Vísir


Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 9

Vísir - 04.11.1975, Qupperneq 9
VÍSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 9 cyyienningarmál Laugarásbió 7 morð (The Crimes og the Black Cat) ttölsk. Enn ein ítSlsk trfþreying OSVIKIN ÁNÆGJA — í sviðsljósi Chaplins Hafnarbió Limelight — Sviðsljós. Bandarlsk, 1952 Höfunduur framleiðandi og ieikstjóri: Charlie chaplin Meistari Chaplin svíkur aldrei neinn og allra sist með þessari mynd sinni. Hann hefur verið aldeilis i essinu sinu, þegar hann vann að henni enda höfund- ' ur alls sem þar sést JTann er sér fræðingur i að spila á tilfinningar manna, annað veifið framkallar hann hjartanlegan hlátur, hitt skiptið eru menn gráti nær. Og hann er aldeilis i essinu sinu i Sviðsljósi, þvi þar er hann heimavanur og einhvern veginn finnst mér að hann hafi með þessari mynd verið að gera smá-úttekt á sinu eigin lifi. Myndin fjallar um uppgjafar- grinista, sem hefur nær gefið sig Bakkusi á vald. Einn daginn er hann kemur heim finnur hann gaslykt og stafar hún af þvi að ung stúlka i húsinu er að reyna að fremja sjálfsmorð. Calvero (Chaplin) bjargar Terry (Clarie Bloom) og reynir að endurvekja með hennl lifslöngun. Það gengur illa en i baráttu sinni hrjóta mörg gullkornin af vörum Calveros. Um siðir snýr stúlkan aftur til starfa en hún hafði verið dansmær. Hún vinnur sig brátt upp, en siðasta tækifæri Calveros i Middlesex- leikhúsinu endar með þvi' að allir áhorfendur ganga út nema þeir sem sofa. Calvero verður niðurbrotinn maður og nú er það Terry sem notar hans rök til að reyna að endurvekja bartsýni hans. Hann nær sér brátt aftur og Terry vill ólm giftast honum. Hann vill það ekki, þvi hann veit að hugir Terryar og ungs hljóm- listarmanns dragast hvor að öðrum. Terry nær hátindi frægðar sinnar og Calvero stingur af og lifir með flæking- um um tlma uns Terry finnur hann aftur. Hún fær fram- kvæmdarstjóra leikhússins til að halda sérstaka hátiöar- sýningu fyrir Calvero og I slðasta sinn heillar hann áhorfendur þannig að um munar. Munurinn á þessari mynd Chaplins og nýjum myndum er við sjáum I bió i dag er aðal lega I þvi fólginn að á þeim tima sem hún var tekin var kvikmyndin ekki orðin eins fjar- læg leikhúsinu og hún er I dag. Menn hafa fundið henni það til foráttu. Þeir segja að leikurinn sé stundum full-dramatiskur en tilfellið er að dramatikin nær til áhorfenda alveg inn að hjarta og stemningin i bióinu er ósvikin. Ég vona þvi að sem flestir verði þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá þessa mynd Chaplins. Calvero og Terry (Clare Bloom) ræðast við. Calvero reynir að vekja með henni lffslöngun. Blessuðu Itölsku myndirnar gera það ekki endasleppt þessa dagana. ítölsk mynd með ensku tali tekin i Kaupmannahöfn. Heldur slæmur kokteill, enda kemur það á daginn.Þessi mynd fjallar um unga konu, Francoise, sem rekur tisku- verslun á Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn. Hún hefur komið sér vel fyrir og er vell- auðug. Einn daginn er ein sýningarstúlkna hennar myrt og siðan hver á fætur annarri og auk þess einn- ljósmyndari. Lögreglan reynir að upplýsa málið en eins og venjulega stendur hún ráðþrota en ungur maður, Peter Oliver, sem er blindur leysir gátuna með þef- skyni slnu að þvi er virðist. Höfuðgalli þessarar myndar er sá, að það kemur aldrei nægjanlega vel fram hver tilgangur morðanna sé fyrr en I lok myndarinnar en á klaufa- legan hátt er verið að reyna að gera sem flesta leikarana sem tortryggilegasta alveg að ástæðulausu. Sennilega hefði þessi mynd verið sæmileg og vel á hana horfandi ef hún hefði verið betur útfærð og með betri leikurum. Það var aðeins eitt atriðið sem var reglulega hroll- vekjandi og það var síðasta morðið. Það virðast engin tak- mörk fyrir þvl hvað fram- leiðendurnir eru hugmynda- rikir, þegar morð eru annars vegar. En mikið væri annars gaman að fá aðrar afþreyingarmyndir heldur en þessar itölsku og amerisku i bióin.. Pcter Oliver, liinn blindi (Anthony Steffen) og ein af tiskusýn- ingarstúlkum Krancoise ieita að morðingja. VER FRABIÐJUM BOKMENNTIR Vér vitum ei hvers biðja ber. Skúli Guðjónsson Hcimskringla Þrlr menn koma i hugann, þegar minnst er dægurmála I bókum, þeir Skúli Guðjónsson á Ljótunnarstöðum i Hrútafirði, Helgi Haraldsson á Hrafnkels- stööum og Benedikt Gislason á Hofteigi. Þessir menn reifa mál sin jöfnum höndum I blööum og bókumá meðan minni spámenn 'láta blöðin nægja og þing- tiðindin. Allir þrir eru þeir mjög vel búnir til ritstarfans og allir hafa þeir nokkur hjartans- mál aö flytja. Benedikt berst með Pöpum, Helgi setur bókfell Njálu undir hendur Snorra og Skúli greinir i sundur torf og gras þeirra, sem koma I út- varpið i gervi jólasveina, svo notuð sé liking Steins Steinarr. Auk þess aö skrifa útvarps- gagnrýni i ÞjóÖviljann hefur Skúli ritað margar greinar al- menns eðlis, gefið út einar þrjár bækur fyrir utan þá, sem hér er getið og samið erindi um daginn og veginn, en sú erindagjörð er eitt helzta viöfangsefni út- varpsráðs og er skipt niöur á flokka. Hér á árum áður varö Skúla margt tilefni blaðagreina, Og i einn tima gerði hann svo- nefndan Hermannsbilstjóra að meiriháttar pólitiskri persónu, þeirra er áttu leið um Hrúta- fjörðá Strandir. t þeim greinum og öörum brá fyrir nokkurri fyndni, og skemmtilegum and- mælum viðýmsu, sem öfugt for I tlðinni að mati höfundar. Sú bók, sem nú er komin ut, eftir Skúla. er samsafn erinda, er flutt hafa verið I delluþætti út varpsins sem kenndur er við dag og veg. Og ósköp er efnis- viðurinn fátæklegur að þessu sinni. Vel getur vérið að þættir þessir hafi borið af, þegar þeir voru fluttir I útvarpið og er raunar trúlegt. En þegar þeir eru komnir i bók, verka þeir á mann eins og ógnarstórt dag- blað, sem maöur flettir en les varla, vegna þess að búið er að tala um þetta allt saman áður. Blöðin á Islandi virðast hafa þeim erindum helzt að gegna við lesendur, að flytja þeim sama nöldrið aftur og aftur, unz það eitt gæti orðið til tilbreytingar að prenta allan textann á hvolfi. Ekki er þessu þó þannig farið hjá Skúla. Til þess erhann of góður rithöfund- ur og frásegjandi. Hins vegar verða honum dægurefnin efst i huga, þegar semja á útvarps- erindi með þeim árangri að i þessu safnriti er fjallað um veðrið, verðbólguna, kal og bjargráðasjóð, listamannalaun og óþurrka innanlands , jafn- vægi i byggð landsins og skipt- ingu þjóðartekna. Og hverju erum við nær og hverjuer jafn ágætur maður og Indriði G. Þorsteinsson skrifar Skúli nær? Ég veit það ekki. Sjálfsagt er að gefa út bækur i lif og blóð á meðan öndin blaktir I þjóðarbrjóstinu. En okkur riður á öðru i bókum en „blaðagreininni miklu” i hundrað þúsundasta sinn. Indriði G. Þorsteinsson. cTMenningarmál OSRAM OSRAM BÍLA- ’ PERUR Heildsölubirgðir ávallt fyrirliggjandi Jóh.Úlafsson&Co.,hf. 43, Sundaborg, sími 82644

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.