Vísir - 04.12.1975, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur 4. desember 1975.
3
40 börn njóta góðs
af þessu kennslutœki
„Inner Wheel" gaf
Öskjuhlíðar skóla
vandað segulband
til notkunar til
talkennslu
öskjuhliöarskóli, sem er
hæfingarskóii rikisins, fékk i
gær að gjöf vandað segulbands-
tæki til notkunar við talkennslu.
Gefandi er kiúbburinn „The
Inner Wheel” eða innra hjólið,
en honum tiiheyra eiginkonur
manna sem eru Rotary-félagar.
Magnús Magnússon, skóla-
stjóri, þakkaði gjöfina sem hann
sagði mjög kærkomna. Við
skólann eru 116 nemendur og af
þeim eru fjörutiu sem koma til
með að njóta góðs af þessu tæki
við talkennslu nú þegar.
— Börnin okkar eru með
meiri talgalla en gerist i öðrum
skóium, sagði Magnús. — Eitt af
þvi sem gerir manninn að
manni er málið. Að laga málfar
er eitt það þýðingarmesta sem
gert er i öllu skólastarfinu. Það
er margt sem þarf að kaupa og
aldrei fé fyrir þvi öllu. Svona
segulbandstæki er meðal þess
sem okkur enn vantaði. Þetta
er þvi kærkomin gjöf sem á eftir
að veita mikla hjálp.
Þetta segulband er mjög
næmt og nemur vel háa og lága
tóna. Börn með heyrnargalla
þurfaaðgeta heyrti sjálfum sér
til að læra að tala rétt. Heyrnar-
Helga G. Björnsson afhenti
segulbandstækið fyrir hönd
„Inner Wheel”. Hér skoðar hún
það ásamt Hildu Torfadóttur,
talkennara öskjuhliðarskólans.
missirinn er oft annaðhvort i
háu eða lágu tónunum Segul-
band sem þetta kemur að mikl-
um notum i slikum tilfellum.
— ÓT.
Þeir Jóhannes, Tómas og Páll eru staðráðnir i að halda blaðinu „Trompásinn” gangandi sem allra
lengst. Ljósm: Jim.
„Trompós? Ætli það sé
ekki það allra besta?"
— þrír strókar gefa út nýtt barnablað
,,Af hverju það heitir
Trompás? Ja, það er
nú ekki svo gott að
segja. Ætli nafnið eigi
ekki bara að þýða það
„allra besta”.”
Þetta sögðu þrir ungir og
hressir „blaðamenn” sem litu
við á ritstjórninni hjá okkur
með nýtt barnablað undir hend-
inni. Blaðið heitir einmitt
Trompás og á að koma út einu
sinni i mánuði. Þegar eru þrjú
blöð komin út, en strákarnir
gefa út og vinna blaðið sjálfir.
„Við gerum þetta bara vegna
ánægjunnar, en ekki vegna þess
að við ætjlum okkur að græða á
þvi,” sögðu strákarnir sem
heita Jóhannes Gisli Jónasson,
Tómas Guðmundsson og Páll
Þórhallsson og eru 11-13 ára.
Þeir eru i Hvassaleits- og Álfta-
mýrarskóla.
„Við reynum að skrifa sem
mest sjálfir. Nei, nei það fer
ekkert svo mikill timi i þetta,
enda skiptir það engu máli. Við
erum ekkert timabundir og svo
er þetta bara gaman.”
— Hvernig datt ykkkur i hug
að gefa út blað?
„Okkur fannst bara vanta
eitthvað barnablað, það eru
eiginlega engin á markaðnum
hér.”
— Selst blaðið vel?
„Já, já, við erum komnir með
um 60 áskrifendur og núna erum
við t.d. að verða búnir að selja
upp 90 blöð. Fyrst gáfum við út
30 sem seldustupp, siðan 40 sem
seldust upp og loks 90 núna.”
Blaðið þeirra kostar svo 30
krónur og þeir eru staðráðnir i
að reyna að halda þvi gangandi
sem lengst.
— EA.
Flugfélag
Norðurlands
kaupir Twin
Otter vél
Flugfélag Norðurlands er að
kaupa tuttugu sæta Twin Otter
skrúfuþotu sem kemur til lands-
ins fljótlega eftir áramót. Sig-
urður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri sagði Visi i morg-
un að mikið hefði verið að gera
hjá félaginu i vetur og löngu
timabært að fá stóra og duglega
flugvél.
Flugfélag Norðurlands á nú
tvær niu sæta Beechcraft 18 vél-
ar og eina sex sæta Piper Aztec,
Þá hefur það Douglas DC-3 vél
Landgræðslunnar á leigu og
notar hana þegar þörf krefur.
Tvær Twin Otter skrúfuþotur
eru þegar i notkun á Islandi.
Þær eru i eign Vængja hf. i
Reykjavik og hafa reynst sér-
lega vel.
—ÓT
Lítið um land-
anir íslenskra
bóta erlendis
„Þaö sem mcstu ræður um
hvort Islendingar selja meira af
afla sfnum erlendis er einkum
tvennt:
1 fyrsta lagi hvort tollalækk-
unin sem gert er ráð fyrir I
samningunum viö EBE kemur
til framkvæmda. Og i öðru lagi
hvort við fáutn lækkaðan lönd-
unar-og markaðskostnað okkar
á Evrópumörkuðum.”
A þéssa leið fórust Kristjáni
Ragnarssyni formanni Ltú orð
er Visir spurði hann hvort
merkjanleg væri breyting á sölu
islenskra báta erlendis eftir aö
samningarnir við vestur-þjóð-
verja tóku gildi.
Kristján sagði að landanir
islenskra báta i erlendum höfn-
um væru miklu fátiðari nú en
fyrir nokkrum árum. Aðeins
hafi orðið litils háttar breyting
er vestur-þjóðverjar afnámu
löndunarbannið.
—EKG
„TÓM LYGI"
— segir Ingibergur Þorkelsson um þœr fréttir, að
slitnað hafi upp úr samstarfi Demants og Change
„Þetta er allt saman
tóm lygi og kjaftæði,”
svaraði Ingibergur Þor-
kelsson hjá Demant
þegar Visir hafði tal af
honum vegna þeirra
blaðafrétta, að slitnað
hafi upp úr samskiptum
hljómsveitarinnar
Change og umboðsfyrir-
tækisins Demants.
„Strákarnir i Change eru á
meðal stofnenda þessa umboðs-
fyrirtækis, og það er tómt kjaft-
æði, að „megn óánægja hafi verið
af beggja hálfu með samstarfið
að undanförnu,” eins og Ómar
Valdimarsson segir i frétt i Dag-
blaðinu i gær,” sagði Ingibergur.
„1 frétt Ómars segir, að
Magnús Sigmundsson i Change
hafi komið heim til tslands i
stutta heimsókn i siðustu viku og
viljað halda fund með blaða-
mönnum á skrifstofu Demants
vegna nýrrar plötu Change,” hélt
Ingibergur áfram. „Ómar segir,
að „þegar til kom hafi húsið verið
lokað og hreint ekki opið fyrir
blaðamannafund.” Þetta er al-
rangt. Fundurinn var haldinn en
það kom enginn nema blaðam.
frá Þjóðviljanum, en Magnús
hafði sjálfur haft samband við
hann. Blaðamenn frá öðrum blöð-
um hafði Ómar tekið að sér að
boða en stóð ekki við það loforð og
kom ekki einu sinni sjálfur.
Hins vegar er það rétt, að
Fálkinn hf. hefur keypt það upp-
lagChange-plötunnarnýju, sem á
að fara á markað hérlendis. Fálk-
inn bauð tvær og hálfa milljón á
borðið fyrir allt upplagið og ég tel
eðlilegt að þvi tilboði hafi verið
tekið. Demant hafði ekki fjár-
hagslegt bolmagn til að bjóða
þessa upphæð á borðið,” sagði
Ingibergur. Og hann hélt áfram:
„Demant hefur aftur á móti um-
boð fyrir Change hér heima hér
eftir sem hingað til. Á þvi hefur
ekki orðið nein breyting — og er
ekki heldur I aðsigi, að þvi er ég
best veit. Hvaðan Ómar hefur
aðrar upplýsingar er mér hulin
ráðgáta.”
Magnús er farinn aftur til
London og þvi tókst Visiekki að fá
hann til að tjá sig um málið.
— ÓH