Vísir - 06.10.1975, Page 7

Vísir - 06.10.1975, Page 7
Visir. Mánudagur 6. október 1975 7 Hafsteinn Björnsson miöili er ekki einasta þekktur hériendis, heldur einnig i öörum löndum. Hér á myndinni sést hann á skyggnilýsingafundi, og honum á hægri hönd er Guömundur Jörundsson, en til vinstri séra Sveinn heitinn Vikingur sambandi við trú þeirra á sann- indi dulrænna fyrirbæra. — Tilraunirsem þetta eru ekki einsdæmi, heldur dr. Erlendur á- fram, en hér var þvi bætt inni að inna nemendur eftir hvort þeir læsu bækur um dulræn efni og tryðu á sannindi dulrænna hæfileika. Siðan greindum við fólkið niðri flokka eftir þvi, og það kom ekki einasta á daginn að þeir sem áhugann höfðu náðu svo miklu fleiri réttum lausnum að marktækt samband kæmi i ljós á milli áhugans og forspárhæfileik- ans, heldur voru þeir sem áhuga- lausir reyndust langt fyrir neðan það sem liklegt gat talist, svo þeirra árangur var ekki ómerk- ari, jafnvel merkari, þótt á nei- kvæðan hátt væri. — Hvaða skólafólk var þetta? — Gr Háskóla íslands, Kenn- araháskólanum, Húsmæðrakenn- araskólanum, Sjómannaskólan- um, gagnfræðaskólum og skólum á Laugarvatni. Líf eftir dauðann? — Hvað er helst framundan hjá þér i dulsárlarfræðilegum athug- unum hér á landi? Heldurðu kannski áfram þeirri almennu könnun sem þú gerðir i fyrra? — Já, mig langar til að fá gleggri heimildir um ýmislegt sem þar kom fram. Um var að ræða beinar spurningar sem oft var svarað með já eða nei, og ég vil geta kafað dýpra oni það sem þetta fólk hefur i pokahorninu. Mestan hug hef ég á þvi að heyra nánar af reynslu þess stóra hóps sem telur sig hafa orðið varan við framliðið fólk. Um 31% kváðu svo vera. Þetta er feiknarátór hópur, miklu stærri en i öðrum löndum ef dæma má eftir sambærilegum könnunum. — Þetta var umfangsmikil könnun. — Þetta var held ég sannferð- ugur þverskurður af þjóðinni. Úr- takið var sjötugasti hver maður á aldrinum 30—70 ára, alls um ell- efu hundruð manna, og um niu hundruð svöruðu. Ég vildi helst geta haldið framhaldsathugunum áfram fyrri hluta komandi vetr- ar. En til þess verð ég að fá fólk til aðstoðar, til að mynda nemendur mina. Þetta er feiknar vinna. Sjóður stofnaður — Og til þess þarf fé, Hvernig færðu það? — Við erum búnir að stofna sjóð, einsog frá hefur verið skýrt i fjölmiðlum, til að kosta þessa at- hugun og aðrar slikar i framtið- inni. 1 sjóðstjórn eru þeir dr. Simon Jóh. Ágústsson og séra Jón Auðuns ásamt mér. Dálitið hefur borist af gjöfum i sjóðinn, en þó hverfi nærri nóg tilþess ég geti hafið rannsóknina. Ég þarf að geta greitt sem svarar hálfum launum um hálfs árs skeið. — Þetta útheimtir náttúrlega hárfin visindaleg vinnubrögð. — Já, og lika timafreka eftir- grennslan. — Hvernig hagarðu þessum framhaldsrannsóknum. — Ég þarf að láta ræða við um 150 manns, aðallega i Reykjavik og nágrenni. Um 300 manns af þeim hópi sem könnunin náði til telja sig hafa orðið fyrir reynslu sem bendir til sambands við fram- liðna, þeir skýra það svo sjálfir, og nú er meiningin að rannsaka þessi dæmi nánar, grandskoða hvernig þessi reynsla var, hve- nær hún gerðist, i svefni eða vöku, á nóttu eða björtum degi. Svo læt ég auðvitað skýra grannt frá at- vikinu, en nauösynlegt er, til að geta gert samanburð, að fá ná- kvæmlega sömu spurningum svarað i sem flestum tilfellanna. Ég þarf að fá að vita um sálará- stand mannsins sem hlut á að máli og hvaða samband er milli hans og þess sem hann telur sig hafa orðið varan við. Einnig koma að gagni upplýsingar um þann siðarnefnda. Huglœknar — Hvað hyggstu athuga fleira? — Þessi rannsókn verður látin sitja i fyrirrúmi, en meðal annars langar mig til að hafa tal af þeim sem töldu sig i könnuninni i fyrra hafa notið góðs af hjálp hug- lækna. 41% kváðust hafa leitað til huglækna, og 90% þeirra töldu reynslu sina af þeim jákvæða. Það er girnilegt til fróðleiks hverskonar reynslu þeir hafa orð- ið fyrir og hvers eðlis lækning sú sem þeir tala um hefur að þeirra dómi verið. Annars tel ég þetta fyrst og fremst verkefni fyrir lækna. En svonefndum huglækn- ingum fylgir stundum hugræn reynsla, og þess vegna gef ég þessu sérstaklega gaum. Ef eitt- hvað kæmi athuglisvert i ljós mætti einnig rekja garnirnar úr huglæknunum sjálfum. Huldufólk — Hve margir telja sig hafa séð álfa samkvæmt rannsókn- inni? — Þeir eru nú ekki margir, 5% að ég ætla. — Er trú á álfa eins algeng i öðrum löndum og hér? — Ekki held ég það, nema helst með Irum. Bo Almquist sænskur prófessor á Irlandi i þjóðsagna- fræðum kveður álfatrú Ira og Is- lendinga svipa saman. Ég hef hug á að láta ræða við þá sem segjast hafa séð huldufólk. Það yrði ein af mögulegum rannsóknum i fram- tiðinni. Sýnir ó dauðastund — Nú hefur þú tekið þátt i við- tækum rannsóknum erlendis á sýnum við dánarbeð. Ertu ekki að hugsa um að kanna slikt lika hér- lendis? — Það kæmi seinna. Já, sýnir við dánarbeð hafa verið athugað- ar bæði á Indlandi og i Ameriku. Þá athugun gerðum við Karlis Osis. Hann og samstarfsmenn hans söfnuðu gögnum i Banda- rikjunum, en sameiginlega gerð- um við sömu athuganir á Ind- landi, ég þó meira, og sameigin- lega höfum við verið að vinna úr þessu efni öllu, en þvi er ekki lok- iðm og til stendur jafnvel að við skrifum bók um það. --- Kom eitthvað merkilegt i ljós við þessar rannsóknir? — Það merkasta var að sýnir á dauðastund virtust óháðar töku deyfilyfja og hvort maðurinn þjáðistaf sjúkleika sem orkaði á heilann. Þær virtust aðallega koma þegar hinn deyjandi maður var með skýrri vitund. Þess vegna virðast þær ekki stafa af sjúklegu ástandi. — Yrði þessum athugunum hagað svipað hér og til að mynda á Indlandi? — Ég hef i hyggju að gera ýtar- legri rannsóknir hér. Bæði i Bandarikjunum og á Indlandi byggðist rannsóknin á frásögnum lækna og hjúkrunarkvenna. Margt var langt um liðið, og valt er að treysta um of á minni. Mig langar til og láta þau skrá fyrirbærin um leið og þau gerast. Þessar sýnir eru ekki tiðar og fyrir þvi mundi athugunin taka langan tima. En með þessari að- ferð mætti fá miklu haldbetri upplýsingar um sjúklinginn, um andlegt og íikamlegt ástand hans, og einnig mætti tala við aðstand- endur ef þurfa þætti. — Hvað er mest athugað á dul- • sálarfræðistofnunum útum heim þessi árin? — Aðallega svokölluð Extra Sensory Percetion eða ESP, þ.e. almenn fjarskyggni og hugboð sem nálgast það að vera skynjana sálfræði. Fyrirbærum sem kunna að benda til framhaldslifs hefur hinsvegar mjög litið verið sinnt undanfarna áratugi, en mig lang- ar til að gera mitt til að bæta úr þvi. Sumt af þvi sem við höfum i huga að rannsaka hefur litið sem ekkert verið tekið fyrir erlendis. Athugun á þeim tilvikum þegar menn telja sig hafa oröið vara við framliðna hafa naumast verið gerðar siðan á siðustu öld i Bret- landi, og mér er ekki kunnugt um að staðhæfingar manna um að hafa séð álfa og huldufólk hafi yfirleitt nokkurn tima verið tekn- ar skipulega til athugunar. Deiit um „dultrú" — Hvað segir þú um deilur þær sem orðið hafa á þessu ári hér- lendis um sannindi dulrænna fyrirbæra og annað þarað lútandi, m.a. spurninguna um lif eftir lik- amsdauðann? — Mér finnst þær góös viti. Þær sýna áhuga. En einungis með rannsóknum fáum við haldgóða þekkingu á þvi sem um er deilt. Það þýðir ekkert að deila um ein- berar spekúlasjónir, engin þekk- ing fæst með þvi einu að sitja við skrifborð og velta vöngum. Þetta eru ekki mál sem verða k'önnuð' með rökum, heldur prófunum og athugunum. Þekkingar d þeim verður ekki aflað nema með rannsóknum... Þess skai að lokum getið að giró-reikningur sjóðsins sem ætl- að er að kosta rannsóknir dul- rænna fyrirbæra á fslandi er 60600. Gjafir eru frádráttarbærar til skatts. ;tur og Astþór Árnasýni. Ljósm. Jim

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.