Tíminn - 11.11.1966, Blaðsíða 14
/
14
TÍMINN
FOSTUDAGUR 11. nóvember 1966
hVPTTA
FYamrid . n ms ■
uð manna stóðu á bökkum árinnar
Arnó í dag og þvoðu húsgögn sín
og heimilismuni upp úr ánni. Stór
ar lestir flutningabíla fara nú frá
Flórenz með bækur og skjöl, sem
skemmzt hafa í flóðunum. Verða
bækurnar fluttar til ýmissa
klaustra, þar sem munkar munu
reyna að gera við skemmdir. Hjálp
til hins bágstadda fólks berst nú
víða að. f dag bárust stórar send-
ingar af teppum matvælum og
klæðum. Til Flórenz eru komnir
bandarískir sérfræðingar til að að-
stoða við lagfæringar á listaverk-
um.
Frá því var skýrt í Genf í dag,
að Rauði krossinn í Evrópu, Banda
ríkjunum og Ástralíu hefði sent
Rauða kross ítaliu matarsending
ar að verðmæti um sem svarar
1 milljarð íslenzkra króna.
Innan Efnahagsbandalags Evr-
ópu er nú rætt um .hvernig hægt
sé að koma Ítalíu bezt til hjálpar
í þessum nauðum og átti Walther
Hallstein, forseti bandalagsins við
ræður við Saragat Ítalíuforseta í
dag í Róm um au efni.
VINNA AÐ
Framfiald,at bls 1
um í gær. Var heimilisfólkinu mik
ið nýnæmi að sjá sjónvarpið, enda
fór það svo, eins og á mörgum
öðrum heimilum, að börnin feng
ust ekki í matinn, eftir að dagskrá
in var byrjuð.
Vatnsendastöðin sendir sem
kunnugt er á rás 10, en þessi
stöð mun eiga að senda á rás sjö.
Skilyrði virðast vera góð á Lamba
stöðum fyrir sendinn, og líður
því vart á löngu, þar til Borgnes-
ingar og þeir, sem búa í nærsveit-
um geta horft á dagsk'rá íslenzka
sjénvarpsins.
NÝ TÆKI
Framhald af bls. 2.
út aftur. Þurra loftið leikur síðan
um innviðina og dregur til sín
rakann úr þeim, sogast rakt inn {
tækið og þar endurtekur rakaeyð-
ingin sig.
Fulltr. Samábyrgðarinnar og Skipa
skoðunarinnar kynnitust þessari i
þurrkunaraðferð í Noregi sl. sum j
ar fyrir atbeina norsks vísinda-
manns, hr. R.O.Ullevaalseter, sem
unnið hefur undanfarin ár á veg
um norska ríkisins að rannsókn-
um fúavarna í norskum tré-
fiskiskipum.
Aðilar þeir, sem standa að þess
um tilraunum gera sér góðar vonir
um, að ná árangri í baráttunni
gegn bráðafúa í tréskipum, en
hann orsakast af sveppum, sem
hafa útbreiðsluskilyrði í timbri,
sem inniheldur yfir 20% raka, og
segja má, að undantekning sé,
ef innviðir íslenzkra tréfiski-
skipa hafi ekki það rakainníhald.
KIESINGER
-ramna,(! 11 Ols 2
maður í utanríkisráðuneytinu á
þessum tíma. Sagði Kiesinger, að
framangreindir menn væru enn á
li.fi í Þýzkalandi. Það hefði getað
kostað mig lífið ef stríðinu
hefði ekki lokið á þeim tíma, sem
raun varð, bætti hann við.
Kiesinger sagði, að hann hefði
gerzt meðlimur nazistaflokksins
árið 1933, sem „íhaldssamur ung-
ur maður“ með von um að naz-
isminn yæri það eina góða. En frá
því árið 1943 hefði hann verið í
andstöðu við flokkinn og ekki
viljað hafa neitt með hann að
gera.
Kurt Georg Kiesinger er 62 ára
að aldri, er sagður fjöthæfur stjórn
málamaður með góða þekkingu á
innanlands - utanríkismálum. Hann
er fæddur 6. aprjl 1904 í Ebingen
í Baden Wurtemberg. Hann stund
aði háskólanám í heimspeki, sögu
og lögfræði í Túbingen og^ gerðist
síðan lögmaður í Berlín. f seinni
heimsstyrjöldinni var hann vís-
indalegur ráðunautur í utanrikis
ráðuneytinu. Hann kom fyrst fram
á stjórnmálavettvanginum árið
1949, sem frambjóðandi CDU í
Ravensburg.
Kiesinger þykir góður ræðumað
ur, og varð fljótt í hópi fremstu
þingmanna í sambandsþinginu.
Hann hefur verið formaður í utan
ríkismálanefnd þingsins og for-
maður ráðgjafanefndar Evrópu
ráðsins. Árið 1958 varð hann for
sætisráðherra í sambandslandinu
Baden Wúrtenberg og gegndi því
starfi þar til nú.
GEMINI
Framhald af bls. 1.
14 daga geimferð með Gem
ini-7, en þetta verður fyrsta
geimferð Aldrin. Er hann
fyrsti geimfarinn, sen) hef-
ur doktorsgráðu, en verk
hans fjallaði einmitt um
atriði í sambandi við geim
ferðir og þykir merkt vís-
indaafrek. Er Aldrin ætlað
að vera utan geimfarsins í
tvær klukkustundir og verfi
ur „göngutúr" hans há-
punktur ferðarinnar. Til-
raunin miðar fyrst og fremst
að því að komast að Jausn
vandamála í sambandi við
slíkar „geimgöngur“.
Reykjavík, mánudag.
Skemmuglugginn, snyrtivöru- og
barnafataverzlunin, sem byrjað
var að reka í húsinu Laugavegi
66 fyrir tveim árum, var flutt
yifr götuna fyrir síðustu helgi
og fékk hún inni í nýuppdubbuö-
um húsakynnum að Laugavegi 65,
sem innréttuð hafa verið eftir
teikningu Haralds V. Haraldssor.
ar arkitekts. Húsið, sem verzl
unin var í, verður nú rifið, og
og þar byggt stórhýsi í líkingu
við Kjörgarð með mörgum verzl
unum í. Eigandi og verzlunar-
stjóri Skemmugluggans er Fríða
Jónsdóttir.
Jólafargjöld Flugfé-
lagsins til Islands
Með það í huga, að alla sem
eru langdvölum erlendis, fýsir
heim um jólin, hefir Flugfélag ís
lands komið á sérstökum jólafar
gjöldum frá útlöndum til íslands
um hátíðirnar og nú geta íslend
ingar sem erlendis dveljast skropp
ið heim með litlum tilkostnaði og
haldið jól og nýár heima meðal
vina og kunningja.
Bridge-klúbbur FUF
mun hefja starfsemi sína með
sveitahraðkeppni mánudaginn 14. |
þessa mánaðar. Spilað verður)
vikulega á mánudögum í Tjarnar-I
götu 26. Stjórnendur Bridgeklbbsj
ins verða þeir Gissur Gissurarsonj
og Björn BenediktssonjÞátttakaer!
öljum heimil, og tilkynnist Gissuri'
i símum 24120 og 21865 og Birni
í síma 10789.
BRUNAÚTSALA
Framhaid at bis, 2
sem eitthvað er eftir þar
sem ákveðið er að tæma hús
ið algeríega áður en nýjar
vörur verða fluttar inn í það
svo að ekki sé hætta. á að
þær, mengist af reykjar-
lykt, sem kann að vera af
því, sem fyrir er í húsa-
kynnunum.
Á morgun verður Kjör
garður opnaður klukkan 9
og opinn eins og aðrar verzl
anir, og svo mun verða á
meðan brunaútsalan stend
ur.
ÞAKKARÁVÖRP
Kærar þakkir til allra þeirra, sem glöddu okkur hjón-
in á gullbrúðkaupsdegi okkar, með heimsóknum, gjöf-
um og heillaskeytum þann 5. 11. 1966.
Guð blessi ykyur öll um alla framtíð.
Sigurlaug Sigurðardóttir,
Guðmundur Guðmundsson,
Litla-Kambi.
Þökkum auðsýnda ramúð og vináttu vi3 fráfall oq jarðarför,
Stefáns SigurSssonar
Hólavegi 2, Sauðárkróki.
Vandamenn.
í ÁREKSTRI
Framhald al bls. 1.
er áreksturinn varð, en hafi
ekki verið á siglingu ofan
sjávar.
Yfirbygging kafbátsins mun
hafa skemmzt stórlega en eldd
hefur verið skýrt frá því, hvort
manntjón hafi orðið.
Nautilus er fyrsti kjarnorku
knúni kalbáturinn, sem smíðað
ur hefur veríð.
Hann er 3.180 brúttólestir að
stærð. Honum var hleypt af
stokkunum áríð 1954. Árið
1958 unnu Bandaríkjamenn það
afrek að sigla á kafbátnum í
fyrsta sinn undir Norðurheim
skautið og vakti sú ferð gífur
lega athygli á sínum tíma.
Þá hafa allmargar fjölskyldur
tekið upp þann hátt, að gefa slíka
ferð í'jólagjöf og hlýtur slíkt að
verða kærkomið þeim úr fjölskyld
unni, sem erlendis dvelst við nám
eða störf.
Þessi sérstöku jólafargjöld, sem
ganga í gildi 1. desember n. k.
fengust samþykkt á fargjaldaráð
stefnu IATA félaganna fyrir nokkr
um árum og giltu í fyrstu aðeins
frá Bretlandi til íslands.
Síðar tókst Flugfélagi íslands
að fá þesar reglur rýmkaðar þann
ig, að jólafargjöldin gilda nú frá
mörgum borgum í Evrópu.
Frá 1. deseimber í ár gilda jóla-
fargjöldin frá eftirtöldum stöð
um: Amsterdam, Bergen, Brussel
Kaupmannahöfn, Frankfurt, Glas
gow, Gautaborg, Hamborg, Hels-
ingfors, London, Luxemburg, Oslo
Paris, Stavanger og Stokfchólmi.
Þar sem síðustu ferðir frá út-
löndum fyrir hátíðar eru að jafn-
aði mjög ásetnar, er fólki sem
hyggst notfæra sér þessi hag-
kvæmu jólafargjöld, bent á að
tryggja sér far tfmanlega. Gildis
tími farmiða á jólafargjaldi er
einn mánuður frá því ferð hefst.
(Frá Flugfélagi íslands.)
Vélahreingerning
Aðalfundur Fram-
sóknarfél. Rvíkur
verður haldinn í Framsóknarhús-
inu við Fríkirkjuveg fimmtudag-
inn 17. nóvember og hefst kl.
20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðal-
fundarstörf. 2. Ávörp flytja alþing
ismennirnir Einar Ágústsson Og
Þórarinn Þórarinsson. Stjórnin.
NITTO
japönsku Nmro
HJÓLBARDARNIR
f flostum stærðum fyrirliggjandi
f Tollvörugeymslu.
FUÓT AFGREIÐSLA.
DRANGAFELL H.F.
Skipholti 35-Sími 30 360
■RUL0FUNAR
RINGIR/^
^MTMANNSSTIG 2i/r-^
Halldór Kristinsson,
gullsmiður — Sími 16979
IIIJilL
LAUGAVEGI 90-02
Stærsta úrval bifreiða á
einum stað. — Salan er
örugg hjá okkur.
Annar áætlunarbíll fauk
FB—Reykjavík, fimmtudag.
Áætlunarbíll, sem var á leið úr
Reykjavík upp á Akranes milli
klukkan 6 og 7 í kvöld fauk út af
veginum í Tíðaskarði. Geysilegt
hvassviðri var á þessum slóðum
í kvöld og hartnær ókeyrandi, sam
kvæmt upplýsingum Þórðar Þ.
Þórðarsonar á Akranesi, en bill
inn er í eigu hans. Ekkert varð að
farþegum áætlunarbílsins þrátt
fyrir þetta atvik, og ekki mun bíll
inn sjálfur heldur hafa látið neitt
á sjá, svo teljandi sé. Bíll frá ÞÞÞ
fauk út af veginum fyrir neðan
túnið hjá Þyrli á miðvikudaginn,
eiris og skýrt var frá í blaðinu í
dag, bílstjórinn slapp þar ómeidd
ur, en bíllinn skemmdist nokkuð.