Vísir - 28.11.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 28.11.1975, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 28. nóvember 1975. ÞANNIG HUGSAR HINN ALMENNI BRETI UM LANDHELGISMÁLH) Rœtt við Mik Magnússon Hinn góðkunni frétta- maður Mik Magnússon er nú staddur hér á landi. Hann er lesendum Visis að góðu kunnur af þeim greinum sem hann hefur skrifað i blaðið. Viö ræddum við Mik og báðum hann að segja okkur af andrúms- loftinu i Bretlandi. Hver afstaða hins almenna breta væri i garð islendinga og hverjum augum menn litu þorskastriðið. Mik sagði að hinn almenni borgari, maðurinn sem þú mætir á götunni gerði sér heldur litlar hugmyndir um það sem fram færi á islandsmiðum. Menn hefðu almennt ekki sett sig inn i þær deilur sem væru á milli islend- inga og breta og hefði þvi fæstir fastmótaða skoðun á málinu. Hins vegar væri samúð þeirra greinilega með málstað islend- inga vegna þess hve fiskveiðar væru þeim mikilvægar. Það fólk sem les blöðin, mynd- ar sér skoðun á deilunni af þvi sem þar stendur. Blöðin eru flest á máli breta. Hugmyndir og skoð- anir íslendinga komast þar sára- sjaldan að. Og þó skoðanir islend- inga birtist á prenti öðru hverju gleymist það fljótt i hugum les- andans sem stöðugt er mataður af hugmyndum breta. Sjómenn gera sér of- veiðina ljósa Mik sagði að þeir sjómenn sem stundi veiðar á islandsmiðum geri sér flestir ofveiðina ljósa. Þeir sjá að afli þeirra fer minnk- andi og fiskurinn sem þeir fá núna er lika smærri en áður. Auðvitað vilja þeir þó halda áfram veiðum. Sjómennskan er þeirra lifibrauð. Mik Magnússon segir að það sé einnig fróðlegt að kynnast við- brögðum lögfræðinga i Bretlandi til fiskveiðideilu breta og Islend- inga. í útvarpsþætti sem hann var með spurði hann m.a. þrjá breska hafréttarfræðinga hvert þeirra álit væri á fiskveiðideilu breta og islendinga. Svör þeirra allra voru á sömu lund. Þeirtöldu ekkertólöglegt né rangt við þær aðferðir sem is- lendingar notuðu við útfærsluna á landhelginni. Mik sagði að fréttamenn stæðu oft berskjaldaðir gagnvart ein- hliða áróðri togaraeigenda og stjórnmálamanna. Fréttamenn hefðu ekki haft tækifæri til þess að kynna sér til hlitar alla þætti landhelgismálsins. Pólitískt sjónarspii En hver er þá ástæðan fyrir afstöðu bresku stjórnarinnar til landhelgisútfærslu islendinga? Mik Magnússon sagði að kjarni landhelgisdeilunnar væri alls ekki ólik sjónarmið islenskra og breskra sjómanna. Orsakirnar væru miklu flóknari. Nú rikti sem kunnugt væri mik- ið atvinnuleysi á Bretlandseyj- um. Mester atvinnuleysið ÍFleet- wood og við fljótið Humber þar sem Grimsby og Hull standa. Ef veiðar breta við Island legðust al- gjörlega niður þýddi það að tvö þúsund sjómenn misstu atvinnu sina og sex til sjö þúsund manns i landi yrðu atvinnulausir. Það fólk sem vinnur i frystihúsum, við hafnirnar og i „Fish and chips” búðum svo dæmi séu tekin. Ef einhver stjórnmálamaður i Bretlandi gæfi út yfirlýsingu um fylgi sitt við sjónarmið islendinga yröi það túlkað þar i landi þannig aö hann vildi kalla enn meira at- vinnuleysi yfir þjóðina. Að fá slikt orð á sig þyldi verka- mannaflokksstjórn Harold Wilr sons ekki. Af þessum aðstæðum og hugs- unarhætti mótaðist umræða stjórnmálamannanna i Bretlandi i landhelgismálinu. —EKG FLOTAVERNDIN er breska flotanum erfið Þaö getur verið fróðlegt að kynnast viðhorfum breta i land- helgismálinu. tgrein þeirri sem hér fer á eftir skrifar maður að nafni Desmond Wettern. Hann er ráðgjafi Daily Telegraph um flotamál. t greininni rekur Wettern um flotafhlutun breta og má ijós- lega sjá af grein hans að bret- um er það engan veginn auðvelt að halda úti herskipum á is- landsmiðum. Hinn konunglegi breski floti hefur sinar veiku hliðarog mörg skipanna eru gömul og úr sér gengin. Grein sú sem hér birtist var i Daily Telegraph þann 26. nóv- ember sl. Hlutverk breska flotans verður að verja breska togara fyrir islensku fallbyssubátun- um, sem eru miklu erfiðari viðureignar nú en i þorskastrið- inu fýrir tveimur árum. Þá kröfðust islendingar 50-milna lögsögu. En hin nýja 200-milna landhelgi, sem þeir krefjast nú, mun mjög stækka það svæði, sem flotinn verður að fylgjast með. Freigátan „Leopard” sem i fyrradag sigldi inn á miðin, mun þvi sennilega reyna að safna togurunum saman i hnapp, svo auðveldara verði að vernda þá. En fallbyssubátarnir munu eiga auðveldara um vik með togviraklippingar sinar vegna þess hve togararnir eru dreifðir og erfitt að dæma um, hvort tog- ari er innan 200 milnanna eða utan þeirra. Núna á dögunum munu tvær freigátur til viðbótar sigla til aðstoðar „Leopard”. En svo gæslan geti komið að einhverju gagni, verður að fjölga skipun- um verulega. Bresku togurunum til að- stoðar er einnig dráttarbátur, þrjú oliubirgðaskip og tvö að- stoðarskip, sem munu sjá um læknishjálp.og viðgerðir togar- anna. En ekkert þessara skipa er nægilega hraðgengt til að geta veitt nokkra vernd gegn Is- lensku varðkipunum. Hefðu fleiri herskip verið send á miðin, væri djúpt skarð höggvið i skipakost breska flot- ans. Freigáturnar þrjár eru einn áttundi hluti af fjölda tundurspilla og freigáta i heimaflota breta. Ef halda á uppi vernd til langs tima eins og I þorskastriðinu 1958, mun það útheimta hvern einasta tundurspilli og freigátu sem tiltæk eru, þar sem þrjár vikur eru taldar hámark þess tlma, sem herskip geta verið við gæslu I svæði, þar sem veður- skilyrði eru einhver þau verstu sem til eru. Sem stendur á flotinn sex tun dur spil la , vopnaða eldflaugum og 35 freigátur, sem i notkun eru viðsvegar um heim, að undanteknum sem eru til þjálfunar sjóliöa og. fl. Leopard lagt i lok ársins Einn eldflaugatundurspillir og ein freigáta verða send til niðurrifsá næsta ári, sem liður i afvopnunaráætlunum þeim, sem tilkynntar voru nú i vor, en „Leopard” verður hins vegar lagt i lok þessa árs. Tölur varnarmálaráðuneytis- ins, sem gefnar voru út i vor, sýna að flotinn hefur um 60 tundurspilla og freigátur til um- ráða. Þær tölur eru mjög vill- andi.Tiu þeirra eru annaðhvort i viðgerð eða þá ófúllgerð. Á meðal hinna 41 freigáta og tundurspilla, er starfhæf eru, þurfa mörg viðgerðar við, og er þvi fáanleg skip enn færri. Að nota stærri skip en tundur- spilla og freigátur til gæslu á Is- landsmiðum, væri óhentugt, þar eð þau eru of stór. Minni herskip eins og tundurdufla- slæðarar eru ekki nægilega sterkbyggð og sjófær til slikra starfa. Nómsmenn erlendis að verða félausir Fjöldi námsmanna erlendis hefur sent bréf til tslands, þar sem fram kemur, að þeir sjá sér ekki öllu lengur kost á að sjá sér og sinum farborða. Þessibréf hafa borist til Sam- bands islenskra námsmanna er- lendis (StNE), til Lánasjóðs is- lenskra námsmanna, og til ein- staklinga. Siðustu vikur hafa margir námsmenn erlendis notið að- stoðar annarra námsmanna, sem þá voru afiögufærir um fé. Nú er ástandið hinsvegar orðið þannig, að enginn er aflögufær lengur. Mikil ólga og örvænting rikir meðal þessara námsmanna, vegna ástandsins. Sý breyting að minnka hlut- fall haustláns af heildar náms- láni úr 7/12 hlutum niður i 5.25/12, hefur aðallega leitt til þessa. Samkvæmt út- reikningum stjórnar SINE hefur framfærslueyrir náms- manna erlendis almennt gengið til þurrðar i siðustu viku i október. Námsmönnum erlendis er ekki heimilt að stofna til fjárskuldbindinga i erlendum gjaldeyri til að bjarga sér. Stjórn SINE hefur sent for- sætisráðherra, menntamála- ráðhera og fjármálaráðherra bréf, þar sem skorað er á viðkomandi stjórnvöld að bregðast sk jótt við, svo úthlutun lána fyrir timabilið nóv.-des. Skora á stjórn- völd að flýta afhendingu lána geti hafist nú þegar. Að öllu óbreyttu á sú úthlutun ekki að hefjast fyrr en i janúar — i fyrsta lagi. Stjórnin óttast að afleiðing- arnar geti annars orðið þær m.a. að mörgum námsmönnum erlendis seinki i námi um heilt ár, eða verði jafnvel að hefja það að nýju, vegna ýmissa timatakmarkana eða reglna sem skólar setja. —ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.