Tíminn - 04.11.1966, Qupperneq 5

Tíminn - 04.11.1966, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 4. nóvember 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug. lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar Í830O—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusimi 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sfmi 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán tnnanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Vonlausu klifin Það er talið mannlegt að skjátlast. Mönnum getur yfir- sézt, stefna reynzt röng og ríkisstjórnum mistekizt. En slíku er unnt að taka með manndómi, beygja sig fyrir réttum rökum, viðurkenna staðreyndir og augljósar or- sákir og læra af mistökum, þegar bezt lætur. En þegar sjálfsumhyggjan blindar svo, að mistökin leiða til enn meiri villu, feluleiks, blekkinga, vantrausts á landi, þjóð og eigin atvinnuvegum og þar er leitað orsaka stjórnar- farsmistaka, hafa menn kvatt færa vegi og lagt á vonlaus klif og hrapandi fell. Þau tíðindi hafa nú gerzt, þegar ófarir stefnu og stjórnar síðustu sjö ára eru orðnar þjóðinni svo aug- ljósar, að það er orðið ráðherrum athlægisverk eitt að reyna að bera í bætifláka fyrir hana, að forsætisráðherr- ann bregður yfir sig sjálfsvarnarkufli smámennskunnar og tekur til fótanna út á þau vonlausu klif að kenna land- inu, þjóðinni og atvinnuvegunum um, hvernig til hefur tekizt. í þessum búningi kom hann fram fyuir flokks- menn sína og flutti þeim í langri ræðu ófagra iátningu um ástandið en fullyrti jafnframt, að stefnan hefði verið rétt, stjórnartökin góð og foringjarnir í ráðherrastólun- um sannir öndvegismenn. En iafnvel ofurmenni geta ekki stjórnað svona mikilli smáþjóð í svona hörðu landi með svona bágborna atvinnuvegi. Það er skýring forsætis- ráðherrans. Hann sýknar siálfan sig. flokkinn og stefn- una af öllu, en kennir þjóðinni, landinu og atvinnuveg- unum um. f stað þess að líta í eigin barm oe horfast í auau við augljósar staðrevndir. fárast hann yfir bví. hve dýrt sé að halda við siálfstæði hiá svona lítilli biéð. hve örðugt sé að halda stöðugu verðiaei með sveiflukennda og ein- hæfa atvinnuvegi, iðnaðurinn sé ósamkénnnisfær og landbúnaðurinn eftirbátur. Það er vant.raustið á landi og bióð, sem mótar ailt viðhorf forsætisráðherrans. Enginn íslenzkur forsætisráðherra hefur smánað bióð sína og land með þeim hætti að gera hana og atvinnuvevi henn- ar að allsherjar syndahafri. er skella má á mistökum og vandræðum ríkisstjórnarinnar. Um þessi vonlausu klif unngjafar og smámennsku ráf- ar forsætisráðherrann um þessar mundir. Hann leggst svo lágt í lítilsigldri vörn sinni að Srafa undan siálfs- trausti þjóðarinnar, trú hennar á siálfstæði. land sitt og atvinnuvegi og bendir henni á, að eina vonin sé að trúa á erlendan gullkálf. Honum segist hann hafa rutt veg- inn inn í landið, og þar séu úrræði íslenzku þjóðarinnar í framtíðinni Vegabréf kommúnista ' Þjóðviljinn birtir í gær lög Alþýðubandalagsins, sem samþykkt voru á landsfundinum á dögunum. Segir þar, að Alþýðubandalagið sé „landssamtök um stjórnmál, sjálfstæð og óháð“ og svo sem því til frekari áréttingar hljóðar 5. gr. svo: „Hver sá íslenzkur ríkisborgari, sem samþykkir lög og aðhyllist markmið Alþýðubandalagsins, getur gerzt með- limur þess, enda þótt hann sé jafnframt meðlimur ann- arra stjórnmálasamtaka, sem styðja Alþýðubandalagið". Þannig eru inntökuákvæði Alþýðubandalagsins fyrst og fremst sérstskt vegabréf fyrir flokksbundna kommún- ista inn í samtökin, og það fer ekki milli mála, hver sá ambassador er', sem stimplar og áritar þetta vegabréf í hið ,,óháða og sjálfstæða“ Alþýðubandalag. TÍMINN s ERLENT YFIRLIT De Gaulle vinsælli nú en í fyrra Líklegt, að hann fái hreinan meirihluta í þingkosningunum De Gulle á blaðamannafundinum. DE GAULLE hélt langan blaðamannafund síðastl. föstu dag og sýndi iþar glögg merki þess, að ellin hefur enn ekki neitt bugað (hann. Hann svaraði skýrt og skorinort eins og áð- ur, vék sér fimlega undan því sem hann vildi ekki svara, og var toress og reifur eins og hans er vandi við slák tækifæri. Eng inn gat haft á tilfinningunni, að hér væri hálfáttræður mað ur á ferð. t>ó töldu sumir sig sjá eintover merki þess, að sjón hans væri farin að daprast. De Gaulle sá um það eins og endranær, að blaðamennire.ir fengju fréttnæmt efni til að skrifa um. Hann deildi hart á loftárásir Bandaríkjanna á Norður-Vietnam, en jafnframt því, sem hann deildi þannig á Bandaríkin, kvaðst hann þó vilja þeim hið bezta. Hann gagnrýndi einnig óbeint stjórn Erhards og gaf i skyn, að hún legði of mikið kapp á sam- vinnu við Bandaríkin en of litla átoerzlu á samvinnu við Frakka. Þessi gagnrýni hentar vel Ad- enauer og Strauss, sem hafa gagnrýnt Erhard leynt og ljóst, og er jafnframt einn naglinn í hina pólítísku líkkistu hi'ns síðastnefnda. ’jji ,í h 'i y'\1J ANNARS ræddi de Gaulle, mest um innanlandsmálin ámm, blaðamannafundinum. Slíkt er skiljanlegt, því að ekki eru nú eftir nema réttir fjórir már,- uðir þangað til þingkosningar fara fram í Frakklandi. Fransk ir kjósendur láta sig yfirleitt innanlandsmálin meiru varða en utanríkismálin. De Gaulle ætlar bersýni lega að leggja mikið kapp á, að flokkur hans haldi vel velli í þingkosningunum. í forseta- kosningunum í fyrra, áleit de Gaulle sig of sigurvissan. Hann taldi sig öruggan um endan- legan sigur strax í fyrri um- ferð, þ.e., að hann fengi þá hreinan meiritoluta, og ekki þyrfti því að kjósa aftur. Þetta varð ekki, og fóru því aftur fram kosningar, þar sem de Gaulle fékk 55% atkvæðanna, og var það minna en nánustu fylgismenn höfðu gert ráð fyr- ir. Þeir kenndu þvi um, að de Gaulle hefði ekki beitt sér nægilega mikið í kosninga- baráttunni. Nú ætlar hann ber sýnilega ekki að brenna sig á sama soðinu. Seinustu skoðanakannanir benda til þess, að de Gauile þurfi engu að kvíða. Rúm 65% þerra, sem hafa verið spurðir, hafa lýst sig ánægða með stjórn de Gaulles. Takist de Gauile að færa þessar vinsældir yfir á flokk sinn, fær hann meiri- hluta á þingi, en hann hefur ekki þingmeirihluta nú, heldur verður að hafa samvinnu við flokk d'Estainings fyrrv. fjár- málaráðherra. ÞAÐ ER margt, sem styður sigurhorfur de Gaulle. Hin sjálfstæða stefna hans i utan- ríkismálum og ferðalög hans að undanförnu, fullnægja vel þjóð legum metnaði Frakka. Því eru ekki miklar líkur til, að veruleg breyting yrði á utan- ríkisstefnu Frakka, þótt de Gaulle félli frá. Enn meiru skiptir þó hitt, að efnahags- mál Frakka hafa tekið mikl- um breytingum til bóta í stjórnartíð de Gaulles í fyrstu urðu menn að þrengja noks uð að sér, en árangurinn er nú óðum að koma í ljós í vax- andi velgengni og framleiðsiu hæfni atvinnuveganna og í batnandi lífskjörum almenn- ings. í stjórn Frakklands rík- ir nú festa og stjórnsemi i stað glundroða og upplausnar. Síðast en ekki sízt er svo að nefna það, að Frakkar búa nú við frið í fyrsta sinn um lang an tíma en fyrst styrjöldin í Vi etnam og síðar í Alsír reyndust þeim mjög mannfrek- ar. Enginn nema de Gaulle hefði getað leyst Alsírmál- ið eins farsællega og raun hef ur orðið á. Þá er það de Gaulle mikill styrkur, að andstæðingar hans eru mjög sundraðir. Litlar lík ur eru til þess, að við þing- kosningar náist samkomulag milli vinstri manna og komm únsta líkt og við forsetakosn ingarnar í fyrra, nema þá í ein stökum kjördæmum. Kommún- istar eru enn pflugasti stjórn- arandstöðuflokkurinn, en það veikir mjög aðstöðu þeirra, að lífskjörin fara heldur batn- andi og þeir geta heldur lítið deilt á de Gaulle í samtoandi við utanríkismálin. DE GAULLE var inntur eft ir þvi á blaðamannafundinum, hvað hann myndi gera, ef flokk ur hans fengi ekki meirih’.uta. Af því, sem þar kom fram, og öðru, sem hann og nánustu sam Framhald á bls. 12 )

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.