Vísir - 17.10.1975, Blaðsíða 1
VISIR
Föstudagur 17. október 1975 — 236. tbl.
ÞÝSKU TOGARARNIR EINS OG
CHIQUITA BANANAR:
— Þaö hefur allt varið rólegt i
nótt og i morgun, enda engin
skip til aö æsa sig útaf, sagöi
Hálfdán Henrýsson, stýrimaður
hjá Landhelgisgæslunni, viö
Vísi i morgun.
— Þaðer enginn Þjóöverji að
veiðum innan landhelginnar,
svo aö viö vitum. Þaö eru að
vfsu tveir á siglingu innan tvö-
hundruð milnanna. Annar
þeirra er að koma frá Þýska-
landi en hinn búinn að vera hér
nokkuð. Hvorugur þeirra hefur
gert tilraun til að veiða, enda
báðir undir eftirliti.
— Sá sem klippt var á I gær,
Altona, er farinn til Grænlands.
— fimm konur á Alþingi lýsa áliti sínu
á kvennafrídeginum — Sjá bls. 7
Átta málverka-
Njóta
stuðn-
ings
Fords
— sjá erlendar
fréttir bls. 4
'Baráttuaðgerð
en ekki hátíð'
synmgar opna
- Sjá LÍF OG LIST UM HELGINA bls. 8-14-15
STEVE ER
MEÐ AF-
BRÝÐI-
SAMARI
EIGIN-
MÖNNUM
- sjá NÚ bls. 11
'. l/J.
wwmmammmmwnnWiWVMmmKUttmKmwrwwrmmwrnrrmrmmHrnTmimmy
UTBURÐI SYNJAÐ
Á AKUREYRI
— með lagaheimild
frá 17. öld
Að undanförnu hafa staðiö
yfir deilur á Akureyri varðandi
niðurrif á verkstæðum við Kaid-
baksgötu, svo sem gréint hefur
verið frá i Visi.
Eftir að lögbannsbeiðni hús-
eigenda á niðurrifi hafði verið
synjað, sótti bæjarráð um
heimild til útburðar á öllum
húsunum á þriðjudaginn var.
Dómur féll hjá fógeta i gær þar
sem útburðarbeiðni var synj-
að. Synjunin var grundvölluð á
norskulögum Kristjáns V. en
það éru einu lögin sem til eru
um útburð og eru þau frá 1687.
Visir hafði samband við
Bjarna Einarsson bæjarstjóra á
Akureyri, i morgun og sagði
hann að samþykkt hefði verið á
bæjarráðsfundi i gær að áfrýja
dóminum til Hæstaréttar og
jafnframt höfða mál á hendur
húseigendum og krefjast bóta
fyrir drátt á niðurrifi húsanna.
Að sögn bæjarstjóra getur
orðið nokkuð tafsamt að fá þessi
mál á hreint og veldur það þeim
fyrirtækjum sem úthlutað hefur
verið lóðunum, sem verkstæðin
standa á, töluverðu tjóni. Þvi
gæti fyrirhugað skaðabótamál
orðið töluvert umfangsmikið.
,,Við vonum að Hæstiréttur
taki málið fljótt fyrir og jafn-
framt að húseigendur fari að sjá
sljós skynseminnar i þessu
máli”, sagði bæjarstjóri að lok-
um. — EB.
Fréttamenn hlupu í þularstarfið
— vegna hœsi Péturs Péturssonar
SSÍSÍfcir
/4 4/ '/fy jjmk KmBM fm in |
fp®Æ.iw
„Maður er alltaf taugaó-
styrkur i fyrsta skipti,” sagði
Margrét Jónsdóttir, frétta-
maður á útvarpinu, þegar við
höfðum samband við hana í
morgun. Það hafa sjálfsagt
margir orðið undrandi þegar
þeir heyrðu hana lesa
morgunfréttir útvarpsins i
fyrsta skipti og undrunin hélst
þegar Vilhelm G. Kristinsson,
fréttamaður, tók til við að lesa
forystugreinar dagblaðanna.
Ástæðan var hæsi Péturs
Péturssonar. ,,Ég er þegjandi
hás”, sagði hann, þegar við
spjölluðum við hann. ,,Ég var
kominn með kvef en taldi það
ekki þannig að ég kæmist ekki
fram yfir hádegi i lestrinum.”
Menn urðu svo ásáttir um að
Pétur væri vart boðlegur út-
varpshlustendum, svo að
fréttamennirnir hlupu i
skarðið.
„Maður .er alltaf viðbúinn
þvi að hlaupa svona inn i,”
sagði Vilhelm. Hann kvaðst
hins vegar aldrei hafa lesið
forystugreinar útvarpsins
fyrr.
Klukkan 9 i morgun var von
á Gerði Bjarklind til þess að
hlaupa i skarðið fyrir Pétur.
-EA.
Hver réð
Jóhannes
Nordal?
— Vilmundur
Gylfason skrifar
bls. 9