Vísir - 06.10.1975, Page 9

Vísir - 06.10.1975, Page 9
Vísir. Mánudagur G. október 1975 9 Viltu vita sannleikann um heilsufar þitt og batahorfur? — Á að segja krabba- meinssjúklingum og örðum sem hafa litlar batahorfur hið sanna um heilsufar þeirra? Þess- ari spurningu og öðrum svipuðum hafa bæði læknar, lögfræðingar og margir fleiri reynt að svara um langan aldur. En það mætti varpa fram spurningunni: ,,Hvað með vesalings sjúklinginn sjálfan? Hefur hann ekkert að segja i þessu máli?” Prófessor Ludwig Demling, forstöðumaður háskólasjúkra- hússins í Erlangen i V-Þýska- landi, kannaði nýlega viðhorf 220 sjúklinga og spurði um álit þeirra á þessari spurningu. Niðurstaða könnunar hans var birt nýlega i læknablaðinu Deutsche Medizinische Wochen- schrift, og er niðurstaðan sU að einungis 8% þeirra er spurðir voru kærðu sig ekki um að vita um batahorfur sfnar. 12% töldu, að ef þeir vissu um álit læknisins á þeim yrðu þeir einungis enn á- hyggjufyllri en áður. Mikill meirihluti sjUklinganna eða 88% voru sannfærðir um að þeir myndu taka meðul sin sam- viskusamlegaref þeir vissu nokk- urnveginn um niðurstöður læknisrannsókna og hverjar horf- ur um bata væru. 43% vildu fá ná- kvæma vitneskju um allar rann- sóknir i minnstu smáatriðum, ef áður óþekktar vöhtur hefðu fund- ist! Aðeins 3% sjdklinganna vildu alls ekki fá að vita hvort þeir væru haldnir ólæknandi sjUkdóm- um. 35% voru ánægðir með að fá gefið i skyn hverjar horfur væru og 62% vildu helst fá að vita hið allra versta sem fyrst, eins og svar við: ,Hvað á ég langt eftir ólifaö- læknir?” Röskur helmingur þeirra sjUk- linga sem vildu fá að vita allan sannleikann, gáfu enga sérstaka ástæðu fyrir þvi að þeir vildu það. Hinir töldu að þeir gætu notað timann, sem eftir væri til að ganga frá ýmsum persónulegum málum sinum. Mikilvægasti árangur þessarar könnunar fyrir læknastéttina, að áliti Demling prófessors og fé- laga hans' er sU staðreynd, að læknar gætu átt kost á miklu betra samstarfi við sjUklinga sina ef þeir vissu nákvæmlega hverjar horfur þeirra væru. Þeir væru þá liklegri til að fara nákvæmar eftir ráðleggingum læknanna. Upp- lýstir sjUklingar gera frekar eins og þeim er sagt, og það getur aldrei skaðað þá, aðeins hjálpað þeim til þess að ná fljótar fullum bata. Athyglisvert var að fjöldi þeirra sem óskaði eftir náinni vitneskju um heilsufar og bata- horfur var meiri meðal þeirra sem betur voru menntaðir, 48% sem aðeins höfðu barnaskóla- menntun og 88% með háskóla- menntun vildu fá þessa vitneskju. Þetta gefur til kynnaað þvi betur sem fólk er upplýst þeim mun betri áhrif kunna slikar upplýs- ingar að hafa á það. Könnun gerð meðal sjúklinga í Vestur- Þýskalandi Lagu haustfargjoldin okkar lengja sumaríð | o / I / hja þer 30% lækkun á fargjöldum býður upp ásumarauka fyrir okkartil Evrópu á tímabilinu þig í stórborgum Evrópu. 15.september til 31.október, FLJUGFÉLAG LOFTLEIOIR /SLAJVDS ingi lótinn Eftir miklar vanga- veltur ákv-áðu yfirvöld- in i Tavares i Flórida að láta lausan úr fangelsi 105 ára gamlan mann, Slim Myers að nafni, með 15 ára skilorði. Myer þessi varð nágranna sin- um Louise Stewart 51 árs, að bana, er þeir rifust Ut af fjár- munum i jUni s.l. Stewart hafði boðið Myers i af- mælisveislu en notaði tækifærið i leiðinni og stal hluta af ellilaun- um hans. Hafði sá gamli þá engin umsvif og skaut gestgjafa sinn. Dómarinn Troy Hall taldi rétt að leysa öldunginn Ur fangelsinu, en hann var dæmdur Utlægur Ur sýslunni um aldur og ævi. ara morð- Félög með eigin skrifetofur í 30 stórborgum erlendis < /

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.