýðssem á
úndanförnum árum hefur unnið
þvilikt fólskuverk, að almenning-
ur hefur staðið á öndinni af
harmi, en litlum vörnum hefur
verið viðkomið.
1 sumar hafa verið töluverð
brögð að þvi, að ökufantar hafi
gert sér leik að þvi, að neyða aðra
ökumenn út af hraðbrautunum.
Þannig var ekið aftan á bifreið
brúðhjóna i vor með þeim af-
leiðingum, að billinn þeyttist út af
veginum á miklum hraða og
brúðurin beið bana, en maðurinn
slasaðist alvarlega. — Tilgangur
verksins var ekki annar en hafa
gaman af.