Vísir - 04.11.1975, Side 24

Vísir - 04.11.1975, Side 24
Þótt Pcter Spencer geti ckki flogiö siöan hann lenti í slysinu eru llugvélar eitt uppáhalds-viöfangscfni hans. Hér sýnir hann hvernig liann fór að þvi að mála þessa mynd af Boeing 727 þotu Flugfélagsins. (Mynd BG) Við erum listomenn en ekki krypplingor VISIR Þriðjudagur 4. nóvember 1975 Laxinn hœkkar í verði Mikil eftirspurn er eftir laxi suöur i Evrópu eftir þetta heita sumar, aö sögn manna hjá út- flutningsdejld SÍS. Verð á laxi hefur veriö lágt undanfarin tvö ár en er nú tvímælalaust betra, og má segja að frekar sé vöntun á laxi til útflutnings heldur en hitt. Hjá kaupfélagi Borgnesinga fékk Visir þær upplýsingar að salan á þessu ári hefði gengið bærilega, mest hefur farið á innlendan markað, en stærsti laxinn hefur verið seldur út á betra verði. Að sögn kaupfé- lagsstjórans eru birgðir með minnsta móti og búið að lofa mestu af þeim á innanlands- markað. Veröið hefur að sögn hans stigið nokkuð frá þvi i fyrra. Veiðimenn á Arnessýslusvæð- inu önnuðust að mestu sölu á sinum laxi sjálfir, en Sláturfé- lag Suðurlands sá um meðferð og pökkun. Hjá Sláturfélaginu fengust þær upplýsingar að salan hefði gengið vel, mest af laxinum var selt jafnóðum og mikið af honum fór til Frakk- lands fyrir gott verð. Þess má geta að þrátt fyrir þessar verðhækkanir á laxi, bjóða nú sumir matsölustaðir borgarinnar upp á graflax á fast að þvi ótrúlega lágu verði, eða rétt um tvö hundruð krónur skammtinn fyrir hvern mann. —EB — Viöerum alltaf að leita að nýjum málurum og ég held að þaö hljóti að vera einhver á ts- landi sem ekki getur notað hendurnar, en sem vill læra að mála mcð munninum eöa fótun- um, sagöi Peter Spencer, list- málari, við Visi i morgun. Peter Spencer var flugmaður i breska flughernum i strfðinu en flugvélarhreyfill tók af hon- um hægri handlegginn og sá vinstri lamaðist, árið 1945* þannig að framtið hans sem flugmanns var úr sögunni. Hann var aðeins tvitugur og fannst framtiðin ekki glæsileg. En svo byrjaði hann að mála með munninum og gerðist félagi i samtökum Munn- og fótmálara og þar með hóf hann nýtt lif. Erindi hans hingað nú er að afhenda forseta tslands mál- verk af Islandi, sem forseti samtakanna, Eric Stegmann, málaði þegar hann var hér i júni siðastliðnum. — Það eru um 150 félagar i samtökum okkar, i ýmsum löndum. Þó nokkrir eru i Skandinaviu. Við keppum við aðra listamenn á jafnréttis- grundvelli. Jólakort okkar, dagatöl og málverk eru seld eins og verk annarra lista- manna. Þau eru ekki auglýst sem verk veslings krypplinga sem sé gustuk að hjálpa. Reiðubúnir að hjálpa — Listamennirnir fá regluleg mánaðarlaun og i flestum til- fellum árlegan bónus, af þvi fé sem kemur inn fyrir sölu lista- verkanna. Þeir geta þvi helgað sig list sinni áhyggjulausir. Samtökin eru reiðubúin að hjálpa öllum þeim sem vilja IWIHMFn — segir Peter Spencer, sem málar með munmnum iæra að mála. Menn fá hins veg- ar ekki inngöngu f þau fyrr en óháð dómnefnd hefur úrskurðað verk þeirra nógu góð til þess. Fram að þeim tima eru þeir nemendur og er hjálpað fjár- hagslega við listnámið. — Það hófst nýr kafli i lifi minu þegar ég komst i samtök- in, segir Peter Spencer. — Mér er þvi umhugað um að hjálpa þeim sem eiga við svipaða erfiðleika að etja og ég átti. Spencer er kvæntur og eiga þau hjónin tvö börn. — ól HALKAN KOM í MORGuN.... Geysileg hálka var á Breiðholtsbraut i morg- un. Margir bilar sem voru á sumardekkjum runnu hægt og rólega niður hana, með fram- hjólin læst i bremsu. Þar varð þó aðeins eitt smá- vægilegt óhapp. Sendi- ferðabill snerist i hálk- unni, fór út fyrir götuna með afturhjólin og rakst i leiðinni utan i litla fólksbifreið. Litlar skemmdir urðu og engin meiðsli. Saltbill var far- inn að bera á götuna laust fyrir kl. niu. Mikil örtröð myndaðist á hjól- barðaverkstæðum I Reykjavík i morgun um leið og þau voru opn- uð. Það er reyndar algengt þegar fyrsti snjórinn sést hér á höfuð- borgarsvæðinu. Það er eins og menn hafi gleymt þvf að Vetur konungur hlýtur að vera i nánd, þegar komið er fram i nóvember. ÓT/RJ Aðeins þrír órekstror Aðeins þrir árekstrar urðu i Reykjavik i morgun. Menn liafa þvi fariö mjög varlega i þessari fyrstu liálku vetrarins. Arekstrarnir urðu á timabil- inu frá klukkan sjö til klukkan hálf tiu, einmitt á þeim tima sem menn eru að koma sér til vinnu. Enginn áreksturinn var harður og engin slys urðu á mönnum. Einn áreksturinn varð i Breiðholti, annar á Bú- staðavegi og sá þriðji i Elliða- vogi. Hálkan var mjög mikil i Breiðholti i morgun, og lentu margir f erfiðleikum. Allt leystist þetta þó vel, en það er kannski ekki fyrr en menn verða öruggir að aka i hálk- unni að árekstrarnir verða, eins og einum varð að orði i morgun. —EA Hráefnislaust í frysti- húsum á Suðurnesjum Vinna liggur nú niðri i frysti- húsunum á Suöurnesjum vegna hráefnisleysis” sagði Einar Kristinsson i Sjöstjörnunni I Keflavik i samtali viö VIsi i morgun. „Bræla hefur verið hjá minni bátum og togarar eru á veiðum, og vegna stoppsins sem varð þegar bátarnir sigldu i land var ekkert hráefni til fyrir.” Svo sem kunnugt er fóru fram viðræður frystihúsmanna og færisætisráðherra vegna hins alvarlega ástands sem hefur verið að skapast I frystiiðnaðin- um, og sagði Einar að fundur væri fyrirhugaður á morgun kl. 11. Væntanlega skýrir forsætis- ráðherra þá frá niður'stöðum viðræðna sem hann hefur átt við bankastjóra undanfarið. EKG.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.