Vísir - 01.11.1975, Qupperneq 3
VÍSIR. Laugardagur 1. nóvember 1975
3
Þannig litur hann út, Ford'Granada GL 2300, frá Þýskalandi.
Innflutningur að hefjast
ó þýskum Ford bílum
Hagstætt gengi þýska marksins
og litil verðbólga i Þýskalandi
hafa leitt til þess að
Ford-umboðið Sveinn Egilsson
ætlar nú að hefja innfiutning á
þýskum Ford bilum.
Það ery þýsku útgáfurnar af
Ford Granada og Ford Capri
sem fluttar verða inn. Ford
Granada er fólksbfll af milli-
stærð. Hann er þó rúmbetri að
innan en margir ameriskir
bílar. Hægt er að fá tvær
útgáfur af þessum bil, með 2
litra vél, og með 2,3 litra vél. Sá
fyrrnefndi mun kosta i kringum
1900 þúsund, en sá sfðarnefndi
2370 þúsund með sjálfskiptingu
og vökvastýri.
Ford Capri billinn er með'
sportlegu sniði. GT útgáfan,
með 1,6 litra vél kostar u.þ.b.
1540 þúsund, en GT Sport tæp-
lega 1700 þúsund.
Sýningarbilar eru væntan-
legir til umboðsins siðar i
þessum mánuði.
—ÓII
Hneykslaðir á fram-
komu íslendinga
A ulþjóðþingi lögfræðinga i
Washington, sem haldið var í'yrir
skömmu, gætti þess mjög, að lög-
fræðingar og ekki sist dómarar,
væru mjög hneykslaðir vegna
þeirrar ákvörðunar islensku
rikisstjórnarinnar að láta ekki
fulltrúa sina mæta I Alþjóðadóm-
stólnum i Haag. Er þá átt við,
þegar kærumál breta á hendur is-
lendingum vegna útfærslu land-
helginnar, var tekið fyrir.
Þetta segja þeir Páll S. Páls-
son, hrl. og dr. Gunnlaugur Þórð-
arson, hrl., sem voru fulltrúar Is-
lands á þinginu.
A þinginu tók dr. Gunnlaugur
þátt i umræðum og ályktunum
um hafréttarmál, og færði rök
fvrir ákvörðun islendinga um út-
færslu landhelginnar i 200 milur.
Einnig tók hann þátt i umræðum
um hvalveiðar, og benti á hve
stranglega islendingar fylgdu
alþjóðlegum ákvörðunum um
takmarkaðar hvalveiðar.
Páll S. Pálsson tók þátt i funda-
höldum og nefndastörfum um
Alþjóðadómstólinn, en hann var
skipaður framsögumaður og skil-
aði ráðstefnunni sameiginlegri
ályktun um aukið valdsvið
Alþjóðadómstólsins. Um 4000
lögfræðingar sóttu þingið, en
meðal viðfangsefna þess voru al-
menn mannréttindi, flótta-
mannavandamálið, Alþjóðadóm-
stóllinn, hafréttur, hvalveiðar,
mengun lofts og sjávar og fleira.
EINN
HEIMUR
- EIN
STJÓRN
„Drottinvald Guðs” er stef
móts. sem hófst hjá vottum
Jehóva i Reykjavik á
fimmtudag. Þeir segja, að i
sambandi við þetta stef séu
mörg atriði. sem bendi á
hvers vegna Guð muni brátt
binda enda á þetta núverandi
kerfi og stofni rikið, sem
flestir kristnir menn biðji um
i „Faðir vorinu”.
Enginn strœtisvagn geng-
ur í stórt iðnaðarhverfi
i hverfi þar sem vinna um átta
hundruð manns gengur enginn
strætisvagn. Þannig er þetta i
Iðnvogunum og veldur að vonum
mikilli óánægju meðal þeirra er
þar starfa.
Þeir sem þar vinna eða þurfa
að leita þangað eru þvi tilneyddir
að eiga bD. Þeir sem ekki eiga bil
en þurfa einhverra erinda i Iðn-
vogana taka þá leið tvö og ganga
svo afganginn. Og það er ekki
sérlega björguleg leið.
Ekki fyrirfinnst nein gangstétt
og niður bratta brekku þarf að
fara. Þar myndast oft hið mesta
forað og á vetrum koma hættu-
legir hálkublettir.
Þeir sem þurfa að fara yfir
Elliðavoginn verða að sæta lagi,
þvi bilar þjóta stöðugt eftir hrað-
brautinni.
Visir bar málið undir Eirik
Ásgeirsson, forstjora SVR, sem
sagði:
„Við getum ekki bætt úr þessu
nema hafa til þess fjármagn. Þar
sem þetta er atvinnuhverfi er
þörfin eðlilega mest i upphafi og
við lok vinnutima. Þó þurfa vitan-
lega ýmsir að leita þangað á
öðrum timum.
Ekki er rekstrargrundvöllur
fyrir þvi að sérstakur vagn gangi
þangað og útilokað er að leið tvö
geti farið þarna um.
A sinum tima var reynt að
tengja hverfið við nýja leiða-
kerfið en það tókst ekki. Siðan
hefur þetta mál ekki verið á dag-
skrá. Sjálfsagt er nú að huga að
þvi hvort ekki sé hægt að setja
viðkomustöð á’leið 12 sem næst
hverfinu, áður en vagninn beygir
upp á Miklubraut.”
—EKG
A mótinu verða meðal
annars sýnd ljögur leikrit.
sem eiga að stuðla að aukn-
um skilningi á spádómlegum
fyrirmyndum Bibliunnar og
þýðingu þeirra fyrir menn.
Hámarki nær mótið á
morgun, sunnudag, en þá
veröur fluttur fyrirlestur,
sem nefnist „Einn heimur.
ein stjórn vegna drottins-
valds Guðs”. Friðrik Gisla-
son flytur þetta erindi.
Hliðstæð mót hafa verið
haldin viða um land i sumar.
og er búist við gestum viöa af
landinu. Voltar Jehóva hafa i
söfnuði sinum Bibliuskóla. v
og bjóða ókeypis Bibliunám.
Allir eru velkomnir á þella
mót, sem er haldið að
Sogavegi 71.
67 ÁRA OG ELDRI
FÁ ÓKEYPIS KAFFI
Eyfirskar konur í Reykjavík safna fé
Kvennadeild Ey firðingafé-
lagsins I Revkjavik hefur kaffi-
sölu og fjölskyldukaffi i Súlnasal
Hótel Sögu á morgun, sunnudag,
klukkan 15. Þar verður einnig
basar og kvenfélagið býður sér-
staklega ölluni eyfirðingum 67
ára og eldri ókcypis veitingar.
Þessi kaffisala hefur verið ár-
legur viðburður, og vel sótt af
norðlendingum, sem búa hér
syðra.
Að undanförnu hefur Eyfirð-
ingafélagið styrkt margvislega
liknar- og menningarstarfsemi
norðanlands, meðal annars lagt
fram fé til hjartabils á Akureyri
og til Minjasafnsins. Agóða af
kaffisölunni á morgun verður
varið til sambærilegra mála fyrir
norðan.
RÆÐA STÖÐU ÁHUGA-
LEIKHÚSANNA . .
Um þessa helgi
minnist Bandalag is-
lenskra leikfélaga, BÍL,
þess, áð 25 ár eru liðin
frá stofnun félagsins.
Þetta er gert með ráð-
stefnu, þar sem fjallað
er um stöðu áhugaleik-
félaga, starf þeirra og
stöðu.
Ráðstefnuna sækja um 40
fulltrúar hvaðanæva af landinu,
og auk þess er boðið gestum frá
stofnunum og, félagasamtökum
tengdum leiklistarstarfi. Fylkir
Agústsson, fulltrúi Litla leik-
klúbbsins á tsafirði flytur fram-
sögu um viðfangsefni ráðstefn-
unnar. Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, flytur
ávarp, og nokkur erindi verða
flutt.
Ráðstefnan verður i Tjarn-
arbúö og hefst klukkan 14 i dag og
á morgun.
Hreindyrasteikur okkar
eru í sérflokki
og Nautasteikurnar, í
miklu úrvali.eru ekki síðri.
Pizzurnar okkar eru
rómaöar, en þar höfum
við líka langa reynslu
að baki.
Sendum heim of óskaó er Smárétt
fyrir einn eóa smttur fyrir heilt partý
— en þá veróur að
Vió bjóóum yóur skjóta
þjónustu i þægilegu
og notalegu umhverfi
Ljuffengt
og gott
HALTI HANINN
LAUGAVEG 178 (VIÐ HLIÐINA Á SJÓNVARPINU)
FJÖLBREYTTUR MATSEÐILL
Við bjóöum í dag fjölbreyttari
matseðil en nokkru sinni áður —
m.a. 28 steikur, 15 tegundir af
pizza og 20 smárétti.
Allir réttir okkar eru sérlagaðir.
Við höfum opið frá kl. 9 - 21.30
alla daga nema sunnudaga 10-21.30.