Vísir


Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 3

Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 3
VtSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 3 Borgar sig að prjóna lopapeysur? Hvað er tímakaupið? Ætli þaö borgi sig að prjóna lopapeysur og selja i verslanir? Ég get auðvitað prjónað ínér til ánægju á kvöldin, það er nyt- samara cn að gera ekki neitt. En frá peningalegu sjónarmiði (núverandi algildu sjónar- miði?) verður dæmið frekar óhagstætt. Lausleg athugun leiðir i ljós að verslanir borga frá 2.200 upp i 2.800 krónur fyrir hverja peysu, mismunandi eftir þvi hvað hún er stór og hvort hún er heil eða hneppt. Efniskostnaður verður frá ca. 550 upp i 580 krón- ur á peysuna, ef ég kaupi lopann i þeirri verslun sem ég ætla að selja peysuna i. Annars er lop- inn tvö þrjú hundruð krónum dýrari hvert kiló. Kaupiðmitt er þvi frá ca. 1650 til 2.100 fyrir hverja peysu, og hvaða timakaup fæ ég út úr þvi? Ég er nú ansi lengi að prjóna, en þó ég væri fljót hlyti ég að vera 10-15 tima með peysuna, prjóna hana og ganga frá henni. Þetta verða liklega engin uppgrip i peningum. En viti menn, tarna. er svolitið skrýtið. Ef ég harka þessu nú i framkvæmd og fer með peysuna mina i verslun, þá er visast að einhver kaupi grip- inn i búðinni fyrir rúmar fjögur eða jafnvel tæpar fimm þúsund krónur. Verslunin fær þá eftir allt saman meira fyrir að selja peysuna heldur en ég fæ fyrir að prjóna hana. Ég held ég stein- hætti við þetta. — EB Ekkí olvarleg hœtta á atvinnuleysi fram að óramótum ,,Ég tel ekki alvar- iega hættu á atvinnu- leysi fram að áramót- um. Hins vegar verður atvinnuástandið iskyggilegt ef frysti- húsin stöðvast og togarar fara almennt aö sigla,” sagði Guð- mundur J. Guðmunds- son, varaformaður Dagsbrúnar, þegar Visir spurði hann um atvinnuhorfur i vetur. „Segja má að atvinna hafi verið næg siðan togaraverkfall- ið leystist. Viða hefur jafnvel vantað verkamenn til vinnu. Ef tið helst sæmileg er ekki nein hætta á atvinnuleysi i bygg- ingariðnaðinum og sums staðar innan hans vantar fólk til vinnu. Mönnum hefur verið sagt upp i Sigöldu. Þvi má búast við nokkurri lægð um miðjan nóvember. Enn er óráðið hversu margir munu vinna á Grundar- tanga.” Um atvinnu sl. sumar sagði Guðmundur: „Það sem bjargaði atvinn- unni sl. sumar voru stórfram- kvæmdirnar. Ég man hn)dur varla eftir þvi ef undan eru skil- in sildarárin að fólk héðan úr Reykjavik leitaði i svipuðum mæli út á land til þess að vinna og það geröi nú i sumar. Það má segja að varla hafi verið til það frystihús þar sem ekki unnu fleiri eða færri unglingar úr Reykjavik.” Um atvinnuhorfurnar eftir áramótin sagði Guðmundur: „Það er varla nokkur til sem þorir að spá svo langt fram i timann. Nú i sumar hefur ekki verið byrjað á jafn-mörgum nýjum húsum og undanfarin ár. Þess vegna er ég hræddur um byggingariðnaðinn seinni part- inn i vetur. Að auki er það sýni- iegt að framkvæmdir úti á landi eru að dragast saman. En það er greinilegt að menn sækja i æ rikara mæli i stór- framkvæmdir þar sem unnið er á vöktum og þénusta er mikil. — EKG — segir Guðmundur J. Guðmundsson Til foreldra vangefinna barna í Reykjavík Skólataiinlækningar Iieykjavikur hafa til- kyniit aö sökuin tannlækiiaskorts veröi ekki liægt aö annasl tannviögerðir vangef- inna barna á skólaskyldualdri á vetri komanda. Aðstandendur þessara barna verða þvi að sjá um að þau fái nauðsynlega tannlækna- þjónustu. Jafnframt er bent á að Sjúkra- samlag Reykjavikur endurgreiðir að fullu kostnað við tannviðgerðir vangefinna barna á aldrinum 6-15 ára. Styrktarlelag vangefinna. Skortur á skólatannlœknum: Vangefnum börnum er vísað fró „Okkur vantar sjö til átta tannlækna i viðbót til að geta sinnt fyllilega hlutverki okkar. Fimm tannlæknar hættu i fyrra, og ekki hefur tekist aö fylla i skarð þeirra.” Þetta sagði Óli A. Bieltvedt yfirskólatannlæknir i Reykjavik i viðtali við Visi i morgun. Hann sagði, að vegna þessa gætu skólatannlækningar Reykjavikur liklega ekki sinnt tannviðgerðum barna eldri en 10 ára i vetur. Að þvi er stefnt að skólatannlækningar sinni i framtiðinni öllum börnum á aldrinum 6 til 15 ára. „Eldri börnin verða i vetur að sækja til annarra tannlækna i borginni. En Sjúkrasamlagið greiðir að sjálfsögðu tannvið- gerðirnar,” sagði Óli. Skortur á skólatannlæknum hefur m.a. valdið þvi að þurft hefur að visa vangefnum börn- um frá. Styrktarfélag vangef- inna hefur bent foreldrum van- gefinna barna á að þeir geti ekki leitað til skólatannlækna með börn sin. —ÓH VERÐLAGSDÓMUR ÍHUGAR HVERNIG Á SKULI TEKIÐ Verðlagsdómur athugar nú óleyfilega háa álagningu iðn- meistara á mælingataxta. Sverrir Einarsson, sakadómari i Reykjavik, formaður dómsins, skýrði Visi frá þvi, að dómurinn væri m.a. að hugleiða hvernig taka skyldi málið fyrir. Málið er sérstætt að þvi leyti, að ekki er neinn einn aðili kærður, heldur stéttir manna, aðallega húsasmiðir, múrarar, pipulagn- ingamenn, málarar og vegg- fóðrarar. Eins og fram hefur komið, hafa þessar stéttir iðnaðarmanna orðið uppvisar að þvi að hafa álagningu i mælinga- töxtum of háa. Gunnar Eydal héraðsdómslög- maður starfar ásamt Sverri Einarssyni i verðlagsdómi. — ÓH FASTEIGN TIL SÖLU SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Til sölu er í borginni 300 ferm. húsnœði sem innréttað hefur verið fyrir skrifstofur og fundorsali. Eignin selst í einu lagi eða skipt. ÍBÚÐA- SALAN Gegnt Gamla Bíói sími 12180 Kvöld- og helgarsími 20199

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.