Vísir - 28.10.1975, Blaðsíða 24
vísm
Þriðiudagur 28. október 1975.
FÓRUST ÞEGAR
JEPPI VALT
Tvennt beiö bana þegar
Bronco-jeppi valt ofan I Vatns-
dalsá f Vatnsfiröi á sunnudag-
inn. t jeppanum voru Þórhildur
Jónasdóttir, Markarflöt 41 i
Garðahreppi, og Svavar Helga-
son, Fornuströnd 5 á Seltjarnar-
nesi.
Þau voru bæði barnakennarar
og voru i erindum Sambands is-
lenskra barnakennara. Þórhild-
ur og Svavar voru látin þegar
brúarvinnuflokkur kom að slys-
staðnum. Þá var töluvert um
liðið frá því slysið varð, að þvi
er talið er. Þau Þórhildur og
Svavar láta bæði eftir sig maka
og börn.
— ÓT.
Aðgöngu-
miðor sof n-
gripir
Konur úr Njarðvíkum,
Höfnum, Kcflavik og öðrum
stöðum sunnan Hafnarfjarðar
unnu saman að skemmtun i
Stapa á kvennafridaginn.
A skemmtuninni voru
númeraðir aðgöngumiðar þar
sem annars vegar var
kvennamerkið en hins vegar
frimerki kvennaársins,
stimplað i pósthúsinu
Hvammi i Höfnum. Þetta
pósthús mun nú á næstunni
verða lagt niður, og þvi má
gera ráð fyrir að þessir að-
göngumiðar geti orðið eftir-
sóttir og verðmætir með
timanum.
Skemmtunin i Stapa þótti
takast mjög vel og var þátt-
taka þar syðra mjög góð.
-EB
CARMEN
frumsýnd
Óperan Carmen eftir Bizet
verður frumsýnd i Þjóðleik-
húsinu á föstudag og er það i
fyrsta sinn sem óperan er sett á
svið hérlendis. Carmen er I hópi
þeirra verka sem vinsælust
hafa verið með almenningi.
Þorsteinn Valditnarsson
hefur þýtt textann, en Baltasar
sér um leikmynd og búninga.
Leikstjóri er Jón Sigurbjörns-
son, en hljómsveitarstjóri
Bohdan Wodiczko. Sigriður E.
Magnúsdóttir og Rut Magnús-
son hafa æft hlutverk
Carmenar, en finnski
barintonsöngvarinn Walton
Grönross fer með hlutverk
Escamillos á fyrstu sýningum,
en siðan tekur Jón Sigurbjörns-
son við þvi.
Meðal annarra söngvara eru
Magnús Jónsson, Ingveldur
Hjaltested, Svala Nielsen, Elin
Sigurvinsdóttir, Kristinn Halls-
son, Garðar Cortes, Hjálmar
Kjartansson og Halldór
Vilhelmsson.
Erik Bidsted hefur æft dans-
atriðin. Þjóðleikhúsinn syngur
að sjálfsögðu i óperunni og auk
þess drengjakór.
Þegar er uppselt á fyrstu
sýningar Carmen.
Skjálftar í Kröflu þurfa
ekki að boða eldsumbrot
Sérfræðingar velta þvf nú
fyrir sér hverjar kunni að vera
ástæðurnar fyrir þeirri jarð-
skjálftahrinu, sem að undan-
förnu hefur oröið vart i
Mývatnssveit, og þá einkum á
Kröflusvæðinu.
Ýmsir hafa leitt að þvi getum,
að þessar hræringar kynnu að
boða eldsumbrot, en Sveinbjörn
Björnsson, eðlisfræðingur hjá
Raunvisindastofnun, sagði i
morgun, að svo þyrfti alls ekki
að vera.
Hann sagði að jarðskjálfta-
kippurinn i gærmorgun, sem
mældist 3,8 stig á
Richters-kvarða, hefði átt upp-
tök sin á eins kilómetra dýpi á
vinnusvæðinu við Kröflu.
Sérfræðingar eru nú að
rannsaka hvort þessar hræring-
ar geta verið I beinum tengslum
við boranir á Kröflusvæðinu.
Helsta tilgátan er þá sú, að
boranirnar hafi losað um
spennu i berginu vegna
breytinga á þrýstingi i vatnsæð-
um. Verið getur, að vatn, sem
dælt hefurveriðofanl holurnar,
undir þrýstingi, virki örvandi til
að leysa skjálfta úr læðingi.
Upptök skjálfta hafa mælst
viðar en I Kröflu, til dæmis
norð-vestur af henni. Sveinbjörn
sagði, aö skjálftahrina hefði
verið I gangi I sumar, svæðið
væri „lifandi” og þetta væri
ekki ósvipað þeim skjálftahrin-
um, sem vitað væri um á undan-
förnum árum. Slíkir skjálftar
yrðu I gosbeltum, án þess að
kvika væri að nálgast, og aðeins
i örfá skipti boðuðu þeir eldsum-
brot.
Vel er fylgst með Kröflu — og
Námafjallssvæðinu. Nýjum
mæli hefur verið komið fyrir I
Kröflu, og simsendir hann
merki til Reykjahliðar. Fleiri
mælar eru I nærliggjandi héruð-
um.
í Kröflu hefur verið borað i
virkt ■ eldfjall, og þvi hafa
Mývetningar ákveðið að hafa
vaðið fyrir neðan sig með eðli-
legum og nauðsynlegum al-
mannavörnum.
— AG.
Þessi niynd er lekiti við
Hringbrautina á hlýji£.októJp>*:-
kvöldi. Það er farið að dimma
og Ijós bflanna og götuljósin
renna sainan i eitt Ijóshaf.
Myndina tók SkúliÞ. Ingimund-
arson.
Það er sýnilegt að október vikan að visu nokkuð svöl, en úr
mánuður nú i ár verður óvenju- þvi rættist, og frá 7. október
hlýr sé hann borinn saman við hefur hitinn alltaf verið fyrir
hitann i sama mánuöi á uridan- ofan meðallag nema þann 16.
gengnum árum. Vikuna 18.-24. október var
Samkvæmt upplýsingum óvenju hlýtt i veðri miðað við
Veðurstofu isiands var fyrsta árstima. — EKG.
Samdómo ólit sjómanna og forsœtisráðherra:
Viðrœður sjó-
manna og rikis-
valds til gagns
„Rikisstjórnin itrekar þá
skoðun sina að tilgangurinn með
þessum aðgerðum (samningum
rikisstjórnar og sjómanna) sé
fyrst og fremst sá að draga úr
óvissu um tekjubreytingar sjó-
manna á þessu hausti og nánast
að ábyrgjast að forsendur fisk-
verðsákvörðunar yfirnefndar
Verölagsráðs frá 1. okt. til 31.
des. standist.
Þetta segir m.a. i yfirlýsingu
þeirri er rikisstjórnin lét frá sér
fara með samþykki samstarfs-
nefndar sjómanna eftir að þess-
ir aðilar höfðu orðið sammála
um deiluatriði sin.
Á blaðamannafundum sem
þessir aðilar héldu kom m.a.
fram að viðræðurnar hefðu orð-
ið til hins mesta gagns. Gagn-
kvæm upplýsingaskipti hefðu
verið orsök þess að sættir náð-
ust.
Sjómenn lögðu áherslu á það á
sinum fundum að rýr kjör sjó-
manna væru i þann mund að út-
rýma sjávarútvegi sem at-
vinnugrein hér á landi. Nú orðið
væri nám I Stýrimannaskóla lé-
legasta fjárfesting sem fundin
yrði. Undanþágumenn færu 'á
sjóinn en réttindamennirnir 'i
land þar sem þeim byðust betri
kjör.
Sjómenn sögðu aðgerðir sinar
bæði hafnar yfir lög og pólitik.
Lög um undanþágur hefði rikis-
valdið sjálft brotið æ ofan i æ, og
allir stjórnmálaflokkar hefðu
staðið að gerð sjóðakerfisins.
Að lokum sögðu sjómenn að
þeir vildu færa þakkir til við-
semjenda sinna vegna skjótra
lykta málsins og eins vildu þeir
þakka sjómönnum fyrir þá
miklu samstöðu sem þeir hefðu
sýnt. Hún færði heim sanninn
um að samstöðumáttur sjó-
manna væri til. Það eitt væri
mikill ávinningur i þessari
deilu.
Kauphækkun
sjómanna
hliðstæð og hjá
landverkafólki
A blaöamannafundi sinum
sagði forsætisráðherra m.a. að
sjómenn hefðu tekið gilda yfir-
lýsingu rikisstjórnarinnar um
að þeir fengju hliðstæða hækkun
á timabilinu 1. okt. til 31. des, og
fólk i landi.
I verðlagningu yfirnefndar
verðlagsráðs var það lagt til
grundvallar að fiskverðshækk-
un næmi 3,5% að meðaltali.
Niðurstöður aflaskýrslna benda
hins vegar til þess að fremur sé
of lágt áætlað en of hátt.
Ef ríkisstjórnin hefði orðíð
við kröfum sjómanna um hækk-
un fiskverðs hefði það þýtt um
eins milljarðs kostnaðaraukn-
ingu, og miðað við að Verðjöfn-
unarsjóður var tómur var ekki
hægt að risa undir henni. Það
hefði og haft þær afleiðingar að
verðlagningarkerfi það sem við
nú búum við hefði verið brotið
niður. En I viðræðum sjómanna
og rikisvaldsins kom einmitt
fram samstaða um að það héld-
ist óbreytt.
—EKG
Harðorðir í garð Alþingis
og Sjónvarpsins srr"
„1 dag er nánast engin leið
fyrir okkur að fara út I gerð
heimildakvikmynda vegna fjár-
skorts. Aðstööuleysi islenskra
kvikmyndagerðarmanna er nær
algjört, og hér ríkir hið
einkennilega ástand að engin
kvikmyndalöggjöf er til, við er-
um u.þ.b. þrjátiu árum á eftir
Itinum Norðurlöndunum,”
sagöi Gisli Gestsson
kvikmyndagerðarmaður i
viðtali viö Visi.
Þingi norrænna kvikmynda-
gerðarmanna lauk i Norræna
húsinu á sunnudagskvöld. Þar
var formlega stofnuð Norður-
landadeild Fistav (alheims-
samtök kvikmyndagerðar-
manna).
Að sögn Gisla kom fram
mikill stuðningsvilji hinna
Norðurlandanna við isl. kvik-
myndagerðarmenn, en islenskir
félagar eru nú 33. A þinginu
voru gerðar ályktanir, þar sem
m.a. var skorað á Alþingi að
taka föstum tökum gerð lög-
gjafar um kvikmyndir og kvik-
myndasjóði, sem er sjálfsagt
grundvallarskilyrði fyrir þróun
alþjóðlegrar kvikmyndagerðar
á Islandi.a
I annarri ályktun segir svo:
„Norðurlandadeild Fistav
lýsir yfir fullum stuðningi við
félag kvikmyndagerðarmanna i
baráttu þeirra fyrir samningi
við islenska sjónvarpið.
Hin jákvæðu áhrif sem rikis-
sjónvarp ætti að hafa á
menningarlif hafa hingað til
ekki komið i ljós. Það er okkar
skoðun, að rikissjónvarp ætti
að lita á það serh frumskyldu
sina að hafa nána samvinnu við
innlenda kvikmyndagerðar-
menn, til þess að auka gæði dag-
skrár. Er það kappsmál hverrar
þjóðar að stuðla að bættri
aðstöðu kvikmyndagerðar-
manna sinna.”
Gisli sagði að það væri von og
vilji félagsins að þessi mál
leystust hið fyrsta á frijsam-
legan hátt, en ef i ha'. t færi
hefðu önnur aðildarlönu Fistav
lýst yfir eindregnum stuðningi
við islenska kvikmyndagerðar-
menn. -EB.