Vísir - 21.10.1975, Page 11
Njósnarar og
morðingjar....
Háskólabió
The Internecine Project
(Sér grefur gröf þótt grafi)
Bresk, 1974.
Njósnamyndir tröllriða
bióhúsunum i borginni þessa
dagana. Það væri i sjálfu sér
allt i lagi ef þær væru ekki eins
fj.... lélegar og raun ber vitni
um.
TIP fjallar um bandariskan
efnahagsráðunaut, sem starfar
i Bretlandi og hefur þar komið
upp njósnakerfi. Einn dag kem-
ur háttsettur bandarikjamaður
til sögunnar og býður þessum
samlanda sinum glæsilega
stöðu við hægri hönd forsetans.
En til þess að hlotnast þessi
staða þarf hann að uppræta
fjóra menn sem eru uppistaða i
njósnakerfinu.
Hannhugsarupp „kaldrifjaða
morðáætlun” eins og segir i
auglýsinguog kemur þvi þannig
i kring að þessir fjórir menn
drepa hver annan.
Siðan gengur myndinút á það
hvernig þessi áætlun gengur
fyrir sig. Hún er hin hugvits-
samlegasta, nema eitt morðið,
þar sem hamar er notaður sem
morðvopn.
Myndin er öll hin langdregn-
asta og nánast engin spenna i
henni. Aætlunin er nefnilega
einum of fullkomin og gengur of
snurðulaust.
Það er ekki fyrr en i lok
myndarinnar sem hægt er að
sætta sig við það að greiða næst-
um tvö hundruð krónur til að fá
aö komast inn, þvi endirinn er
bæði skrambi góður og óvæntur
(þóhlaut aðkoma að þvi að aðal
skúrkurinn hlyti makleg mála-
gjöld)
Það er þokkalegt til þess að
vita að bandarikjastjórn hafi
aðra eins bakhjarla og þarna
koma fram i myndinni, þvi það
eru nánustu menn forsetans
sem ráðleggja efnahagsráðu-
nautnum að kála njósnasam-
starfsmönnum sinum. Ef þessir
menn gefa raunsanna mynd af
starfsliði forsetans þar, þá er
ekki lengur skritið hvers vegna
mál eins og Watergate-málið
skyldi verða til!
James Coburn og Lee Grant i hlutverkuin sinum í myndinni ,,The
Inrcnice Project”. James leikur aðal-skúrkinn sem hefur þaö aö
markmiði að drepa alla samstarfsmenn sina i njósnanetinu tii að
hljóta stöðuhækkun, en Lee leikur blaðakonu sem er ekkert nema
tortryggnin uppmáluð.
Fantasíuœvintýrið Tommy
Tónabíó
TOMMY
Bresk, 1975.
Framleiðendur: Robert Stig-
vvood og Ken Russell, sem auk
þcss skrifaði handrit og leik-
stýrði myndinni.
KVIKMYNDIR
Umsjón:
Rafn Jónsson
sleppur sjálfur naumlega og nú
er hann raunverulega frjáls.
Þessi mynd er sambland af
ævintýrinu, fantasiunni og
raunveruleikanum. Spegillinn
gegnir miklu hlutverki i mynd-
inni, i honum er fólginn sá mátt-
ur sem leysir Tommy úr álaga-
fjötrinum. Atrúnaðurinn á
kúluspilið finnst mér endur-
spegla blekkinguna sem allir
lifa i, hin hryllilega blekking
sem menn sökkva sér niður i til
að gleyma veruleikanum. Enda
eru það peningaáhyggjur sem
splundra „guðdóminum” þvi
hann reynist mönnum brátt of
dýr.
Taka þessarar myndar er
frábær. Notkun linsa er á viö
margar kennslustundir i
myndatöku og ofanitökur eru
skemmtilegur, sbr. atriðið með
eiturdrottningunni. Ken Russel
er sérfræðingur i að beita
myndavélinni — eða láta beita
henni — til að framkalla sér-
staka tilfinningu hjá áhorfend-
um og tengja myndina tónlist-
inni, þótt mér finnist það ekki
hafa tekist eins vel og i mynd-
inni „Lif og losti”.
Einu var ábótavant, hljóm-
flutningskerfinu i bióinu. Kvik-
myndin var „quintofónisk” þ.e.
tekin upp á fimm rásum og er
hátölurum komið fyrir viðsveg-
ar I kvikmyndahúsinu. En það
vantaði alla dýpt i tónlistina.
Hún var hálf-hjárænuleg, næst-
um eins og gamall stereofónn
inni f stofu. En hitt er annað mál
aö það var gaman að hlusta á
tónlistina komaúrfimm áttum.
TOMMY er mynd sem þú ætt-
ir EKKI að missa af, ef þú hefur
gaman af þvi að fara i bió á
annað borð.
— RJ.
Frank, stjúpfaðir Tommys (leikinn á frábæran hátt af Oliver Reed)
og Nora (leikin af Ann-Margaret) reyna ýmsar leiðir til að lækna
Tommy).
Lítill kassi
— i lélegri mynd
Nýja bió
Sambönd i Saizburg
Bandarisk.
Þessi mynd fjallar i stórum
dráttum um baráttu sovésku
leyniþjónustunnar og þá banda-
risku, israela, breta og nasista,
um kassa sem hefur að geyma
leyniskjöl með upplýsingum um
fyrrverandi nasista og
uppljóstrara þeirra. Allir þessir
aðilar hyggjast ætla að notfæra
sér innihald kassans á einn eöa
annan máta. Með þessum efni-
við er reynt að byggja upp
spennu sem tekst hörmulega
illa. Menn eru drepnir unnvörp-
um, en það er ekki gæöastimpill
á myndina. Söguþráðurinn er
mjög flókinn og lélegur og
klaufalegar klippingar þreyta
augað, leikurinn af þeirri
tegundinni sem fær menn til að
sjá eftir að hafa ekki keypt
meira poppkorn svo maður
hefði eitthvað við að vera.
Eini ljósi punkturinn er
landslagið sem er bæði stórbrot-
iö og tignarlegt. Svissnesku
Alparnir standa alltaf fyrir
sinu, einnig I kvikmynd sem
þessari.
Að lokum má svo geta þess,
að til að auka á leiðindin, sem
voru þó nægileg fyrir, voru tvö
hlé fyrir utan hið heföbundna
hlé sem menn eiga að venjast.
Ken Russell hefur gert nokkr-
ar tónlistarmyndir, s.s. mynd-
ina um Frans Liszt, Mahler,
Thaikovsky o.fl. Myndin um
þann siöastnefnda var sýnd i
Tónabíói fyrir nokkrum árum
og ég verð að segja að hún hafði
mun meiri áhrif á mig heldur en
TOMMY. Hún var að mér
fannst, miklu heilsteyptari og
vinnsla hennar betri, t.d.
samræming tónlistar og mynd-
ar. Hitt er svo aftur annað mál,
að það eina sem þessar myndir
eiga raunverulega sameiginlegt
er tónlistin og stifært ævisögu-
formið.
TOMMY fjallar um ungan
dreng sem fær lost þegar hann
sér föður sinn drepinn og missir
þess vegna sjón, heyrn og mál.
Hann vex svo upp i algjöru
myrkri og þögn. Móðirin og
stjúpi reyna ýmislegt til lækn-
inga, m.a fer stjúpi hans með
hann til „eiturlyfjadrottningar-
innar”. Þar öðlast hann litinn
hluta sjónarinnar eða
skynjunarinnar og sér sjálfan
sig I spegli i rauðum bjarma.
Eftir illa meðhöndlun eins
frænda sins sér hánn sig f bláum
bjarma. Siðan renna þessir
tveir svipir saman I einn hvit-
glóandi hnött, sem hann eltir út I
skrangarð nokkurn. Þar hverf
ur honum sýnin þegar hann er
staddur við kúluspilsvél. Hann
tekur að leika á vélina af
óvæntri snilli (Áður en langt
um liður er Tommy orðinn
heimsfrægur kúluspilaleikari
Tommy i „meöferð” hjá „eitur-
drottningunni”.
og fjármunirnir streyma inn.
Einn daginn hrindir móðir
Tommys honum inn i spegil, þar
sem hann hafði verið að stara á
sjálfan sig og þá fellur af honum
álagafjöturinn og hann öðlast
aftur sjón, heyrn og mál.
Múgurinn flykkist i kringum
hann hann hrópar: Fylgið mér
Ég er undrið! — Hann segir
fólkinu að trúa á sig og kúlu-
spilsvélina, allir leika kúluspil
uns einn dag að menn uppgötva
að þetta var allt saman blekk-
ing. Þá drepa þeir móður
Tommys og stjúpa, en Tommy
Nóra, móöir Tommys, fer meö hann á samkomu hjá trúarlækni, þar
sem aðallækningarmátturinn er fólginn i átrúnaöi á Marilyn
Monroe, sem Tommy brýtur. Trúarlæknirinn er lengst tii hægri
(leikinn af Eric Clapton) og fyrir aftan hann eru tveir meölimir The
Who, John Entivhistle og Pete Townshwnd sem samdi rokkóperuna
um Tommy.
cTVIenningarmál