Vísir - 07.10.1975, Page 1
¥
Arekstur í Reykjavíkurhöfn
Brúarfoss og sementsferjan í árekstri
Brúarfoss og sementsferjan frá Akranesi lentu i árekstri I Reykja-
vikurhöfn snemma i morgun. Engin slys uröu á mönnum. Gat kom á
Brúarfoss viö áreksturinn, en skemmdir á ferjunni uröu ekki meiri
en svo aö hún hélt ferö sinni áfram. _OT
Á sama tíma og útlán viðskiptabankana jukust um 25% varð
118% útlánsaukning Seðlabanka
til ríkissjóðs og ríkisstofnana
Á sama tima og útlán
viðs kipta bankanna
hafa aukist um 25% að
meðaltali hafa útlán
Seðlabankans til rikis-
sjóðs og rikisstofnana
aukist um 118%.
Verslunarráð islands hefur
harðlega gagnrýnt stefnuna i
útlánamálum. i framhaldi af á-
kvörðun Seðlabanka islands og
viðskiptabankanna um að halda
sömu stefnu i útlánamálum,
hefur framkvæmdastjórn
Verslunarráðsins bent á, að
stóraukin útlánSeðlabankans til
rikissjóðs og stofnana hans,
leiði aðeins til aukinnar eftir-
spumar eftir öllum vörum og
þjónustu.
Þegar slikt sé gert á sama
tima og atvinnuvegunum sé
með útlanastöðvunum gert ó-
kleift að mæta eftirspurn með
aukinni framleiðslu og vöru-
framboði, hljóti afleiðingin að
verða aukin þensla og verð-
bólga.
A timabilinu frá 31. ágúst'I
fyrra til jafnlengdar I ár nam
útlánaaukning Seðlabankans til
rikissjóðs og rikisstofnana
118%. Útlán banka og annarra
innlánsstofnana til rlkissjóðs og
rikisstofnana jukust um 58%.
Til landbúnaðar nam útlána-
aukningin 43%, til sjávarútvegs
31, til verslunar 19% og til iðn-
aðar 28%. Til byggingaverktaka
ibúða var þessi aukning 31%, en
til annarra byggingaverktaka
dró úr henni um 12%.
A fyrrnefndu timabili jukust
útlán viðskiptabankanna um
25% að meðaltali, en Seðlabank-
ans um 118%, eins og áður
sagði.
Verslunarráð segir, að gifur-
legir fjármunir hafi verið færðir
frá atvinnuvegunum til rikis-
valdsins með núverandi stefnu i
útlánum. Slik stefna geti a.ðeins
leitt til aukinnar spennu og
verðbólgu og verði að hætta.
Verslunarráðið mótmælir á-
framhaldandi útlánastöðvun til
atvinnuveganna meðan útlán til
rikissjóðs aukast á sama tima.
—AG
GULA EITRIÐ FRÁ ÁBURÐAR-
VERKSMIÐJUNNIHÆTTUMINNA
EN MENGUNIN Á MIKLUBRAUT
Ljótur, gulur og eitraður
reykurinn frá Aburöarverk-
smiöjunni í Gufunesi vekur oft
hneykslan manna á aö slfk
mengun skuli látin viögangast.
En vissu menn aö mengun á
Miklubrautinni eöa viö Hlemm-
torg af völdum útblásturs frá
bilum er margfalt meiri?
1 kyrra veðrinu i gær lá reyk-
urinn frá Áburðarverksmiðj-
unni yfir öllu nágrenni hennar.
„Það er tilviljunum háð að
veöur sé þannig að mengun sé
mælanleg af reyknum,” sagði
Hörður Þormar, efnaverkfræð-
ingur hjá Rannsóknastofnun
iðnaðarins, i viðtali við Visi i
morgun. Hörður hefur unnið
lengi að mengunarrannsóknum
á reyknum frá Áburðarverk-
smiðjunni.
„Vindur er svo sjaldan
stöðugur, að mengun verður
aldrei teljandi af völdum reyks-
ins og sú mengun sem verður er
langt fyrir neðan hættumörk.
Ef vindáttin væri hins vegar
stöðug horfði málið öðru visi
við. Reykurinn er eitraður, en
hann leggur aldrei yfir nógu
lengi til að valda mengun. Frá
útblæstri bila er miklu meiri
mengun. Ég hef mælt á Hlemm-
torgi, Miklatorgi og Miklubraut
og fengið margfalt meiri meng-
un þar,” sagði Hörður.
Hörður sagði, að hin breyti-
lega vindátt hefði valdið erfið-
leikum við að rannsaka reyk-
inn frá Aburðarverksmiðjunni.
Nokkurn tima tekur að koma
tækjunum upp. Kom oftfyrir við
rannsóknirnar, að þegar tækin
voru komin i gang, þá hafði
vindáttin breytt sér og engin
mengun lengur til að mæla.
—ÓH
Ljósm.: Jim
Dökka skýiö yfir húsunum er reykurinn frá Aburöarverksmiöjunni, sem lá yfir f gær. En mengunin frá þessum reyk er minni en af útblæstri bfla á Miklubraut.
„Kynni mín af
fangelsi á Spáni"
....þegar mennirnir tveir komu til baka og höfðu
ekki f undið neitt í töskunni minni, gat ég komist að
til að spyr ja um ástæður til þess að ég var handtek-
i.nn og færður til yfirheyrslu.
Vafðist þeim nokkuð tunga um tönn, en létu þó í
það skína, að ég hefði verið að taka myndir af
uppþotinu, og hefði þess vegna verið tekinn."
Ofanritað er úr lýsingu Baldurs Óskarssonar,
f réttamanns, sem var handtekinn i Madrid og f ang-
elsaður um nokkurra daga skeið. Hann slapp vegna
bréfs, sem honum tókst að smygla út úr fangelsinu.
Atvik, sem átti sér stað fyrir um 18 árum, en at-
burðir síðustudaga gefa tilefni til að rif ja upp.
— Sjá bls. 8-9
Tíðarfar og
skapsmunir
,,Þaö mun vfst fullsannaö aö tiöarfariö skiptir verulegu máli
varöandi skaphöfn manna. Þvi meiri rosatiö, rigningar og um-
hleypingar — þvi verri skapsmunir! Og þaö þarf ekki aö lýsa
fyrir ibúum suövesturhornsins hvernig veöráttan hefur veriö f
sumar. Ahrifinhafa vissuiega ekkilátiö á sér standa, a.m.k. ekki
iblööunum, enda þess aö vænta aö þeir menn, sem skrifa i þau
aö staöaldri, finni ekki síöur en viö hin fyrir rosaköstunum. öllu
verri geövonskuköst hafa tæpiega sést I blööunum lengi.”
Þannig er upphaf greinar Páls Heiöars Jónssonar, hins
vinsæla útvarpsmanns, ( blaöinu I dag. i grefn sinni tekur Páll
nokkur dæmi úr blööunum um áhrif tiöarfarsins á skapsmuni
maniia!_________- Sjóbls. 7