Vísir - 25.10.1975, Qupperneq 1
VISIR
Laugardagur 25. október 1975 — 242. tbl.
Alþýðuflokkurinn fékk
ekki sœnskar krónur
— sjó baksíðu
Gunnar Thoroddsen, Roy Hattersley, aSstoðarutanríkis
ráðherra Bretlands, og Einar Agústsson, að afloknum
samningaviðraeðunum í London.
Samningafundum lokið i London:
Danir gagnrýna 200 mílur
Samningafundi Islend-
inga og Breta lauk í Lund
únum í gaermorgun, án þess
að samkomulag tsekist.
Akveðið var að halda ann-
an fund, en ekki hvenær.
Danska utanríkisráðu-
neytið sendi í gær yfir-
lýsingu til íslensku rík-
isstjórnarinnar, þar sem
segir meðal annars, að
einhliða útfærsla ísl-
ensku landhelginnar í 200
mílur muni valda erfið-
leikum við að ná alþjóð-
legu samkomulagi um efna-
hagslögsögu.
Danska utanríkisráðu-
neytið lýsir þó skilningi
á aðstöðu ríkisstjórnar-
innar vegna mikilvægis
fiskveiða fyrir Islend-
inga.
Danir lýsa einnig óán-
ægju sinni með þær mið-
línur, sem Islendingar
hafa dregið á milli Isl-
ands annars vegar og Fser-
eyja og Grænlands hins
vegar. I>eir segja, að
þessar línur séu Isíend-
ingum meira í hag en Fær-
eyingum og Grænlendingum.
Jafnframt harma Danir,
að þessar miðlínur skyldu
dregnar án samráðs við
dönsk stjórnvöld og óska
eftir viðræðum um málið.
-AG
Efnahagslegt sjálf-
stœði okkar í veði
Úr stefnurœðu forsœtisráðherra
„Við islendingar eig-
um þess ekki kost öllu
lengur að þola
verðbólguvöxt og
viðskiptahalla til þess að
tryggj3 fulla atvinnu”.
Þetta sagði Geir
Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra, meðal annars
i stefnuræðu sinni á
fimmtudagskvöld.
Forsætisráðherra fjallaði eink-
um um landhelgismálið og efna-
hagsmálin. Af ræðu hans er ljóst,
að ástand efnahagsmálanna er
jafnvel dekkra en álitið hafði
verið. 011 ytri skilyrði hafa stór
versnað. Forsætisráðherra sagði,
að islendingar hefðu nú tækifæri
til að kunna fótum sinum forráð i
efnahagsmálunum. Þessu
tækifæri mættu þeir ekki glata.
„Efnahagslegt sjálfstæði okkar,
bæði sem einstaklinga og þjóðar-
heildar er i veði”, sagði forsætis-
ráðherra.
Hann sagði jafnframt: „Niður-
staðan af vandlegri skoðun á
efnahagsmálunum, eins og þau
horfa nú við þjóðinni verður sú,
að til þess að ná settu marki
þurfi að stefna að lækkun
þjóðarútgjalda á árinu 1976 til
þess að treysta stöðuna út á við og
draga úr verðbólgu.”
„Til þess þarf samstillt átak á
sviði launa- og verðlagsmála,
fjármóla og lánamála. 1 þeirri
stefnu, sem hér hefur verið lýst,
felst að útgjöld heimilanna
héldust sem næst óbreytt og
einnig samneysluútgjöld hins
opinbera. Sú lækkun þjóðarút-
gjalda, er nauðsynleg er, hlýtur
þvi að verða á sviði fjár-
festingar.”
Þá sagði forsætisráðherra:
„Við hvorki megum né getum
treyst á erlendar lántökur til að
jafna svo mikinn viðskiptahalla
sem undanfarin tvö ár. Úr þvi
sem komið er leiðir áframhald-
andi verðbólga til stöðvunar at
vinnufyrirtækja og atvinnu-
leysis.”
„Eftir miklar sviptingar i ytri
skilyrðum þjóðarbúsins undan-
farin ár og hærri verðbólguöldur
en dæmi eru um fyrr, er nú kyrr-
ara framundan hér á landi, ef við
sjálf gefum ekki tilefni til
annars.”
v
J - ££ !
Vel heppnað
kvennafrí
Gott veður gerði sitt
til að útifundur kvenna á
Lækjartorgi í gær heppn-
aðist mjög vel. Kvenfólk
var að sjálfsögðu í meiri
hluta á fundinum. Giskað
er á að tuttugu til tutt-
ugu og fimm þúsund manns
hafi sótt fundinn. Þetta
er því einn al^tærsti
fjöldafundur sem haldinn
hefur verið hér á landi.
Landhelgisfundurinn var
stærri, þar voru upp undir
þrjátíu þúsund manns.
Víða mátti sjá konur
með hóp af börnum með sér
á fundinum, og barnavagn-
ar tóku stór pláss. Þess-
ar konur fengu ekki aðra
til að gæta barnanna fyr-
ir sig.
Kvennafríið í gær, og
útifundurinn hafa vakið
mikla athygli erlendis.
Allstór hópur erlendra
fréttamanna frá sjón-
varpsstöðvum og blöðum,
var á þönum í gær, til að
missa ekki af neinu.
Dagskrá útifundarins á
Lækjartorgi samanstóð af
ávörpum og fjöldasöng að
hefðbundnum sið íslenskra
útifunda. Fjöldi hvatn-
ingarskeyta bárust fund-
inum.
Hvert borð var þéttskipað hinu "veikara kyni" á veit-
ingastöðum borgarinnar á kvennafrídaginn í gær. Skyldu
þær vera að skála fyrir karlpeningnum? Myndina tók
Loftur á Naustinu í gær.