Tíminn - 11.11.1966, Page 1
258. tbl. — Föstudagur 11. nóvember 1966 — 50. árg.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
Auglýsing f Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Vélin
bilaöi
Höfðust við í Akureyjum
í 7 tíma
SJReykjavík, fimmtudag.
í blaðinu í dag var skýrt frá
því, að báts frá Fagradal á
Skarðströnd, með fjórum
mönnum, hefði verið sakn-
að í gærkvöldi. Mennirnir
komu heim í nótt en þeir
höfðu orðið að snúa aftur til
Akureyja vegna bilunar í gír-
kassa.
Sigur'ður Þórólfsson, bóndi í
Fagradal, sagði í viðtali við Tím
ann í dag, að þeir félagar hefðu
farið á trillu með bát í eftirdragi
með um 70 fjár yfir í Hrúteyjar
og Akureyjar, en venja er að fara
með fé þangað á haustin og er
það sótt aftur á vorin. Þeir félag
ar ætluðu að koma heim aftur um
6 leytið í gærkvöld, en þegar þeir
voru lagðir af stað í áttina til lands
bilaði gírkassinn, og þar sem
nokkur strekkingur var kominn,
reru þeir aftur til Akureyja og
'kveiktu bál til að gera fólki í
landi aðvart. íbúar á Króksfjarðar
nesi sáu bálið og gerðu strax að
vart og fór Gullþórir frá Stykkis
'hólmi, undir stjóm Eyjólfs Ólaís
Framhald á bls. 15.
Myndin hér að ofan er frá iFlórenz á ítaliu og sýnir tvo slökkviliðsmenn og froskmann i gúmbáti draga kýrhræ upg úr vatnsleðiunni í borginni og
flytja þangað sem hræin eru brennd eða grafin, að ótta við drepsóttir. F rá þessari nýju hættu á flóðasvæðunum, segir í fréttlnni hér að neðan.
Nýjar hörmungar yfirvofandi á flóðasvæðum Ítalíu:
Míkíl hætta á drepsóttum
NTB—Róm ,fimmtudag.
Nýjar hörmungar eru nú yfir*
vofandi á flóðasvæ'ðunum á ít-
alíu — drepsóttir og hungur. I
dag unnu hermenn og verkamenn
að því að fiska upp dýraliræ úr
aurleðju víða á flóðasvæðunum og
grafa þau í sérstakar graf'f, sem
áður hafa verið sprautaðar með
kalki. Hefur hættan á drepsótt
um aðallega taugaveiki aukizt
Stórlega síðustu daga, sérstaklega
þar sem fjöldi bæja og þorpa er
enn einangraður.
í Flórenz einni hafa hermennirn
/ r
NAUTILUSI AREKSTRI!
NTB-Norfolk, Virginia.
Kjarnorkuknúni kafbáturinn,
Nautilus, rakst í dag á beiti-
skipið Essex á Atlantshafinu.
Um nánari atvik í sambandi
við þennan einstæða atburð,
getur ekki í stuttri tilkynningu
frá sjóher Bandaríkjamanna.
Áreksturinn varð um 360
sjómílur út af strönd Norður-
Karólína, en ekki hefur verið
skýrt frá því, hvernig slíkt
gat átt sér stað með öllum
þeim öryggistækjum, sem þessi
frægi kafbátur, er búinn. Líkur
benda til, að kafbáturinn hafi
verið á leið upp á yfirborðið,
Framhald á bls. 14
ir dregið um 2000 dýrahræ upp úr
leðjunni og grafið ásamt 200 lest
um af rotnuðum matvælum frá
sölutorgi borgarinnar.
Enn hafa ektkí borizt staðfestar
fregnir um taugaveikitilfelli, en
þegar héfur mikið magn af bólu-
setningarefni verið sent til Flór-
enz og fleiri borga, sem harðast
urðu úti í fióðunum á dögunum.
í norðurhluta Ítalíu óttast menn
enn ný flóð, enda þótt vatnið í
ánni sé nokkuð tekið að minnka,
en hækki það aðeins örlítið á nýj
an leik, er voðinn vís. f Flórenz
er mikill skortur á drylkkjarvatni
og sums staðar er matarskortur
farinn að gera vart við sig. Hundr
Framhald á bls. 14.
Eiríkur (t. v.) og Gisli viS sjónvarpsmælingabílirm fyrir utan hóteliS í Borgarnesi í gær. (Tímamynd — KJ)
Samningur leikara og
Sjónvarps á lokastigi
SJ-Reykjavík, fimmtudag.
Allgóðar horfur eru nú taldar á
því að Félag jslenzkra leikara og
Sjónvarpið undirriti samninga inn
an skamms, að því er Pétur Guð-
finnsson, framkvæmdastjóri Sjón
varpsins, tjáði Tímanum í dag.
Undirbúningur að samningagerð
inni hefur tekið alllangan tíma
en fyrsta tilboðið kom frá leik-
urum, síðan gagntilboð frá
Sjónvarpinu og nú eru samning
arnir á lokastigi. Það mun að sjálf
sögðu auka mjög á fjölbreytni
dagskrárinnar þegar Sjónvarpið get
ur leitað til íslenzkra leikara, eða
Framhald á bls. 15.
Sjónvarpsloftneti og sendi komið fyrir á Lambastöðum:
Vinna að mælingum fyrir Borgarnes
KJ.BorSarnesi, fimmtudag.
Tveir menn frá Landssimanum
vinna nú að mælingum vegna fyr-
irhugaðs sjónvarpssendis fyrir
Borgames og nágrenni. Er -búið
að koma fyrir loftneti og sendi
við Lambastaði I Álftaneshr. og
í dag er verið að mæla styrkleika
útsendingarinnar þaðan í Borgar
nesi og víðar.
Þeir, sem starfa a<i þessum mæl
ingiim eru Eiríkur Árnason og
Gísli Sigurðsson frá Landssíman
um. Sögðu þeir fréttamanni Tím
ans, að mælingar vegna íslenzka
sjónvarpsins fyrir Borgarnes og
nágrenni hefðu hafizt fyrir nokkru
— áður en áskorun um endur-
varpsstöð var send héðan. Og i
fyrstunni var talað um að hafa
endurvarpsstöðina í Rauðanesi, en
þegar til kom, reyndist það ekki
hagkvæmt þar sem „snjókoma“ var
á skerminum og urðu þvi Lamba
slaðir fyrír valinu.
Þar sem endurvarpsstöðin er
þarf að vera mannabústaður og
rafmagn, en rafmagn er frá diesel
rafstöð á Lambastöðum. Þeir fé
lagar sögðust hafa byrjað á því
að reisa loftnetsmastur við bæ-
inn og koma fyrir sendi, en síð-
an er styrkurinn frá sendinum
mældur þannig, að sérstaklega út
búnum Austin Gipsy bíl er ekið
vítt og breitt um svæði það. sem
ætla mál, að sjónvarpsgeislinn nái
til, og gerðar mælingar á sending
unni frá Lambastöðum með sér
stökum tækjum, sem eru í biln
um. M. a. er á bílnum mikið sjón
varpsloftnet á stöng, sem hækkuð
er með lofti frá honum. Þá hafa
þeir sjónvarpstæki í bílnum, og
sást sjónvarpsdagskrá frá Vatns-
endahæðinni vel í því tæki við
venjulegar aðstæður á Lambastoð
Framhald á ols. 14
GEMINI-12
UPP I DAG
NTB-Kennedyhöfða,
fimmtudag-
í dag var ölluin undirbún-
ingi lokið undir Gemini-12
geimferðina, sem hefst á
morgun. Tæki hinnar risa-
stóru Titan-eldflaugar voru
reynd og voru öll í lagi, en
erfiðleikar í sambandi við
sjálfstýringu flaugarinn-
ar komu í veg fyrir geimskot
ið þau tvö fyrri skipti, sem
það hafði verið boðað.
Með geimfarinu fara tveir
menn, þeir Jim Powell og
Buzz Aldrin. Geimferðin á
að taka fjóra daga og ýms
ar tilraunir verða gerðar.
Powell hefur áður farið í
Framhald á bls. 14