Vísir - 01.11.1975, Blaðsíða 14
14
VtSIR. Laugardagur 1. nóvember 1975 .
Þurfti óður að boða sig
í gömlum bala, hefur nú
innanhússsundlaug ...
George Kennedv og Charlton Heston við töku myndarinnar Earth-
quake sem varð nærri þvi að raunverulegum harmleik.
Þó var ég
hrœddastur
George Kennedy segir fró er
hann var hœtt kominn við töku
myndarinnar „Earthquake"
Söngvarinn Tom Jones hefur
tryggt foreldrum sinum
áhyggjulaus elliár.
„Tom erokkur indæll sonur —
okkur þarf aldrei að skorta
neitt”, sagði faðir hans Tom
Woodward. „Við þurfum engar
áhyggjur að hafa.”
Aður en Thomas Jonas Wood-
ward, eins og söngvarinn heitir
fullu nafni, varð frægur, þrælaði
faðir hans i kolanámunum i
Wales, og móðir hans reyndi að
fá endana til að ná saman.
I dag búa Woodward hjónin i
húsi, sem hinn frægi sonur
þeirra keypti handa þeim fyrir
um 18 mánuðum siðan. Það er
rétt hjá setri sonar þeirra i út-
jaðri Lundúna.
„Þetta hefur allt verið einna
draumi likast”, sagði Freda,
móðir Tom, en hún er nú sextug
að aldri.
Húsinu fylgir fagur garður
innanhússsundlaug og golf-
braut.
Faðir söngvarans, sem nú er
65ára segir: „1 húsinu, þar sem
við bjuggum áður, var ekkert
baðherbergi. Á kvöldin eftir að
ég kom heim úr vinnunni, bað-
aði ég mig i gömlum bala fyrir
framan eldinn.”
„Tiu árum eftir að Tom gaf út
sina fyrstu hljómplötu, bauð
hann okkur þessi konunglegu
lifskjör. En við vildum biða að-
eins með að þiggja þau.”
En ári siðar skipaði Tom föð-
ur sfnum að hætta vinnu i nám-
unum og keypti handa þeim hús
i útjaðri Lundúna. Þá ók faðir
hans — sem var 56 ára gamall —
bil i fyrsta sinn.
Woodwardhjónin halda enn
tengslum við gamla vini sina og
heimsækja Wales oft i bil sinum.
Þegar Tom er á hljómleika-
ferðalögum, er faðir hans bil-
stjóri hans.
Foreldrar Tom hafa einnig
kynnst vinum hans úr skemmt-
anaheiminum, en á meðal
þeirra má nefna Elivs Presley,
Andy Williams, Osmonds og
Liberace.
„Tom hefur verið okkur
indæll sonur, alveg dásamleg-
uij” sagði móðir hans stolt.
„Hann verður að vinna mikið,
og nú hefur hann gefið okkur allt
þetta. En þegar við litum yfir
hið liðna, eru erfiðu árin okkur
samt minnisstæðust.”
Hún sýndi blm.litinn, svartan
málmfil, sem Tom hafði gefið
henni, barn að aldri.
„Sá f 111 kostaði um 500 kr. sem
voru miklir peningar i þá daga.
Tom sem var 10 ára þá, hafði
heimsótt dýragarðinn og safn-
aði siðan peningunum fyrir
gjöfinni. Ég sagði honum, að
hann hefði ekki átt að eyða þeim
en hann sagði þá. „Þú ert þess
virði, mamma.”
Ég hafði það einhvern veginn
á tilfinningunni, að vatnið i
göngunum stigi of hratt. Sfðan
heyrði ég mikil óp og þá virtist
sem allar flóðgáttir vitis opnuð-
ust.
Við Charlton Heston og 150
fleiri vorum að taka upp atriði i
„Earthquake” þegar eitthvað
fór úrskeiðis og við höfðum
næstum þvi drepist af raflosti.
í atriðinu, áttum við aðvera
innikróaðir i neðanjarðargöng-
um og með þúsundir litra vatns
streymandi inn.
Ég hugsaði: „Þetta er nú
aldeilis fint. Vatnið alveg flæðir
inn.” Þá byrjuðu öskrin og að-
stoðarleikstjórinn okkar, Fred
Simson kallaði: „Takið rafalinn
úr sambandi.” Þá vissi ég að við
vorum i mikilli hættu staddir.
Skyndilega stóðum við allir i
vatni upp undir höku þarna i
göngunum. Seinna komst ég að
þvi, að vatnið, sem hafði átt að
streyma framhjá okkur og i
geymi bak við sviðið, skolaðist
þess i stað til baka, vegna þess
að einhver hafði gleymt að opna
geyminn.
Ég hef lent i ýmsu á 25 ára
leikferli minum, en aldrei hef
ég orðið jafn hræddur og þarna.
Við Charlton gripum i stál-
brikur, sem þarna voru og héld-
um okkur dauðahaldi. Tveir
kvenstatistar flutu framhjá
öskrandi, ég gat gripið i þær og
lyft þeim upp á brikurnar.
Vatnið flæddi yfir myndavél-
arnar og rafkerfið sem gaf
mörg þús. volta straum fyrir
ljósin og annan útbúnað. Við
hefðum öll fengið raflost, hefði
Fred ekki náð að taka rafalinn
úr sambandi.
Loksins þegar ég skreið út úr
göngunum úrvinda, mætti ég
öðrum leikara, sem hafði fengið
taugaáfall. Hann muldraði:
„George við vorum nærri dauð.
Gerirðu þér grein fyrir þvi?”
Ég fylltist yfirþyrmandi löng-
un til að gráta af fögnuði. Mér
hefur aldrei fundist ég jafn-
tengdur konu minni og börnum.
Þetta atvik, var óumdeilan-
lega það hræöilegasta sem ég
hef lent i um ævina.
Kaðirinn fyrir utan stórhýsiö sein kostaði næstum 30 rnillj. kr.
Foreldrar Tom Jones eiga áhyggjulausa daga fram undan.
Leikn-
usty
vllrit
arar
heises
■HOHBnBaaBHtgn
Rodalben er smábær i
Rhineland-Palatinehéraðinu,
hér um bil miðja vegu milli
Pirmasens og Kaiserslautern.
Þartilfyrirnokkrum vikum var
þetta litla samfélag óþekkt og
ekki i fréttum.
Rodalben varð fyrst frægt af
11. alþjóðakeppninni i vélritun,
sem haldin var i Budapest ný-
lega. Lið bæjarbúa vann tvö
heimsmet og hópur ungmenna
frá Rodalben lenti i hópi færustu
vélritara heims i yngri flokkun-
um. Af tiu fljótustu vélriturum i
keppninni, voru fimm úr liði
bæjarbúa og fjórir lentu i hópi
þeirra vandvirkustu.
Vandvirkasti vélritari heims
er nú Liane Klein (t.v.) sem sló
476 stafi á minútu, án þess að
gera eina einustu villu. Fljótasti
vélritari er Gunther Matheis
(t.h.) sem sló 581 staf á minútu.
Þjálfari liðsins er Josef
Buschine (i miðju) en þrir i liði
hans eru nýlega orðnir þrettán
ára.
■■■■■■■■