Tíminn - 13.11.1966, Side 12

Tíminn - 13.11.1966, Side 12
260. íbl. — Sunnudagur 13. nóvember 1966 — 50. árg. „StlDUR UM rlÖFIN" Akranes Framsóknarfélag Akraness hcld ur skemmtisamkomu í félafisheim ilinu, Sunnudraut 21, í dag sunnudag og hefst hún kl. 8,30 Skemmtiatriði: Framsóknarvist og kvikmyndasýning. Öllum heimill aðgangur. Áðalfundur FUF í Keflavík. FB-Reykjavík, laugardag. Næsta haust, nánar tiltekl'ð 23. september leggja væntanlega 280 íslendingar upp í mikla siglingu suður um höf með vestur-þýzka skemmtiferðaskipinu Regina Mar- is en það er ferðaskrifstofan, Lönd og leiðir, sem skipuleSgur og stendur fyrir þessari skemmti ferð, sem mun taka 27 daga. Frá Reykjavík verður siglt til La Cor- una, Tangier Aþenu Beirut Nap- olí, Cadiz Lissabon og aftur til Reykjavíkur, og hingað komið 19. október. Regina Maris er fyrsta skemmti ferðaskipið, sem Vestur-Þjóðverj- ar byggja eftir heimstyrjöldina síðari. Skipið kom hingað í sumar og skoðuðu það þá um eitt þúsund manns. Regina Maris mun vera mjög hentugt til skemmtisiglinga eins og þeirrar, sem nú er ráðgerð. Farþegamir 280 ferðast allir á sama farrými og er klefum þannig hagað, að enginn tekur fleiri en þrjá. í öllum klefunum er hand laug og salerni og með flestum þeirra er einnig bað. Um borð er allt til þæginda m-a. sauna-bað, sérstakt loftkælingarkerfi, 2 bar- ir, grill, hárgreiðslustofa sundlaug og jafnvægisútbúnaður af nýjustu g-erð. Níu manna starfslið L&L verð ur með í förinni fararstjórar, skemmtistjórar, skipslæknir og hjúkrunarkona. Samkvæmt ferða- áætluninni verður margt til skemmtunar um borð í skipinu. Kynningar verða haldnar í sam- bandi við alla viðkomustaðina, þeim lýst og sagt frá því mark- verðasta úr sögu þeirra fyrr og nú. Gefið verður út skipsblað á hverjum degi bridge og skák- keppni mun fara fram, mönnum verða kennd dekkspil og tækifæri gefst til þess að æfa sig í skot- fimi og eitt kvöldið verður spum- ingakeppni, sem nefnist „Klefarn ir svara.“ Síðkjólaball yerður hald ið og sömuleiðis grímudansleikur og fleira og fleira í þessum dúr. Boðið verður upp á um 20 land- ferðir þar sem komið verður við þær eru ekki innifaldar í heildar- verði ferðarinnar, og kosta frá 150 upp í 750 krónur hver. Geta farþegar valið um þessar ferðir Framhald á bls. 22 verður haldinn í Tjarnarkaffi þriðiudaginn 15. þ. m. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. ávarp flytur Baldur Óskarsson, formaður SUF. Félagar fjölmennið. Stjórnin I kaffihléi á Leikæfingu í Borgarneesi. F. v. eru: Geir Björnsson (Leifur), Freyja Bjarnadóttii (Pálína Ó. Ægis), Hilmar Jóhannesson (Ægir Ó. Ægis), Þórhildur Loftsdóttir (Guðrún Ó. Ægis), Sigrún Símonardóttir hvíslari, Jónas Ámason, höfundur, leikstjóri og leikari (ráðherr- ann), Oddný Þorkelsdóttir, undirleikari, Þórður Magnússon (bílstjórinn), Friðjón Sveinbjörnsson (skáldið) Sigríður Héðinsdóttir (Sigga vinnukona) og Jón Pétursson (Einar í Einiberjarunni). Jónas Árnason KJBorgarnesi föstudag. Það var kaffihlé hjá leik- flokknum í Borgarnesi þegar blaðamaður Tímans leit inn á æfjngu á Dcleríum Búbonis í Samkomuhúsinu. Okltur Tíma mönnum hafði verið sagt, að Jónas Árnason annar af höf- undum leiksins, væri leikstjóri og léki auk þess eitt hlutverk ið, og það reyndist rétt, því að hann sat þarna innst við kaffiborðið á brúnu peysunni sinni ásamt öðrum leikur- um og aðstoðarfólki við sýn- inguna. Blaaðmanni var auðvitað strax boðið kaffi að drekka og úr „fanti“ rétt eins og hjá rit- stjórninni fyrir sunnan, og síð an segir Friðjón Sveinbjörns so, sparisjóðsstjóri og form. UMF Skallagríms að Deleríum Búbónis hafi verið tekið til sýningar vegna 50 ára afmæl is Ungmennafélagsins Skalia gríms í Borgamesi, en af- mælið er 3. des. n.k. og verður frumsýning á leiknum ein- hvern tíma um líkt leyti. Búið er að æfa í þrjár vikur, segja leikararnir, og frumsýningin, og aðrar sýningar verða hér í Samkomuhúsinu í Borgamesi. — Og þú ert höfundur leik ari og leikstjóri, Jónas? — Já, það má segja það, en leikstjórnin byggist á samvinnu hugsjóninni, eins og vera ber í þessu mikla samvinnu héraði en þó eru engir af for- ustumönnum Kaupfélagsins með í leiiknum, því að þeir korna til með að hafa nóg með sinn jólabisness að gera. Annars kom það í ljós, þeg- ar byrjað var að æfa, að leikur inn er töluvert gallaður segir Jónas og höfum við því þurft að breyta ýmsu og það án sér staks samráðs við hinn höf- undinn, bróður minn, hann Jón Múla. Og ef hann sættir sig ekki við breytingarnar þá seg- ir hann sig bara úr ættinni! Við notum Stainslavsky aðferð ina hér, og ef einhverjum dett ur eitthvað sniðugt í hug á æf- ingu eða verður mismæli, — sem notandi er, — þá er það notað. — Þú leikur ráðherra núna, en Skugga-Svein í fyrra. Hvom kanntu nú betur við? — Ég vil nú fyrst segja, að mig hefur alltatf langað til að leika og varðandi það hvor er betri þá get ég sagt þér, að hlutveririn eru eðMs- skyld. Báðir em nú stiga- menn, og báðir eru í gæru. — Þetta eru heilmikið ferða lög hjá þér á milli, eða ertu ekki kennari í Reykhoiti emr? — Jú, jú ég kennir þar og fer svo héma á milli á putt unum og gúmm ís tígvélum. Það er mitt metnaðarmál að láta ekki sækja mig enda hefur það ebki brugðizt fram að þessu, að ég fengi far. Þurfti að vísu, einu sinni að ganga 10 kfló- metra eða jafnlangt og minn daglegi göngutúr er, en ef það kemur bíll, þá skaltu vera viss um, að ég er alltaf tekinn upp í. Eg vissi fyrirfram, að þetta var hægt að ferðast svona, og Framhald á bls. 22. MEÐ REGINU MARIS JÓNAS ÁRNASON FER Á HVERJU KVÖIDI 88 KÍLÖMETRA Á PUTTANUM OG STÍGVÉL- UM TIL AÐ ÆFA OG LEIKA I „DELERÍUM BÚBÓNIS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.