Vísir - 04.11.1975, Blaðsíða 4
MIKIÐ STÆRÐARURVAL
V %+IERRA
ftflRÐURINN
»V AflALSTRŒTI 8 - SÍM1 12234
Viltu láto þér
líða vel
allan sólarhringinn?
Undirstaða fyrir góðri líðan er að sofa vel.
Hjá okkur getur þú fengið springdynur í
stífleika sem hentar þér best.
Og ef þú ert í vandræðum með að f inna hjóna-
eða einstaklings rúm, þá ertu viss um að f inna
það hjá okkur.
VERTU VELKOMINN!
Springdýnur
Helluhrauni 20, Sími 53044.
Hafnarfirði
iionnar* vugna sta'öbundins raímagns. ^
Hykiö skemmir hijómplutufia, veldur ™
É brcstum í hátölui’um 0/4 rýrir tón^u*Sin.
w Mi*Ö því að nota kolplötuna, liveríur- hiö
staðbundnu ralinagn, l.’ir þá auðvclt aö
l'jarlægja i’ýkiö meö þurrum burstá. Anti-static
kolplatan cr því ómissándi hlutur tyrir, þann,
sem nerir miklar krölur tii tónga*ða og góörar
ending'ar á dýrmætum hljómplötum. -
l'ast aöeins’í HAKiMNDAXÆKl, GLÆSIIiÆ,
Sendum gogn ppatki’öi'u
>_ pafeinóstaeM
Glæsibæ
Sími 81915
VÍSIR. Þriöjudagur 4. nóvember 1975
ap/ntEbR ^UN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Liðsauki Fords
HINN NYI
FORSTJÓRI CIA
Hinn nýi yfirmaöur CIA,
George Bush, sem Ford hefur
sett til aö taka viö af William
Colby á aö baki iitrlkan — og
líka um leiö brokkgengan —
feril.
Þessi myndarlegi og sjálf-
öruggi diplómat er af vell-
auöugri Texas-fjölskyldu kom-
inn og þykir draga keim af þvl I
dagfari sinu. Fyrirmannlegur,
en um leið heimsmannslega
ljúfmannlegur.
Um Bush skrifaði einn Texas-
búi einhvern tima: „Akafur,
einlægur og metorðagjarn synd-
ir hann í gegnum skituga pen-
inga lifsins með glæsilegri lip-
urð.”
Þrátt fyrir auðinn hefur_
Bush mátt kyngja ýmsum’
beiskum ósigrinum i áhrifastig-
anum. Til að mynda þegar hon-
um mistókust óopinberar til-
raunir til að hljóta- útnefningu
Fords sem varaforseti hans.
Eða þegar hann tapaði kosningu
til öldungadeildarinnar (eftir að
hafa setið 2 ár I fulltrúadeild-
inni,) og hafði hann þó mokað i
kosningabaráttuna milljónum
dollara.
En velgengni hans sfðar þykir
meira en vega slika ósigra upp.
Að loknum kosningunum þar
sem hann laut i lægra haldi var
Bush gerður að sendiherra U$A
hjá Sameinuðu þjóðunum 1964.
Það sem Bush skorti i reynslu,
þótti hann vinna þar upp með
áhuga sinum, kimni og vinnu-
semi.
Atján mánuðum siöar gerði
Nixon hann að formanni lands-
nefndar repúblikanaflokksins.
Þar gat Bush sér orðs sem lipur
milligöngumaður.
Þegar Ford forseti gekk
framhjá Bush og valdi Nelson
Rockefellar fyrir varaforseta
setti hann Bush yfir sendinefnd
USA I Peking. Þótti þeirri veg-
semd fylgja meiri vandi en öðr-
um sendiherrastöðum þrátt
fyrir að ekkert stjórnmálasam-
band væri milli rikjanna.
Bar mjög á Bush I Peking I
þessu embætti. Þessi hávaxni
Texasbúi gnæfði yfir mann-
fjöldann, þar sem hann fór dag-
lega á reiðhjóli sinu um stræti
Peking, hvort sem það var til
viðhafnartækifæra þar sem
hann var tiður gestur, eða til
tennisleikja að kvöldi þar sem
hann þykir meðhöndla spaðann
fimlega.
Þrátt fyrir þrjú embætti þykir
hann nokkuð reynslulitil fyrir
forstjórastöðu CIA, leyniþjón-
ustu Bandarikjanna. En flestir
búast við þvi að hann bæti sér
það upp með eldmóði og elju-
semi, eins og ávallt.
NÝI VARNARMÁLA-
RÁÐHERRANN
Donaid Rumsfeld sem Gerald
Ford forseti hefur valiö fyrir
eftirmann Schlesingers varnar-
málaráöherra, er af flestum tal-
inn mikill vinnuþjarkur, met-
oröagjarn en þó meöal aögengi-
legri stjórnmálamanna repú-
bllkana.
Sem starfsmannastjóri Fords
I Hvita húsinu, hefur hinn 43 ára
gamli Rumsfeld getið sér orö
fyrir röggsama stjórnun, góöa
skipulagningu og fyrir að hafa
OPNAÐ Hvita húsið, en skrif-
stofur forsetans höfðu þótt ein-
angrast mjög I tið Nixons.
Hafi bandamenn USA i NATO
kviðið þvi að sá sem við tæki af
Schlesinger kynni að vilja draga
úr framlagi Bandarikjamanna
til sameiginlegra varna NATO,
þá mun skipan Rumsfelds gera
þeim hughægra aftur.
Rumsfeld (sem var flugmað-
ur og slöar flugkennari i flotan-
um) var ambassador USA hjá
NATO frá 1972 til 1974 ,og þótti
þá eindreginn talsmaður
styrkra varna Vesturlanda gegn
herveldi Sovétrikjanna. Þaö er
talið að hann sé enn sama sinn-
is.
Þeger Ford forseti tók viö
stjórn Nixons i molum varhann
ekki höndum seinni aö kalla
Rumsfeld heim og setja hann
starfsmannastjóra i stað Alex-
anders Haigs hershöfðingja.
NÝI VIÐSKIPTA-
MÁLARÁÐHERRANN
Elliot Richardson sem Ford
Bandarik jaforseti hefur nú
skipaö I embætti viöskiptamála-
ráöherra var meöal þeirra
embættismanna Nixons, sem
slapp frá Watergatemáiinu meö
æruna. Hann varö jafnvel um-
talaöur sem hugsanlegt fram-
boösefni til forsetakosninga.
Viröinghansogálitútá við óx
feiknarlega þegar hann sagði
af sér embætti dómsmálaráð-
herra Nixons 1973 fremur en
hlýða fyrirmælum forsetans um
að reka Archibaid Cox sak-
sóknara sem vann að rannsókn
Watergatemálsins og virtist
ekki ætla að vægja stjórn Hvita
hússins í rannsókn sinni.
Þótti afsögn Richardsons hafa
átt ekki litið þátt i þvi að Nixon
hætti við að liggja á hljóðritun-
um og öðrum gögnum heldur af-
henti þau rannsóknaraðilum.
Nú siðustu vikur heíur þó
komið skuggi á skjöld Richard-
sons þegar hljóðritanir frá sam-
tölum hans við Archibald Cox
leiða i ljós að dómsmálaráð-
herrann hafi á fyrstu vikum
rannsóknarinnar lagt að sak-
sóknaranum að vera ekki aö
grufla of nærri Hvita húsinu.
Það mun hann hafa endurtekið
nægilega oft i' simtölum við Cox
til að valda sér óþægindum,
ef dregið yrði fram i sterkt
sviðsljósið — einsog hugsanlega
yrði gert ef hann færi einhvern
tima I forsetaframboð. Ennþá
hefur það þó ekki bagað
embættisframa Richardsons
neitt.
Richardson er meðal reynd-
ustu stjórnmálamanna i
embættisliði Hvita hússins.
Hann hefur gegnt embættum
varnarmálaráðherra, heil-
brigðis- félags- og menntamála-
og auðvitað dómsmála.
Elliot Lee Richardson er
skyldur Cabot-f jölskyldunni
frægu, fæddur i Boston 1920.
Eins og Cabot, Lowell og
Lodge-f jölskyldurnar eru
Richardsonarnir þekktir I
Boston undir nafninu
„Brahminarnir” — eins og
Indverjar kalla æðstu stéttar-
fólk.
Hann nam lög við Har-
vard-háskóla, vann til heiðurs-
peninga fyrir hetjudáðir i fót-
gönguliðinu þar sem hann tók
meðal annars þátt i landgöng-
unni á D-degi á strönd
Normandi.
Richardson lét af lögfræð-
ingsstörfum upp úr 1950 til að
helga sig stjórnmálum. Hann
var aðstoðarráðherra i stjórn
Eisenhowers. Hann var kosinn
aöstoðarfylkisstjóri Massa-
chusetts 1964 og siðar saksókn-
ari fylkisins. — Hann reis aftur
til hærra embætta, þegar Nixon
náði forsetakjöri 1968.