Vísir - 11.11.1975, Blaðsíða 5
5
VISIR Þriðjudagur 11.
nóvember 1975.
ÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ morgun ÚTLÖND i MORGUN ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
Þegar tilkynningin var lesin
upp á þingfundi, drukknuðu orð
Malcolms Frasers i hrópum og
köllum þingmanna. Fékk þing-
forsetinn, Gordon Scholes, ekki
með nokkru móti komið á ró
fyrst i stað.
Vantraust
strax
Gough Whitlam beið ekki
boðanna þegar unnt var að
halda áfram störfum þingsins,
heldur bar upp vantrauststil-
lögu á nýju stjórnina. — Þar
sem fráfarandi stjórn hans naut
meirihlutafylgis i neðri málstof-
unni, var vantraustið samþykkt
þar i deildinni. — 1 tillögu Whit-
lams er skorað á þingforseta að
mælast til þess við landstjórann
að setja Whitlam aftur til að
mynda stjórn, þvi að bráða-
birgðastjórnin nýja njóti ekki
trausts.
Verkamannaflokkurinn undir
stjórn Goughs Whitlams komst
til valda i desember 1972, eftir
að hafa setið 23 ár samfleytt i
stjórnarandstöðu. Hann náði
endurkosningu 1974.
Stjórn Whitlams hefur þurft
að glima við efnahagsvanda
sem henni hefur ekki tekist að
leysa. Traust hennar hefur beð-
ið af þvi nokkurn hnekki á
undanförnum mánuðum, og svo
og af þvi að tveir ráðherrar
hennar hafa neyðst til að segja
af sér eftir að uppvist varð um
fjármálahneyksli sem þeir voru
viðriðnir.
Rex Connors: Var hann fórnar-
lamb Whitlams sem vildi ekki
taka afleiðingum mistaka
stjórnarinnar?
Whitlam (tilvinstriá myndinni)
og Fraser (til hægri) brosa ekki
lengur hvor framan i annan.
— og fól leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar að mynda nýja stjórn.
Whitlam fékk neðri deild
Ástralíuþings til að sam-
þykkja strox vantraust ó
arftaka sinn í róðherrastóli
Fjármálahneykslið
Nú siðast var það námu- og
orkumálaráðherrann, Rex
Connor, sem reyndi á eigin
spýtur að útvega stjórninni lán
úr fjárhirslum oliufursta
austurlanda. Kom i ljós, að
hann hafði i milligöngu fyrir sig
mann með vafasama fortið i
fjárrhálum, og skipaði Whitlam
Connor þá að hætta þessum
afskiptum. —En þegar spurðist
að Connor hefði haldið þeim
áfram var að honum gengið, og
neitaði Connor þá opinberlega
að nokkuð væri hæft i þeim
áburði. Siðar sannaðist þó
einmitt að Connor hefði verið i
skeytasambandi við milli-
göngu-menn eftir að Whitlam
hafði tekið málið frá honum. Lá
þá ekkert fyrir Connor annað en
segja af sér.
Áður hafði dr. Jim Cairns, að-
stoðarforsætisráðherra og rlkis-
féhirðir, verið vikið úr stjórn-
inni af Whitlam þegar upp
komst um hneyksli við lánaum-
leitanir stjórnarinnar erlendis.
Kom i ljós að ýmsir gæðingar
Cairns þágu umboðslaun rifleg,
ákveðnar prósentur af fjárhæð-
unum sem lána átti Ástralíu-
stjórn. Lá við borð að Cairns
yrði grunaður um að nota
einungis nöfn þessara gæðinga
sinna til að fela að þessi um-
boðslaun væru I rauninni
greiðslur til hans.
Whitlam skýrði þinginu svo
frá að Connor hefði gefið sér
rangar upplýsingar, og sér hef ði
verið ókunnugt um hvernig á
málunum hefði verið haldið.
Malcolm Fraser leiðtogi
stjórnarandstöðunnar sakaði
hann um að hafa gert Connor að
fórnarlambi til að hliðra sér hjá
að taka afleiðingum af mistök-
um stjórnarinnar.
Hefur stjórnarandstaðan
siðan marglýst þvi yfir, að hún
muni aldrei treysta svo spilltri
fjármálastjórn fyrir almanna
fé, og hafa fjáröflunartillögur
stjórnarinnar strandað á efri
deild þingsins, þar sem and-
staðan hefur verið i meirihluta.
Þeirri hindrun hugðist verka-
mannaflokkurinn ryðja úr vegi
með þvi að efna til þingkosn-
inga, en einungis i kjördæmum
efri deildarþingmanna sem
mörgum mun koma spánskt
fyrir sjónir. — Það var þá, sem
landstjórinn tók i taumana.
þjóð sina. — Hann kallaði heim
siðustu áströlsku hermennina,
sem tekið höfðu þátt i Vietnam-
striðinu.
Þegar Whitlam náði for-
mannskjöri i Verkamanna-
flokknum 1967 til að taka við af
Arthur Calwell voru tvær venjur
flokksins brotnar. Fyrri for-
mannsefni höfðu annað hvort
verið sótt úr röðum verkalýðs-
félaganna, eða beint frá hinum
vinnandi stéttum. En hvorugt
átti við Whitlam.
Áður en fimm ár voru liðin,
hafði Whitlam samt tekist að
sameina klofningsdeildir verka-
mannaflokksins. Sundrung
hafði lamað flokkinn eftir
kosningasigurinn 1955, þegar
hægri öfl innan hans klufu sig út
úr honum og stofnuðu lýðræðis-
legan Verkamannaflokk.
Whitlam er lögmaður að
menntun, kvæntur dóttur
hæstaréttardómara og eiga þau
þrjá syni og eina dóttur.
1 siðari heimsstyrjöldinni
gegndi hann herþjónustu sem
loftsiglingafræðingur i
ástralska flughernum og náði
liðsforingjatign.
Hann gekk i verka-
mannaflokkinn 1945 og komst á
þing 1952. t forystu flokksins
komst hann 1960 þegar hann
var valinn varaformaður.
Öðlast sjálf-
stœði en log-
ar í átökum
„Alheimsmiðslöð gyðingahaturs"
— segir fulltrúi ísraels um Sameinuðu þjóðirnar eftir
samþykkt ályktunar um fordœmingu zíonisma
Tilfinningarnar brutust fram i
ræðum manna á allshcrjarþingi
Sameinuðu þjóðanna i gær, þar
sem sainþykkt var ályktun á þá
leið að fordæma zionisma seni
ky nþáttafordómastefnu.
„Gyðingahatur hefur nú öðlast
alþjóðlega helgun,” sagði Daniel
Moynihan, sendiherra Banda-
rikjanna á þinginu, i umræðunum
og bætti við.
„Allsherjarþingið hefur idag.á
táknraman hátt gefið upp sakir
og jafnvel meira — morðingjum
sex milljóna evrópskra gyðinga.’
Chaim Herzog, fulltrúi fsraels,
lýsti þvi yfir, að Sameinuðu
þjóðirnar væru á „góðri leið með
að verða alheimsmiðstöð
gyöingahaturs.” — I litils-
virðingarskyni viðályktunina reif
hann afrit af henni i tvennt þar
sem hann stóð i ræðustólnum
fyrir framan þingheim og sagði
um leið: „Fyrir okkur,
gyð.ingaþjóðina. erþetta ekkert
annað en blaðsnepill, sem við
munum meðhöndla þannig.”
Alyktunartillagan hafði
upphiaflega verið samþykkt i
félagsmálanefnd þingsins. Hún
var lögð fram af 26 löndum
(Arabalöndum þar á meðal) —
Allsherjarþingið samþykkti hana
með 72 atkvæðum gegn 35, en 32
lönd sátu hjá.
Skæruliðar MPLA hlaupa fagnandi um götur Luanda til móts við ný-
fengið sjálfstæði Angóla, en fyrst um sinn vofir borgarastyrjöld yfir
hinu nýja ríki.
Með hátiðlegri athöfn
um miðnæturbil i nótt
öðlaðist Angóla sjálf-
stæði, var ekki fyrr laus
undan nýlegustjórn
Portúgals, en þær tvær
striðandi fylkingar
sjálfstæðisbaráttu-
manna sem barist hafa
um völdin að undan-
förnu höfðu kunngert
sin hvora stjórnina,
sem taka ætti við.
1 höfuðborginni Luanda lýsti
MPLA yfir stofnun alþýðu-
lýðveldis og kunngerði að for-
maður samtaka þeirra,
Agostinho Neto, yrði forseti.
En i Kinshasa, höfuðborg ná-
grannarikisins Zaire, lýstu tvenn
samtök skæruliða yfir myndun
annarrar rikisstjórnar. — FNLA
og UNITA kunngerðu að þeirra
rikisstjórn mundi hafa aðsetur
sitt i Huambo, sem áður var
kölluð Nýja Lissabon og er á
miðhálendinu, þar sem UNITA
ræður lögum og lofum.
Landstjórinn fyrrverandi yfir-
gaf Angóla i nótt og með honum
siðustu leifar nýienduhers
Portúgala. Portúgalstjórn hefur
enga þessara þriggja sjálfstæðis-
hreyfinga viljað viðurkenna, og
var enginn af hennar hálfu við-
staddur athöfnina i nótt.
Bardagar milli hinna striðandi
afla héldu áframi nótt, eins og
verið hefur undanfarna mánuði.
Burton fimmtugur...
Richard Burton leikari, hélt ina- og var margt um frægan
upp á fimmtugsafmæli sitt i manninn hjá þeim hjónum, Liz
gær með dýrlegri veislu þar °g Burton. En Burton stóð vel
sem hann bragðaði sjálfur þó v'h bindindisloforðið sem hann
ekkert sterkara en gosdrykk. gaf Lix fyrir mánuði, þegar þau
Kampavinið flóði fyrir gest- gengu í hjónaband i annað sinn.