Vísir - 21.11.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 21.11.1975, Blaðsíða 7
7 VISIR Föstudagur 21. nóvember 1975. i'NÐ :\ MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN Útlönd í morgun Umsjón: Guðmundur Péturssön Whitlam og 3 ráðherrar hans kvaddir fyrir rétt Gough Whitlain, forsætisráö- herra Astraliu, sem vikið varúr starfi á dögunum, og þrir meh- ráðhcrrar hans hafa verið kvaddir fyrir rdtt til að svara til saka fyrir samsæri við tilraunir til lántöku erlendis. Akærurnar verða sakir sem leitt geta til allt að þriggja ára fangelsisdóma. Saksóknarinn i Sydney gaf Ut kvaðningarnar i gær, og eiga mennirnir fjórir að mæta fyrir rétti 8. desember eða einungis fimm dögum fyrir kosningarnar i Astraliu. Þeir eru auk Whitlams, Lionel Murphy fyrrum dómsmálaráð- herra en nú hæstaréttardómari, Jim Cairns, fyrrum fjármála- ráðherra og Rex Connor fyrrum náma- og orkumálaráðherra. Liklegt má telja að réttar- haldinu verði frestað fram yfir kosningar eöa þar til snemma á næsta ári. Dómskvaðningarnar berast i sömu mund sem kosningabar- áttan er að hefjast i Ástraliu. Kosningabaráttan verður senni- lega harðari en nokkru sinni fyrr, eins og kom i ljós þegar tveir stjórnmálaleiðtogar Astraliu fengu bréfasprengjur i póstinum fyrr i vikunni. Þeir Malcolm Fraser sem settur var til að fara með bráðabirgða- stjórn fram til kosninganna eftir að Whitlam var vikið frá, og Jo- hannes Bjelke-Petersen, for- sætisráðherra Queenslandrikis. Sakirnar sem bornar eru á fjórmenningana varða stjórnar- ráðsfund sem Whitlam hélt 13. desember i fyrra. Þvi er haldið fram að ráðherrarnir fjórir hafi samþykkt að leggja til við landsstjóra hennar hátignar, sir John Kerr (þess sama sem vék Whitlam Ur embætti á dögun- um) að undirrita heimild til lán- töku erlendis, en lánsféð skyldi nota til bráðabirgðaaögerða. Akæran byggistá þvi að þetta hafi verið ólögleg samþykkt. Lánið hafi i reynd ekki verið til bráðabirgða, og látið hafi verið undir höfði leggjast að fá sam- þykki allra sex rikja Ástraliu til þessa áður. Tilraunir stjórnar Whitlams til lántöku erlendis leiddi af sér miklar pólitiskar deilur i Ástraliu meðan Verkamanna- flokkur hans sat enn við völd. Dr. Cairns fjármálaráðherra neyddist til að segja af sér, þeg- ar sýnt þótti að gæðingar hans höfðu þegið umboðslaun velúti- látin við fjáröflunina, prósentur af lánaupphæðinni. — Rex Connor orkumálaráðherra neyddist siðar til að segja af sér út af sama máli. Ákærurnar verða til að byrja með lesnar upp fyrir dómara i Queanbeyan i Nýja Suð- ur-Wales, og mun dómarinn Ur- skurða hvort tilefni sé til mála- ferla, eða hvort málinu verði vísað frá. Ef honum firmast málsatvik tilefni til réttarrann- sóknar fer málið strax fyrir hærra dómsstig. Mikill hiti er i Ástraliumönn- um eftir frávikningu stjórnar Whitlams. Skiptast menn i tvö horn. Sumir eru sammála land- stjóranum þegar hann sagði að stjórn Whitlams hefði ekki notið nógu mikils fylgis eða haft bol- magn til þess að koma fjárlög- um i gegnum þingiö og hefði þvi boriðaðefna til nýrra kosninga. Sir John kveðst hafa neyðst til að gripa i taumana, þegar Whit- lam þráaðistvið. — Aðrir telja, aö landstjórinn, sem er ekki annað en sameiningartákn og ekki pólitiskt afl i þingræðisriki, hafi farið út fyrir verksvið sitt og grafið upp fornan lagakrók að skýla sér á bak við. 1 þeirra augum er Whitlam fórnarlamb pólitisks samsæris hægri afl- anna. Nýrri oliu var hellt á eldana þegar æðsti umboðsmaður Ástraliu i Indlandi, Bruce Grant, sneri heim á dögunum til aö styðja Whitlam. Utanrikisráðherra bráða- birgðastjórnarinnar, Andrew Peacock, veittisthart að honum fyrir að yfirgefa diplómatastörf sin i Indlandi til að taka þátt i pólitisku moldviðri heima fyrir. Samtimis þessu hafa borist þau tfðindi af vali frambjóðenda sem vakið hafa hneykslan margra. Hinn 32 ára sonur Whittams verður hafður i fram- boði fyrir verkamannaflokkinn i Gray ndler-k jördæm inu i Sydney, en það er eitt allra ör- uggasta þingsæti verkamanna- flokksins og þykir sama og far- seðill beint inn á þing. —■ Anthony Whitlam hefur hingað til ekki vakið á sér neina eftir- tekt innan Verkamannaflokk- sins. Puerto Rico vann titilinn Rakst á fuglahóp og Ilin nýja fegurðardrottning heimsins, Wilnellia Merced, með ungfrú V- Þýskaland, Mariu Langer á aðra hönd (t.v.) og Vicki Harris frá Bret- landi hinsvegar. hrapaði ofan á bíl | Kona ein og fimm skóla- —^____«... Foriögin höguðu þvi svo ein- Kona ein og fimm skóla stúlkur fórust i slysi i Dunsfold í Énglandi i gær- kvöldi þegar forstjóraþota kinversks aðstoðarráð- herra rakst á fuglahóp# hrapaði til jarðar og lenti beint ofan á bifreið kvenn- anna. Hins vegar stóðu allir mennirn- ir niu sem voru i flugvélinni upp úr brakinu og gátu gengið óstudd- ir burt. Flugmaðurinn, ein af flughetj- um breta úr striðinu, John ,,katt- arauga" Cunningham, var að sýna kinverjunum flugvélina Engan sakaði í flug- vélinni en kona og 5 stúlkur fórust í bílnum fyrir framleiðendurna, en hún var af gerðinni Hawker Siddeley HS 125. Forlögin höguðu þvi svo ein- kennilega til að konan, sem fórst i bifreiðinni var eiginkona annars tilraunaflugmanns, starfsbróður Cunningham. Sá heitir Leslie Whrttingham og var flugsveitar- foringi i striðinu. Harm var fyrst- ur manna til þess að fljúga þotu á tæplega einum degi frá Englandi til Ástraliu. — Tvær dætur hans fórust eihnig með bifreiðinni. Atján ára skólastúlka frá Puerto Rico, dökk á brún og brá, rikir nú sem fcgurðardrottning alheimsins. Titrandi af geðshræringu varð fegurðardfsinni að orði þegar úr- slitin voru gerð kunn: ,,Ég trúi þvi varla, að það geti hent mig.” Úrslitin komu þeim 2.000 áhorf- endum sem sátu i Albert Hall i London þar sem keppnin fór fram i gærkvöldi nokkuð á óvart. Linda MacCartney slapp með frœðslu Dómari i Los Angeles hefur fellt niður ákærur á hendur Lindu McCartney, eiginkonu bitilsins fyrrverandi Paul, fyrir að hafa haft i fórum sin- um' marijúana. — Lét hann gott heita að hún gekk á sex mánaða námskeið um hættur fikniefnaneystu. Hann hafði reyndar þegar mál hennar kom fyrst fyrir i máli i sumar gefið henni kost á að velja annað tveggja: sækja fræðslu til lækna eða sæta refsingu laganna. Linda hafði verið tekin i Santa Monica i mars i bifreið með bónda sinum og fannst þá i veski hennar marijúana. Wilnellia Merced hafði skákað Marinu Langner frá V-Þýska- landi sem unnið hafði hug og hjörtu allra áhorfenda. i annað sætið, meðan Vicki Harris frá Bretlandi sem eðlilega átti visan stuðning landa sinna þarna. hreppti þriðja sætið. 68 fegurðargyðjur. þar á meðal ein frá Isiandi. Halldóra Björk Jónsdóttir. tóku þátt i keppninni. Þessi fegurðarkeppni hefur ekki alltaf farið fram með góðum friði siðustu árin. þvi að Rauð- sokkum er mikill ami að fyrir- bærinu. Þar á ofan hefur bæst dómendum til angurs að inn i hópinn hafa laumast einstæðar mæður og hreppt titilinn ..l'ngfru alheimur". sem ekki þykir full- komið sannnefni undir slikum kringumstæðum. Að þessu sinni fór keppnin til- tölulega tiðindalitiö fram. Ungfrú V-Þýskaland birtist þo kviknakin á siðum eins bresku blaðanna meöan keppnin stóö yfir. og fjórar stúlkur i keppninni sýndu andúð sina á liöþjálfa- kenndum fvrirskipunum stjórn- anda keppninnar meö þvi aö hreyfa sig hvergi á sviðinu. þegar hann öskraði: ..Hæia saman! Snú!". — þegar þær áttu að' sýna dómendunum niu bakhlutana á ser. Fegurðargyöjur 68 landa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.