Vísir - 11.11.1975, Side 3
3
m
VISIR Þriðjudagur 11. nóvember 1975.
Þokkaleg rœkjuveiði
í isafjarðardjúpi...
„Rækjuveiðarnar hafa til
þessa gengið þokkalega. i
siðustu viku komu um 150 tonn á
land,” sagði Pétur Bjarnason
sem fyrir hönd sjávarútvegs-
ráðuneytisins hefur eftirlit með
rækjuveiðunum við isafjarðar-
djúp.
Rækjuveiðar við isafjarðar-
djúp'hófust 4. nóvember sl. Sjó-
menn hafa verið mjög óánægðir
með verðið sem fæst fyrir rækj-
Pétur sagði að þegar hefðu 34
bátar hafið veiðar og fleiri bætt-
ust við á næstunni. Alls munu 42
eða 43 bátar stunda rækjuveiðar
við isafjarðardjúp i vetur sem
er 10-12 bátum færra en i fyrra.
,,Vanalega er rækjan góð
fyrstu vikurnar, og svo er einnig
nú. Og þó nokkrir náðu þeim 6
tonna hámarksafla sem leyfður
er á bát á viku.
Veðrið hefur verið ágætt og
hefur ekki hamlað veiðum.”
—EKG
Niðurstaða norrœnnar róðstefnu:
Fjölmiðlar hafa
gefið brenglaða
og óraunveru-
lega mynd af
konum
Á norrænni ráðstefnu
„Um konur í fjölmiðlum"
sem haldin var 29.-31. októ-
ber í Voksenaasen við
Osló var ákveðið að setja á
stofn nefnd skipaða full-
trúum allra Norðurlanda-
þjóðanna til að vinna að því
verkefni að breyta mynd
fjölmiðlaaf konunni. Þátt-
takendur voru á einu máli
um að sú mynd væri
brengluð og óraunveruleg.
Ráðstefnu þessa skipu-
lagði norska kvenréttinda-
félagið með stuðningi
Norðurlandaráðs, og voru
þátttakendurnir blaða-
menn og fulltrúar kven-
réttindafélaga á Norður-
löndum. Frá islandi sátu
ráðstefnuna, Fríða Björns-
dóttir blaðamaður og Mar-
grét R. Bjarnason frétta-
maður.
Ráðstefnan i Noregi visaði til
ályktunar kvennaársráðstefn-
unnar i Mexikó þar sem m.a. var
mælst til þess að rikisstjórnir
hvettu fjölmiðla landa sinna að
gefa jákvæða og verðuga mynd af
konum i stað þess hlutverks að
vera tæki til auglýsinga.
beir sem á ráðstefnunni sátu
Fengu liðlega 27 þús.
kr. fyrir kílóið af dúni
Verð á dúni hefur hækkað
verulega. A vormánuðum voru
greiddar 27.200 krónur fyrir
hvertkilógramm af hreinsuðum
og handfjaðurtindum dúni. Að
frádregnum sjóðagjöld u m
Nýtt Snœfell
fyrir norðan
Kfnaverksmiðjan Sjöfn á Akur-
evri hefur nvlega hafið Irain-
lciðslu á livitu Met-háglanslakki
fyrir útflutning t'l itusslands.
Stefnt er að þvi að • ilgreiða
hcildarmagns. 200 toiina. verði
lokið lyrir I. fehr. 1970. Miiguleik-
ar eru a áframhaldi lilflutnings á
málninga rvörum til Sovélrikj-
anna.
betta kemur Iram i nvjum
K.E.A. fregnum barsegir einnig
að búið sé að kaupa 30(1 tonna tog-
skip frá Noregi til að auka hrá-
efnisöflun til frvstihússins i
Urisey. Skipið hefur hlotið nafnið
Snæfeli. eftir hinu gamla afla-
skipi útgerðarfélags K.E.A.
I K.E.A-Eregnum segir enn-
fremur af nýjungum ýmsum,
m.a. að hafin sé tölvufærsla á öll-
um viðskiptamannareikningum
kaupfélagsins og fleiri greinar
muni fylgja á eftir. bá hefur verið
bættur og endurnýjaður vélakost-
ur brauðgerðarinnar. og komið
hefur til tals að hefja notkun út-
tektarkorta (kredit-korta) i
verslunum K.E.A. Starfsmanna-
félagið stendur nú i bvggingu
tveggja sumarhúsa i Hreðavatns-
landi fyrir félagsmenn. Áætlað
er að þau verði tilbúin næsta sum-
ar.
I'engu bændur IJS.fiOO krónur fyr-
ir kilógrammið.
Flugvargur hefur gert æðar-
ræktarbændum erfitt fyrir og er
þeim fjölgun svartbaksins mik-
ið áhyggjuefni. Einnig er talið,
að hann geri mikinn usla þar
sem fiskirækt er i ám og vötn-
um. bá er minkurinn mikill
skaðvaldur.
A siðasta vori veitti Æðar-
ræktarfélag Islands ungum
manni fjárstuðning til veiöa á
vargfugli i varplöndum á
Rreiðafirði. Árangur var góður.
V'ið athugun á mörgum svart-
bökum kóm i ijós, að mikil!
meirihluti þeirra hefði étið egg
og unga.
Æðarrækt hér á landi hefur
dregist mjög saman á undan-
fömum áratugum og þar eiga
flugvargur og minkur mesta
sök. Arið 1913 var dúnfram-
leiösla landsmanna hálft
fimmta tonn, en losaöi hálft
annað tonn 50 árum siðar.
1 Viðey, sem áður var mikil
varpjörð, kannski sú mesta á
landinu, er nú ekkert æðarvarp.
Talið er, að þróunin sé svipuð á
Faxaflóasvæðinu öllu.
— ÁG —
Ekkert skíðafœn enn
Ekki er enn komið
skiðafæri i Bláfjöllin,
þótt komið sé fram i
nóvember.
I sumar var lagfærður veg-
urinn upp i fjöllin og reynt að
ganga þannig frá honum að
hann yrði sem snjólausastur.
Einnig var sett lýsing i aðra
brekku en ármenningar lýstu
upp eina brekku i fyrra. SU
iýsing var núna endurbætt.
Þær brekkur þar sem lyfturn-
ar eru voru lagfærðar i sumar
með tilliti til þess að snjór
héldist betur i þeim.
Þessar framkvæmdir eru
hluti af þeim framkvæmdum
sem eiga að verða i Bláfjöllum
á næstu árum en þær urðu
óvenjulitlar i ár vegna pen-
ingaleysis. Enn eru óleyst
stærstu vandamálin, en það er
vatnsöflun og losun úrgangs.
Afli Vestfjarðabóta
skórri en í fyrra
skipuðu bráðabirgðanefnd sem á
að starfa i eitt ár. Hún skal gang-
ast fyrir stofnun starfshópa er
samvinnu hafi við fulltrúa kven-
réttindahreyfingar og starfsfólk i
fjölmiðlum.
Bráðabirgðanefndin skal koma
saman i Kaupmannahöfn i
desember á þessu ári og að ári
leggja fram tillögu um skipan
norrænnar fastanefndar er haldi
starfinu áfram. Hlutverk nefnd-
arinnar er að dýpka og
breyta þeirri mynd sem fjölmiðl-
ar gefa af konum.
Fyrsti þátturinn i starfi nefnd-
innar verður að kanna hvernig
norrænir fjölmiðlar hafa fjallað
um kvennaárið, og i þvi og
áframhaldandi starfi vonast
nefndin eftir fjárhagslegum
stuðningi frá Norðurlandaráði
sem sýnt hefur áhuga á að styðja
verkefni af þessu tagi. —EKG
Línubátar í Vestfirð-
ingafjórðungi hófu flestir
róðra í byrjun október en
nokkrir þó fyrir mánaða-
mót. Gæftir voru óstöðugri
en undanfarin haust og af li
því mun lakari. Afli togar-
anna var líka sáratregur í
októbermánuði, og notuðu
því margir tímann til botn-
þrifa, viðgerða og endur-
bóta.
Rækjuveiðar hófust 27.
október í Arnarfirði og
stunda 5 bátar veiðarn-
ar. í ísafjarðardjúpi hóf-
usf rækjuveiðarnar 4. nóv-
ember, og hafa fram til
þessa gengið bærilega.
Færabátar eru almennt
hættir veiðum, en drag-
nótabátar eru f lestir enn á
veiðum.
Heildaraflinn í október
var 3.165 lestir en var 2.872
á sama tíma i fyrra. Af
linubátum var Vestri frá
Patreksfirði hæstur með
104,5 lestir í 22 róðrum. Af
togurunum var Guðbjartur
frá ísafirði aflahæstur
með 276,4 lestir.
—EKG
SKRINAN OPNUÐ Á
SK0LAV0RÐUSTÍG
Ný veitingastofa, Skrinan, hcfur
verið opnuð i húsinu númer 12
við Skóla vörðustig. við hornið á
Bergstaðastræti.
Þar verður á boðstólum grill-
réttir, almennur matur, kaffi,
smurt brauð o.s.frv. 1 Skrinunni
eru sæti fyrir 80 til 100 manns,
ýjögra til sex manna básar og
veggja manna borð. öll inn-
•éttingavinna er unnin eftir
auganu, ef svo mætti segja og
eftir hugmyndum eigendanna
og framkvæmdastjórans. Meðal
annars eru notaðar i loft og
veggi, spirur eins og eru i
skreiðarhjöllum og loftljósin
eru gerð úr netakúlum. Nafnið
er einnig sótt i sjávarútveginn.
þ.e. skrinan sem sjómenn höfðú
kostinn i.
A veitingastofunni vinna tólf
manns. Skrinan er hlutafélags-
eign en framkvæmdastjóri er
Gylfi S. Guðmundsson.
—EB
Hússfjórn Kjarvalsstaða mœlir
með kaupum ó Kjarvalsmyndum
„Hússtjórn Kjarvalsstaða
ákvað það á fundi sinum i gær,
að mæla með því við borgarráð
að keyptar verði ákveðnar
myndir sem voru á sýningu á
verkum Jóhannesar Kjarvals,
sem ættingjar hans héldu.”
Þetta sagði Ólafur B. Thors for-
maður hússtjórnar Kjarvals-
staða er Visir spurði hann um
hvort ákvörðun hcfði verið tekin
um kaup á Kjarvalsmyndum.
„Borgarlögmaður og for-
stöðumaður Kjarvalsstaða voru
búnir að athuga myndirnar með
tilliti til þessara kaupa. Var
reynt að hafa i huga að það væru
ákveðnar tegundir teikninga
sem keyptar yrðu af Rvikurborg,
og þá þær tegundir sem ekki
væru til i eigu borgarinnar.”
Um kaup á myndum þeim
sem eru á veggjum i vinnustofu
Kjarvals i Austurstræti 12 sagði
Ólafur að hússtjórnin vildi
skoða þær betur áður en endan-
leg ákvörðun vrði tekin af hálfu
hennar. —EKG