Vísir - 04.11.1975, Page 19

Vísir - 04.11.1975, Page 19
VÍSIR. Þriðjudagur 4. nóvember 1975 19 Mynidir og texti: Matthías Gestsson ,,Ég fékk hugmyndina aö þessu h jól i í vor, og hef síðan melt hana með mér, þangað til ég gerði alvöru úr því að smiða það". Þetta segir hinn 18 ára gamli Eiður Jónsson, á Árteigi í Kinn, Suður- Þingey jarsýslu, sem hefur smíðað sér sitt eigið torfærumótorh jól. Eiður lauk við smíði hjólsins fyrir rúmri viku og fór þá í reynsluakstur á því. Hjólið hentar sérlega vel íslenskum aðstæðum. Það er með jeppahjól- barða á nöglum. Mótor- inn er hins vegar í slapp- ara lagi, aðeins þrjú hestöf I. ,,Ég þarf að fá annan stærri. Krafturinn í þess- um er allt of lítill, og ég kemst of hægt yf ir", seg- ir Eiður. „Tætum og tryllum”, syngja Stuðmenn I einu laga sinna, og Eiður þarf ekki að láta endurtaka það tvisvar fyrir sig áður en hann þeysir út í toríærurnar við Arteig. Eiður smíðaði sjálfur grindina um hjólið. Dekk- in útbjó hann þannig, að hann skar innan úr felg- um jeppadekkja og setti teina í staðinn. Eiður hefur ekkert hugsað út í það að láta skrá mótorhjólið sem lög- legt ökutæki. Enda þarf þá talsverðu að bæta við það. ,,Ég nota þetta fyrst og fremst sem leikfang hérna i kring um Árteig," sagði Eiður. Faðir Eiðs er hinn kunni rafstöðvasmiður Jón Sigurgeirsson. Eiður hefur allt frá því hann man eftir sér haft að- gang að vel búnu verk- stæði. Hann er áhuga- maður um fleira en mótorhjól. Hann hefur mikið ekið á snjósleðum. Um snjósleðana segir Eiður, að þeir séu mun hættulegri ökutæki en bæði bílar og dráttarvél- ar. „,Mér finnst að öku- menn snjósleða eigi alveg skilyrðislaust að hafa sérstakt próf á þá", segir Eiður. —MG/ÓH Stór og breið jeppadekkin gera það að verkum, að mótorhjólið livtur vel yfir alla aurbleytu og i mvrum. Kiður að ieggja lokahönd á smiöi mótor- hjólsins. Þarna rafsýður liann hluta af dril'búnaðinum. Dril'reimin sett á. Útbúnaðurinn er ekki flókinn, en liann stendur fyrir slnu. Eiður segir þó aö mótorinn sé i kraftminnsta lagi. Ilér má vel sjá hvernig hjólin eru útbúin. Eiður hefur skoriö innan úr l'clgunni og sett þar i stað teina úr steypustyrktar- járni. Þrýstilofts- knúnir kapp- akstursbílar A myndinni sjást fremst tveir Porschekappakstursbilar. Þeir eru þrýstiloftsknúnir og er ekið af Tim Schenken (t.v.) og Ernst Kraus... Þeir liafa um 1000 hest- afla vél og var ekið til sigurs á Hockenheim-brautinni i Þýska- landi. Tim Schenken — sem varð sigurvegari, ók að meðal- tali á 240 km hraða á klukku stund... Porschebilarnir liafa einnig oft sannað ágæti sitt i Can-Am kappaksturskeppni i Bandarikjunum og Interserie- kappaksturskeppni i Evrópu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.