Vísir - 27.11.1975, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 27. nóvember 1975.
19
Bílarnir og við....
Umsjón Ævar Ragnarsson
Einn kemur þá
annar fer
Hjá Chevrolet fylgja þeir svo
fast eftir reglunum um að
leggja minni áherslu á stóru
gerðirnar en meiri á þær litlu,
aö þeir hafa hætt að framleiöa
stærstu limósinuna Bel Air, en
aftur á móti hafið framleiöslu á
nýrri gerð, sem er sú minnsta
fyrir utan sportbllana, og heitir
Chevette.
Ekki tókst okkur að fá myndir
af tækinu hjá umboöinu (Sam-
bandinu) en efalaust verður
-''hægt að birta þær seinna og þá
ef til vill gera nánari grein fyrir
bilnum sem talinn er ein mesta
nyjungin á bandariskum bila-
markaöi þennan áratuginn.
Ferköntuð Ijós og
nýtt grill
Útlitsbreytingar eru hverf-
andi litlar á '76 árgangnum.
Stærri gerðirnar eru meö örlitið
Sparneytni
... sko kanann
Minni áhersla er nú lögð á
framleiöslu á stóru vélunum 454
cub. inch en aftur á móti bjóða
þeir nú nýja 305 cubic vél og
Turbo Hydra matic þriggja
hraða sjálfskiptingu sem gera
bilinn léttari og um leið spar-
neytnari en það er að sjálfsögðu
ekki talinn ókostur á þessum
siöustu og verstu timum.
Einnig eru fáanlegar fleiri
gerðir af minni vélum og fimm
hraöastiga sjálfskipting.
General Motors
farnir að spara
Chevrolet Monte Carlo Landau Coupe. Verö u.þ.b. 2.700.000 kr.
Impala 4-dyra sedan. Verö u.þ.b. 2.800.000 kr. Verö árg. ’75 u.þ.b. 2.500.000 kr.
Greinilég merki sam-
dráttar eru nú sjáanleg í
bandaríska risafyrirtæk-
inu General Motors, ef
litið er á bíltegundir þær
sem þeir hafa á boðstól-
um af árgerð '76.
Minni áhersla er nú
lögð á stærri gerðirnar en
allt kapp lagt á að gera
þær minni sem best úr
garði.
Þá má og sjá að óþarfa
glingur og pjátur er á
undanhaldi og um leið
veröa bilarnir heflaðri í
útliti. Einnig er eftirtekt-
arvert hve litlar breyt-
ingar verða á útliti bif-
reiðanna frá árg. 75.
I þættinum i dag verður
tekin fyrir „órólega
deildin" hjá General Mot-
ors, þ.e.a.s. Chevrolet.
Vega Sport Coupe. Verö u.þ.b. 1.900.000 kr.
breytt andlit og ber þar mest á
ferköntuðum ljóskerum, fjórum
að tölu. Einnig er grillið af nýrri
gerö, svona rétt til að einhver
breyting sé sjáanleg frá árinu
áður.
betta sama má raunar segja
um minni geröirnar, Nova og
Vega en þær halda ennþá
óbreyttum ljósunum tveimur.
Malibu Classic Coupe.