Vísir - 04.11.1975, Síða 17
VÍSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975
17
)AG I DAG
Sjónvarp, kl. 20,50:
w w
AST, AST,
OG AFTUR
Við sjáum þrjár myndir um
ástina i kvöld. Sú fyrsta heitir
Ástin og bannfærða bókin. Önn-
ur heitir Ástin og fyrsta nóttin
og sú siðasta Ástin og kóngur-
inn.
I fyrstu myndinni fylgjumst
við með hermanni sem kemur
heim til Bandarikjanna. Eigin-
kona hans hafði talsvert stund-
að ljóðagerð, og nú kemur i ljós
að hún hefur skrifað metsölu-
bók, sem heitir „Elskhugar
minir” eða eitthvað á þá leið.
Hermaðurinn verður afbrýði-
samur og konu hans gengur illa
að sannfæra hann um að hann sé
fyrirmyndin að öllum þeim 12
elskhugum sem hún hefur skrif-
að um. En allt fer þó vel i lokin...
1 næstu mynd segir frá ung-
lingum sem halda að þeir séu
ekki siður þroskaðir en full-
Ástin erf ýmsum myndum og hún
sem er....
orðna fólkið. Þeir leigja sér
mótel-herbergi, en það fer öðru-
visi en ætlað er. Unglingarnir
reynast ekki nærri eins
þroskaðir og þeir héldu.
í siðustu myndinni greinir frá
gömlum og heimakærum skrif-
stofumanni sem hefur verið
kvæntur i mörg ár.
Einn dag kemur gamall félagi
hans úr hernum i heimsókn, og
það kemur i ljós að þeir hafa
verið miklir æringjar.
Það vill svo til að kona þess
fyrstnefnda þarf að fara Ut úr
bænum um helgina til þess að
heimsækja veika móður sina. Á
meðan kemur félaginn úr hern-
um i heimsókn til þess heima-
kæra með tvær piur. En um leið
rekst forstjórinn inn með
skjöl...
— EA
gerir vart við sig hvar og hvenær
Útvarp, kl. 16,40:
Litli barnatíminn fœr
nýjan umsjónamann
„Ég byrja á nýju kynningjar-
lagi, sem er stutt stef eftir
Mozart og er leikið á hörpu. Ég
kynni hörpuna og tónskáldið
sjálft i nokkrum orðum,” sagði
Sigrún Björnsdóttir, leikari, sem
byrjar að sjá um Litla barna-
timann i dag.
Sigrún hefur aldrei séð um
barnatimann fyrir þau yngstu, en
var áður með barnatimann á
sunnudögum.
Nú mun hún sjá um Litla
barnatimann á móti Finnborgu
Scheving, fóstru. Sigrún mun sjá
um þáttinn annan hvern
þriðjudag og svo Finnborg á
móti.
í dag munSigrún lesa ævintýri
meðal annars. Þá sagði hún að
sér hefði borist i hendur sænsk
plata, sem gerð er til þess að
þjálfa athygli barna i sambandi
við takt. Sigrún mun spila tvö lög
af þessari plötu, þarsem farið er i
leiki við börnin i þessu sambandi.
Litli barnatiminn hefst klukkan
16.40 og stendur i tuttugu
minútur.
-EA.
Sigrún Björnsdóttir, leikari, verður annar umsjónarmaður Litla
barnatiinans i vetur.
A
Utvarp-sjónvarp:
Meira um skólamól
Skólamál eru á dagskrá bæði i
útvarpi og sjónvarpi i kvöld. Er
það framhald af þeim þáttum
sem þegar hafa verið fluttir og
sýndir.
i sjónvarpinu i kvöld verður
fjallað um Hlitarnám, en erindi
um það var flutt i útvarpinu á
sunnudaginn.
1 þessum þætti er fjallað um
megininntak kenningarinnar og
kynnt og sýnd dæmi.
Þáttur þessi er sendur út i
tengslum við fyrrnefnt erindi og
svo erindi sem flutt verður i
kvöld, áður en þátturinn verður
sendur út.
Það er erindið Kenning Tylers
um námsskrárgerð. Guðný
Helgadóttir fulltrúi flytur það
erindi, og hefst það klukkan
19.35. Þátturinn i sjónvarpinu
hefst klukkan 22.25.
— EA.
A meðan getur þú laumað teiknibóiu á stólinn
hennar.
j ÚTVARP 0
Þriðjudagur
4. nóvember
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Vettvangur. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. 1 þætt-
inum er fjallað um arkitekt-
úr og sérþarfir.
15.00 Miðdegistónleikar: is-
lensk tónlist. a. Barokk-
svita eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Ólafur Vignir
Albertsson leikur. b. „Móð-
ursorg”, lagaflokkur eftir
Björgvin Guðmundsson.
Guðmunda Eliasdóttir
syngur. Fritz Weisshappel
leikur á pianó. c. „Um ást-
ina og dauðann”, söngvar
fyrir bariton og hljómsveit
eftir Jón Þórarinsson.
Kristinn Hallsson syngur.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur, Páll P. Pálsson
stjórnar. d. Kvartett nr. 2
eftir Helga Pálsson. Kvart-
ett Tónlistarskólans leikur.
e. Lög eftir Pétur Sigurðs-
son frá Sauðárkróki. Svala
Nielsen og Friðbjörn G.
Jónsson syngja. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn.
Sigrún Björnsdóttir sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Anne Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kenning Tylers um
námsskrárgerð. Guðný
Helgadóttir flytur erindi.
20.00 I^ög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir ungiinga.
21.30 Tónlist eftir Robert
S c h u m a n n . W i 1 h e 1 m
Kempff leikur á pianó..
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur fyrsta þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Tlior
Vilbjálmsson. Höfundur les
(9).
22.40 Skákfréttir.
22.45 Harmonikulög Laiho-
bræður leika
23.00 A hljóðbergi. Sagan af
Plútó og Próserpinu i
endursögn Nathaniel Haw-
thorne. Anthony Quayle les.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÚNVARP •
Þriðjudagur
4. nóvember 1975.
20.00 Frcttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsing-
ar.
20.35 Þjóðarskútan. Þáttur
um störf Aiþingis. M.a.
verður viðtal við Jón Árna-
son formann fjárveitinga-
nefndar og litið inn á fund
hjá fjárveitinganefnd.
Einnig verður fjallað um
vandamál frystihúsanna.
Umsjónarmenn: Björn
Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.15 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.05 l tan úr heimi. Úmræður
um 'iakarof málið. Þátt-
takendur: Gunnar
Gunnarsson. Haildór Lax-
■ nes og Matthias Johannes-
sen. Stjórnandi Gunnar G.
Schram.
22.50 Skólamál. Hlitarnám. 1
þættinum er fjallað um
hlitarnám — megininntak
kenningarinnar kynnt og
sýnd dæmi. Þátturinn er
gerður i samvinnu við
Kennaraháskóla islands og
sendurút i tengslum við tvö
útvarpserindi, sem flutt
voru 2. og 4. nóvember.
Umsjónarmaður Helgi
Jónasson fræðslustjóri.
23.05 Dagskrárlok.
/
að keyra i nýja bílnum. Hann er svo hræddur um, að verk-
smiðjan hringi og tilkynni um leynda galla á bilnum!