Vísir - 06.10.1975, Qupperneq 11
Vlsir. Mánudagur 6. október 1975
11
Strandamaðurinn sendi
kúluna yfir 19 metrana
Frábœrt Islandsmet Hreins Halldórssonar í kúluvarpi á laugardaginn
— bœtti íslandsmet sitt um nœr hálfan meter
Hreinn Halldórsson, sem kall-
aöur hefur verið Strandamaður
inn sterki, sagði við okkur fyrr i
sumar, þegar hann hafði kastað
kiilunni 18,99 metra og vantaði
einn sentimetra til að ná að
brjóta nitján metra miírinn, að
hann myndi gera það siðar I
sumar.
Menn voru ekki trúaðir á að
það tækist hjá honum þvi hvert
mótið af öðru leið án þess að
kúlan færi réttu megin við
markið. En á laugardaginn kom
það loks, og þá.var það ekkert
smáræði, sem kúlan fékk að
fljúga.
Það var i annarri tilraun
Hreins á kastmóti 1R á Mela-
vellinum. í fyrsta kasti kastaði
hann 18,31 metra. 1 þvi næsta
bjó hann sig vel undir atrenn-
una, og allt small i liðinn hjá
honum. Kúlan flaug af stað —
yfir 19 metra markið og hafnaði
langt hinum megin við það.
Niður kom hún nákvæmlega
19,46 metra frá kasthringnum.
Hreinn hljóp út úr hringnum —
að sjálfsögðu réttu megin —
ogdansaði um af gleði. Ekki var
fögnuður annarra keppenda og
þeirra sem á horfðu minni en
Hreins. Þeir dönsuðu með hon-
um, og það var enginn smáræðis
dans, þvi að flestir voru þarna
um og yfir 100 kiló á þyngd.
Það tók langan ti'ma að koma
ró á mannskapinn eftir þetta
glæsilega kast Hreins. Var
hann orðinn svo þreyttur i hægri
hendinni eftir að hafa tekið við
hamingjuóskum viðstaddra, að
hann gerði ógilt i næsta kasti á
KR hafði þoð ó
lokasprettinum
Sigraði Ármann 14:12 í Reykjavíkurmótinu í
handknattleik og mœtir því Víking í úrslitaleikrv
um ó miðvikudaginn
Siðustu leikirnir i riðlakeppn-
inni I Reykjavikurmótinu i hand-
knattleik voru leiknir í gær i
Laugardalshöllinni. Voru þeir
báðir i A-riðli og áttust þar við 1R
— Leiknir og KR — Ármann.
Fyrri leikurinn var fimmtiu
marka leikur — 1R sigraði þar
með yfirburðum eins og búist
hafði verið við og skoraði 34
mörk.en Leiknir 16. Ihálfleikvar
staðan 15:9 fyrir 1R.
Siðari leikurinn var öllu jafn-
axi. Armenningar urðu að sigra i
leiknum með nokkrum mun til að
fá að leika við Vfking i úrslita-
leiknum, en KR-ingunum nægði
jafntefli eða naumt tap til að
komast i úrslit á hagstæðari
markatölu.
Það var lika allt útlit fyrir að
þeir ætluðu að tapa leiknum, þvi
að Armenningarnir voru allan
timann yfir — mest 3 til 4 mörk —
en á lokasprettinum náðu KR-
ingarnir i skottið á þeim og tókst
að komast yfir og sigra með 14
mörkum gegn 12.
Úrslitaleikurinn verður i
Laugardalshöllinni á miðviku-
dagskvöldið kemur, en þá verður
einnig leikið um 5. og 6. sætið i
mótinu. Annað kvöld verður aftur
á móti leikið um 3. og 4. sætið og 7.
og 8. sætið i þessu móti.
—klp—
STAÐAN
Lokastaðan i riðlunum i
Reykjavikurmótinu i handknatt- leik:
A-RIÐILL:
KR 4400 82:69 8
Fram 4121 82:62 4
1R 4121 90:77 4
Armann 4121 65:62 4
Leiknir 4004 65:118 0
B-riðilI:
Vikingur 3 3 0 0 70:59 6
Valur 3201 62:49 4
Þróttur 3102 66:65 2
Fylkir 3003 37:70 0
Heimsmet
Búlgarski lyftingamaðurinn
George Todorov setti nýtt heims-
met i snörun — fjaðurvigt — á
móti i Varna i Búlgariu I gær.
Hann snaraði 128 kilóum og
bætti þar með met landa sins,
Norair Nourikyan um hálft kiló.
Rúss-
arnir
koma!
Margir landsleikir í
handknattleik nœstu
vikurnar — Einir
ótta verða hér heima
Mikið verður um að vera hjá
islenska landsliðinu í hand-
knattleik nú næstu mánuðina.
Búið er að ákveða a.m.k.
ellefu leiki fram að áramót-
um, eða þar um bil og þar af
verða einir átta hér heima.
Næstu tveir leikir verða við
Luxemborg hér heima — I
undankeppni Olympiuleik-
anna —en siöan er ákvcðið aö
Norðmenn komi hingað i haust
og leiki hér tvo leiki.
Þá er allt útlit fyrir að
landsliðið taki þátt i fjögurra
landakeppni I Vestur Þýzka-
landi i desember, og búist við
að þar verði leikið við Vestur-
Þýskaland, Danmörkuog Svi-
þjóð.
Júgóslavneska landsiiðiö
kemur svo hingað rétt fyrir
jólin — I undankeppni
olympiuleikanna — og mun
leika einn aukaleik. Þá hafa
rússar samþykkt að koma
hingað og leika tvo leiki, og er
búist við þeim um áramótin.
—klp—
^ ^
eftir. En úr þvi fór hann að jafna
sig og náði þrem ágætum köst-
um i viðbót — 18,38, 18,63 og
18,31.
A þessu sama móti var einnig
keppt i kringlukasti. Þar bætti
Öskar Jakobsson enn einu sinni
unglingametið sitt — tvibætti
það i siðustu viku. Nú kastaði
hann 54,34 metra og átti auk
þess eitt kast sem mældist 56
Þvi miður var þaðógilt. Hon-
um fannst það vera misheppnað
um leið og hann sleppti kringl-
unni, og gekk þvi út úr hringn-
um þar sem ekki mátti fara. En
kringlan flaug 56 metra og
missti Óskar þar með af frá-
bæru unglingameti, eingöngu
fyrir klaufaskap. En þetta sýnir
að hann getur kastað kringlunni
svona langt — og jafnvel enn
lengra — spurningin er bara
hvenær kemur það. —klp—
Hreinn Halldórsson
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
'75-76
er komin út
Nýlega kom út uppsláttarbókin
íslensk fyrirtæki.
Bókinni er skipt niður í þrjá
meginflokka, fyrirtækjaskrá, viðskipta-
og þjónustuskrá og umboðaskrá.
í heild gefur hún upplýsingar um
eftirfarandi: Nafn, heimilisfang, síma,
pósthólf, stofnár, telex, nafnnúmer,
söluskattsnúmer, stjórn, stjómendur,
starfsmenn, starfssvið, þjónustu og
umboð. Þá veitir bókin einnig
upplýsingar um Alþingi og alþingismenn,
félög og stofnanir, sendiráð og ræðis-
mannsskrifstofur erlendis o.fl.
1 viðskipta- og þjónustuskrá er getið
fyrirtækja á allri landsbyggðinni
og í Reykjavík. Eru það mun víðtækari
upplýsingar en hægt er að finna
t.d. í símaskránni sem birtir þessháttar
upplýsingar aðeins af Reykjavíkur- -
svæðinu. Fyrirtækin eru flokkuð eftir
starfssviði og er þar m.a. að finna
á einum stað, fyrirtæki á sama sviði
um allt land.
í fyrirtækjaskrá, er að finna
víðtækustu upplýsingar, sem til eru um
íslensk fyrirtæki í einni og sömu
bókinni á öllum sviðum
viðskipta um allt land.
Umboðaskráin gerir mönnum m.a.
kleift að fletta upp á erlendum
vörumerkjum og finna þannig
út íslenska umboðsaðila
viðkomandi merkja.
Utgefandi: FRJALST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178 - Sfmar: 82300 82302