Vísir - 21.10.1975, Blaðsíða 2
2
VÍSIR. Þriðjudagur 21. október 1975
vísiBsm:
Eftir hverju tekurðu fyrst, þegar
þú hittir fólk?
Ólafur Sveinsson, atvinnulaus:
Engu sérstöku, held ég. Nei, ég
spái bara ekkert i það, tek bara
eftir manneskjunni allri, eins og
hún kemur fyrir.
Daniel Agnarsson, nemandi:
Hvernig fötum hún er i og svo
held ég að ég taki einna fyrst eftir
andlitinu.
Stefán Magnússon, kaupamaður
I sveit: bað er ekki gott að segja.
Jú, ætli ég taki ekki helst eftir
fötunum.
Jóhannes Guðjónsson, verslunar-
maður: Það getur verið mjög
margt.. Þó held ég að það sé aðal-
lega likamsbyggingin, ég hef
alltaf verið veikur fyrir henni.
Andlitið skiptir ekki svo miklu
máli.
Erlingur Harðarson, at-
vinnulaus: Engu sérstöku. Það er
þá kannski klæðnaðurinn, einna
helst sem ég tek fyrst eftir.
Þórður Friðjónsson, nemi: Veit
það ekki, svei mér þá. Jú, hátta-
iagi, klæðnaði og yfirbragði.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
FORPOKAÐ
VINNULAG
Bifreiðarstjóri skrifar:
„Slæm aðstaða til vörumót-
töku er við sumar stórverslanir
i Reykjavik. Sums staðar eru
t.d. aðeins einar litlar dyr sem
vörurnar eru settar inn um.
Yfirleitt eru stærri heildsalar
með vörubila i sinni þjónustu.
Þeir hafa vörurnar á litlum
brettum, sem eru sett á bilana
með lyfturum. Á hverju bretti
eru venjulega 100 pk. strásykur
lOsinnum 1, 100 pk. moli 10 sinn-
um 1 og svipað er með allar aðr-
ar vörur.
Þessar verslanir þyrftu nú
ekki annað en að stækka dyrnar
þannig að hægt sé að aka
lyftaranum út og taka af bilun-
um með þeim. Þá er hægt að
sleppa þvi að handlanga hvern
einasta pakka milli þriggja,
fjögurra manna.
Það sér hver heilvita maður
hversu forpokað þetta er með
núverandi vinnuaðferð.”
„Honn vor fullur greyið"
Umferðar-
slys —
orsakir —
varnir
Aukin og stöðug umferðar-
kennsla i skólum undir ströng-
um aga, allt frá smábarnsaldri
til tvitugs. Ungu fólki er langt-
um hættara til að rosaka um-
ferðarslys en fullorðnum.
Aukin ábyrgð ökumanna.
Próf miðuð við þroska i mann-
gildi og tillitssemi að dómi sál-
fræðinga eða kennara ekki siður
en við ökuhæfni og aksturstima.
Æfingar i merkjum og fullri
hlýðni við þau. Hærri sektir og
algjör ökuleyfissvipting eftir
endurtekin umferðarbrot.
Aukin gæsla lögreglumanna,
einkum með leikjum unglinga á
vélhjólum og tryllitækjum sem
blómstra helst á kvöldum i viss-
um hverfum.
Sterkari áróður og áminning-
arfjölmiðla ekki siður blaða en
útvarps. Birt nöfn ökuniðinga
miskunnarlaust ef um itrekað
hirðuleysi er að ræða.
Ákveðin svæðaskipting i borg-
inni til fræðslu, eftirlits og þeir
staðir merktir og athugaðir sem
oftast leiða til slysa. Opinber
verðlaun borgarstjórnar,
svæðisstjórnar og trygginga-
sjóða fyrir ökusnilli.
Og að siðustu almennur öku-
skólimeð ströngum aga og há-
um kröfum til háttvisi.”
Árelius Nielsson skrifar:
„Alltaf fjölgar slysum i um-
ferðinni. Með hverju ári eru
slikir dauðadómar fleiri og fleiri
á tslandi. Hver verður næst?
Einkum er það elda fólk og
börn, sem verður þar fyrir
örlagadómi. Samt eru hinir
miklu fleiri sem biða þess aldrei
bætur að verða fórnardýr hraða
og hirðuleysis á götum og stétt-
um.
Hér skulu nú i þessum örfáu
orðum nefndar helstu orsakir
umferðarslysa:
Tillitsleysi. Virðingin fyrir
öðrum, jafnvel lifi og limum,
þverrar þvi miður óðum á
íslandi. Þar eiga fjölmiðlar,
einkum sýningar á glæpamynd-
um, mikla sök.
Of liraður akstur. Einkum
þessi keppni, sem oft lætur
minútu i mark ráða mannslifi.
Frammúrakstur er þarna
mesta hættan.
Leikur barna á vegum og al-
mannafæri. Barn á eða við götu
er sama og hættumerki. bað
ætti engum að gleymast.
Ógætni og leti. Sætisólar ekki
spenntar. Horft i allar áttir við
stýrið. Hemlar og hjól i ólagi.
Afengisneysla. Hún er hin
mesta hætta á vegum. Samt eru
margir sem mæla slikt upp i
fólki og telja allt afsakanlegt
með orðunum: „Hann var full-
ur, greyið”.
Hér koma svo fimm ráð sem
f'ara þarf vandlega eftir i upp-
eldi og við ökupróf.
.. :
y’}&