Vísir - 02.12.1975, Page 17
VXSIR Þriðjudagur 2. desember 1975.
17
í DAG | í K VÖLD | ÍDAG |
Sjónvorp kl. 20:40:
Auglýsingar í útvarpi —
Samningar við Þjóðverja
— Borgarfjarðarbrúin
Heitar umræður urðu utan
dagskrár á Alþingi i siðustu
viku um auglýsingar útvarpsins
i sambandi við frásagnir af boð-
un útifundarins á Lækjartorgi. í
þjóðarskútunni i kvöld verða
sýnd brot úr þessum umræðum
— þingmönnum sleppt lausum
— ef svo má segja.
Einnig verður i þættinum
sýndur hluti úr umræðum á
þingi um samningsdrögin við v-
þjóðverja. Stuttir kaflar úr ræð-
um þingmanna verða birtir.
Þar á eftir verður sýnd mynd
þar sem Bragi Sigurjónsson
flytur þingsályktunartillögu,
sem varðar eignarrétt rikisins
á gögnum og gæðum landsins,
og umræðum um hana.
Að endingu verður svo rætt
við samgönguráðherra, Halldór
E. Sigurðsson, um Borgar-
fjarðarbrúna.
Umsjónarmenn þáttarins eru
að venju Björn Þorsteinsson og
Björn Teitsson. * — VS
Sjónvarp kl. 21:35:
... |>að varþá
skírlífisbelti
Bandaríska gamanmynda-
syrpan S'vona er ástin er fastur
liður i sjónvarpsdagskránni á
þriðjudagskvöldum. í kvöld eru
að venju 3 myffdir i syrpunni.
Sú fyrsta heitir: Astin og kon-
ur krossfaranna. Hún fjallar um
ung nýgift hjón á brúðkaups-
daginn. Á meðan þau biða eftir
hótelherbergi lita þau inn i forn-
gripaverslun. Maðurinn verður
þar hugfanginn af fornum
riddaravopnum. Sérstaklega
vekur áhuga hans gamalt sverð
og sveiflar hann þvi fagmann-
lega i kringum sig. Gaman væri
nú einnig að máta á sig eins og
eitt belti, sem þessir kappar
notuðu. En þar fór nú illa —
beltið reynist vera skirlifisbelti!
og nú upphefjast sjálf vandræð-
in, hvernig á að ná þvi af sér og
brúðkaupsnóttin i vændum!
Næsta mynd heitir: Ástin og
ævintýrið. Stúlka nokkur fær
samstarfsmann sinn af skrif-
stofunni til að koma með sér
heim, þar sem hún óttast að
þjófar séu i ibúðinni hennar.
Maðurinn er fús til að fylgja
henni heim en ekki lengra, þar
sem hann er dyggur sinni eigin-
konu. Hún fær hann þó með sér
inn til að hjálpa sér við að opna
krukku. Ekki tekst þó betur til
en svo að innihald krukkunnar
hellist niður á fötin hans. Nú eru
góð ráð dýr. Konan biður heima
með matinn og allar búðir
lokaðar. Fötin verður þvi að
hreinsa svo hann er drifinn úr
þeim og.... Já, það er nú það.
Þriðja og siðasta myndin heit-
ir: Ástin og veitingahúsið.
Hún segir frá skrifstofu-
manni, sem bregður sér yfir
götuna á veitingahús til að
borða. Neðar við götuna starfar
veitingahús, sem hefur fá-
klæddar konur til að þjóna gest
um við borðs. Fyrrnefnda veit-
ingahúsið vill ekki vera eftir-
bátur i þjónustu, og héfur ráðið
til sin slikar gengilbeinur.
Maðurinn er þó ekki fyrr
genginn út en eiginkonan kemur
á skrifstofuna með vinkonu
sinni til að færa honum þau
gleðitiðindi að-hún hafi verið
kosin i nefnd kvenna sem berj-
ast á gegn ósómanum i þjóð-
félaginu. Hún fær að vita hvar
eiginmanninn er að finna og
skálmar yfir á veitingahúsið án
þess að simastúlkan fái vörnum
við komið. Áhorfendur geta
byrjað að gera sér i hugarlund,
hvernig ástandið verður — en
biða með að sjá þar til i kvöld.
-VS
Sjónvarp kl. 22:25:
Varnarkerið á
NA-Atlandshafi
UTAN ÚR HEIMI nefnist
mánaðarlegur þáttur i sjón-
varpinu undir stjórn Pr. Gunn-
ars G. Schram, prófessors. Að
þessu sinni tekur hann fyrir að
ræða um varnarkerfið á NA-At-
lantshafi. Viðinælendur Pr.
Gunnars verða þeir Björn
Bjarnason, skrifstofustjóri, og
Ólafur Ragnar Grimsson,
prófessor.
Flotastyrkur herja NATO og
Sovétrikjanna, staða og
breytingar á stöðu þeirra, verða
grundvöllur umræðnanna i
kvöld. Inn i þá mynd koma og
auðlindasjónarmið vegna oliu-
borana á Barentshafi.
Hvernig umræður annars þró-
ast, fáum við að sjá og heyra i
kvöld.
-VS
;tta kailist ekki högg i holu,
minn!
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Um atvinnumái fatlaðra
Fyrri þáttur: Vinnumiðlun.
I þættinum er m.a. rætt við
forráðamenn Endur-
hæfingarráðs ríkisins. Um-
sjónarmenn: Gisli Helgason
og Andrea Þórðardóttir.
15.00 Miðdegistónleikar: ts-
lenzk tónlista.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatim inn Sigrún
Björnsdóttir sérum timann.
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
. ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýzku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
21.35 Svona er ástin.
Bandarisk gamanmynda-
syrpa. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.25 Utan úr heimi. Umræðu-
þáttur um erlend málefni.
Stjórnandi Gunnar G.
Schram.
22.55 Pagskrárlok.
SJÓNVARP •
Þriöjudagur
2. desember 1975.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsingar.
20.40 Þjóðarskútan.Þáttur um
störf alþingis. Umsjónar-
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Eftirmæli eftirstriðsár-
anna Björn Stefánsson
búnaðarhágfræðingur flytur
erindi um efnahagsmál
stjórnmálog félagsmál á ís-
landi eftir strið.
22.00 Lögunga fólksinsSverrir
Sverrisson kynnir.
20.45 Að skoða og skilgreina
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.15 Fyrri landsleikur ís-
iendinga og Norðmanna i
handknattleik Jón Ásgeirs-
son lýsir úr Laugardalshöll.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins Dr. Jakob Jóns-
son flytur þriðja þátt sinn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Viihjálmsson
22.40 Harmonikulög
Jularbo-kvartettinn leikur.
23.00 A hljóðbergi „The Play-
boy of the Western World”.
Gamanleikur i þremur þátt-
um eftir John Millington
Synge. Með aðalhlutverkin
fara: Cyril Cusack og Siob-
han McKenna. Siðari hluti.
23.50 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
\mm
j ÚTVARP #
Þriðjudagur
2. desember
Eiginlega er mér sama um allar gæsir.