Vísir - 04.11.1975, Síða 5

Vísir - 04.11.1975, Síða 5
VISIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 5 lönd í MORGUN útlöndí MORGUN útlönd í morgun UTL Umsjón: Guðmundur Péfursson SPÁNVíRJAR HiR- VÆÐAST í SAHARA Spánn hefur nú her- væðst i nýlendu sinni i Vestur-Sahara þar sem bærinn A1 Aaiun er nú kominn með svip her- búða. Þar úir og grúir af hermönnum gráum fyrir járnum meðan ibúar hafa sumir hverjir verið fluttir burt og allir útlending- ar forða sér. Spánarstjórn hefur lýst þvi yfir að hún mæti sérhverri inn- rás erlendra rikja i Sahara með hörðu. — Það varð til þess að Marokkó hefur hikað við að senda 350.000 manna óvopnað lið fdtgangandi inn i eyðimörk- ina eins og ætlunin var. En hversu lengi gönguher Hassans konungs biður á landa- mærunum, þar sem þessum 350 þúsundum hefur verið safnað saman, treysta menn sérekki til að segja fyrir um. — I morgun kom upp kvittur úm að gangan mundi siga af stað strax á morgun. A meðan notar' spænska varnarliðið i nýlendunni timann til að styrkja varnirnar. Sandpokavigjum og vélbyssu- hreiðrum hefur verið hróflað upp í skyndi á öðru hverju götu- homi E1 Aaiun, en þangað er gönguliðinu stefnt. — Að visu verða göngumenn óvopnaðir, en Hassan konungur hefur lýst þvi yfir að hann muni senda Marokkoher á vettvang reyni einhverjir að hefta för göngu- fólksins um Sahara. Spánn hefur kúvent i málinu. Áður hafði Spánarstjórn íátið liklega um að hún skipti sér ekki af þvi ef Marokkó og Mauritania skiptu milli sin ný- lendunni um leið og Spánn sleppti af henni hendi. Um Súez- skurð til ísraels Fyrsti skipsfarmurinn seni israelum hefur borist i gegn- um Súez-skurð i átján ár kom til Eilat i nótt meðan flestir voru i l'aslasvefni. S500 lesta griskt flutninga- skip „Olympus” lagðist að brvggju með sement frá Rúmeniu, og voru ekki aðrir á kajanum en öryggisverðir og umboðsmaður. Sigling skipa um Súez-skurð með flutning til israels var beiiniluð el'tir samninga milli Egyptalands og israels, sem Kissinger utanrikisráðherra hlulaðist tii um. Egyptar munu þó ekki lileypa skipum i gegn sem l'lytja hergögn til israels. Geller hremmdi vinninginn við nefíð á Spassky Boris Spassky, fyrrum heims- meisyari i skák, hefur greini- lega sótt i sig veðrið i skákinni eftir brúðkaup sitt og frönsku stúlkunnar sem sove'sk yfirvöld tregðuðust við að leyfa. Hann varð þó að láta sér nægja annað sætið í minningar- móti Alechins sem lauk i Moskvu í gær. Munaði þar ein- ungis skákinni við sigurvegar- ann sjálfan Yefim Geller sem Spassky tapaði. — Geller, sem lengst hefur komist til einvigis um áskorunarréttinn (fyrir 10 árum), kom mjög á óvart með þvi að vinna mótið. Þátttakendur voru flestir sterkustu og kunnustu skák- menn Sovétrikjanna og viðar. — En lesendur geta sjálfir lagt mat á styrkleika mótsins með lestri á upptalningu úrslitanna hér: 1. Geller 10 1/2 vinning. 2. Spassky 10 vinninga.' 3. Vaga- nyan, Korshcnoi, Kholmov 9 1/2 vinning. 6. Hort (Tékkósl.) og Petrosjan 9 vinninga. 8 Beljav- sky og Tal 8 1/2 vinning. 10. Forintos (Ungvl.) 7 vinninga. 11. Byrne (USA) 6 vinninga. 12. Garcia (Kúbu), Lengyel (Ungv.l.) 5 1/2 vinning. 14. Planinc (Júgósl.) 5vinninga. 15. Stean (Engl.) 4 vinninga. 16. Böm (Holland) 3 vinninga. Spassky og hin nýja eiginkona hans, Maria. — Eftir óþökkina sem heimsmeistarinn fyrr- verandi lenti i þegar hann missti titiiinn hefur honum vegnað verr i skákiþróttinni þar til núna. FRANCO Læknar Francos hafa þungar áhyggjur af líðan hans, en þeir neyddust til að gera á honum aðgerð i nótt til að stöðva heiftar- legar magablæðingar. Það var með hálfum huga sem þeir lögðu hinn 82 ára gamla Fyrsta konan sem sótt er til saka fyrir tilrœði við forsetann Lynette Fromme, fyrsta konan sem sótt er til saka fyrir tilraun til að ráða Bandarikja- forseta af dögum, kemur fyrir rétt i dag, og er mikill öryggisvið- búnaður hafður á. Þessi meðlimur morðingjafjöl- skyldu Charles Mansons á yfir höfði sér allt að ævilangt fangelsi fyrir að munda skammbyssu að Ford forseta þegar hann var á ferð i Sacramento i Kaliforniu. Mál þetta verður fyrir ýmsar sakir prófmál i bandariskum rétti. Þetta verða fyrstu réttar- höldin þar sem forsetinn ber sjálfur vitni, en að visu kemur hann ekki fram i eigin persónu, heldur birtist á myndsegulbandi. ÞRAUKAR ENN sjúkling sinn undir skurðhnifinn þar sem hann hefur legið þungt haldinn i tvær vikur eftir hjarta- áföll. En hershöfðinginn heyr sitt dauðastrið af sömu hreystinni og hann sýndi i borgarastyrjöldinni á Spáni fyrir 40 árum. Aðgerðin heppnaðist vel, en viðnámsþróttur sjúklingsins fer dvinandi eftir þung veikindin — auk þess sem hann er ekkert ung- lamb lengur. — Framburður hans var hljóðrit- aður i 19 minútna yfirheyrslu verjandans sem sóttu forsetann heim til Hvita hússins á laugar- daginn. Þetta er ennfremur fyrsta mál- ið sem höfðað er eftir að sett voru ný lög 1967 um tilræði við Banda- rikjaforseta. I upphafi réttarhaldanna (sem hefjast kl. 6 i dag) verður valið i kviðdóminn sem búist er við að taki eina þrjá daga. Þar verður án efa dregið strax fram i dags- ljósið mál Charles Mansons, hippahöfðingjans sem ásamt sjö fjölskyldumeðlimum sinum myrti leikkonuna Sharton Tate i eiturlyfjavimu hippanna. Leik- konan gekk með barni og vakti morðið mikinn hrylling, en Man- son var dæmdur i ævilangt fang- elsi. Fjölskylda hans, eins og hippa- hópurinn var nefndur, hefur hald- ið saman siðan, og sumir meðlim- ir hennar verið fundir sekir siðan um önnur morð. — Fylgikonur Mansons hafa haldið mikilli tryggð við hann og aldrei linnt látunum til að reyna að fá yfir- völd til að sleppa honum úr fang- elsi. Stendur almenningi I Banda- rikjunum nokkur stuggur af „fjölskyldunni” sem hefur spilað á þá strengi i bréfi til meðfanga Mansons að biðja þá að létta Manson fangavistina. Með nekt- armyndum af fylgikonum Man- sons er látið i veðri'vaka, hverja umbun þeir muni hljóta, er þeir reynast hippahöfðingjanum vel. Það er búist við þvi að á siðari stigi málflutningsins muni verj- andinn byggja vörnina aðallega á þvi vafaatriði, hvort Lynette Fromme hafi ætlað að hleypa skoti af þegar hún mundaði byss- una að Ford forseta. Saksóknarinn getur leitt vitni að þvi að hún tók i gikkinn og bóg- urinn small af, en ekkert skot var i hlaupi byssunnar. — Var það af klaufaskap að Lynette gleymdi að - renna skoti úr hleðsluhylkinu upp i hlaupið, eða var það að yfirlögðu ráði vegna þess að hún ætlaði sér aldrei að skjóta forsetann? Takist verjandanum að sann- færa kviðdóminn um hið siðar- nefnda, getur skjólstæðungur hans vænst miidari dóms.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.