Vísir - 04.12.1975, Blaðsíða 24
VÍSIR
Fimmtudagur 4. desember 1975J
••
Olvaður
með stolna
peninga
Lögreglan hitti gamlan
kunningja ölvaðan fyrir utan
Hótel Borg á sjötta timanum
i gær. Þetta er svo sem ekk-
ert tiltökumál, en i þetta sinn
var hann með veski annars
manns á sér með 17 þúsund
krónum i.
Ekki er vitað um eiganda
ennþá. ~,vs
Niðurskurð-
orfrumvörpin
eftir helgi
Niðurskurðarfrumvörp
rikisst jórnarinnar, sem
boðuð voru í fjárlagafrum-
varpinu i byrjun október
verða væntaníega lögð fram
á Aiþingi eftir helgi.
Matthias A. Mathiesen fjár-
málaráðherra sagði i sam-
tali við Vísi i inorgun að
vcrið væri að vinna að frá-
gangi frumvarpanna og þau
væru til umræðu á fundi
rikisstjórnarinnar f dag.
Hér er um að ræða al-
mennan niðurskurð á lög-
boðnum útgjöldum rikis-
sjóðs, breytingar á almanna-
tryggingakerfinu og breyt-
ingar á verkefnaskiptingu
rikis og sveitarfélaga. Auk
þess er i ráði að lækka út-
gjöld til skólamála.
— 1>P.
Fíat í
óskilum
Litil, rauð Fiat-bifreið stóð
fyrir framan eitt biðskýla
SVR I Arbæ i morgun. Hvort
hana hefur vantað far-< eða
bara gcfist upp þarna — er
ekki vitað, þvi að eigandinn
finnst enginn. Bifreiðin er
óskráð, númerslaus og engin
skilríki af nokkru tagi fund-
ust i henni. Lögreglan tók
hana f sina vörslu.
Bifreiðin er sennilega af
árgerðinni 1966.
— VS
HOMLUR A
SKIPA- OG
FLUGVÉLA-
KAUP
Framvegis mega |
erlend lán vegna kaupa 1
á skipum og flugvélum, _
nýjum sem notuðum, |
ekki vera hærri en sem |
nemur 2/3 hlutum
samnings- eða kostnað-1
arverðs.
Þetta er helsta breytingin
sem gerð hefur verið á leyfum ■
til erlendrar lántöku til lengri |
tima en eins árs.
1 frétt frá viðskiptaráðuneyt- |
inu segir að rikisstjórnin hygg-
ist með þessu draga úr frekari I
skuldasöfnun erlendis og koma f |
veg fyrir frekari aukningu I
greiðslubyrða vegna vaxta og ■
afborgana af erlendum skuld-
um. —EB |
Grafið
fyrir Flua-
leiðum
Byrjað er að grafa fyrir
grunni nýrrar skrifstofubygg-
ingar Flugleiða á Reykjavikur-
velli.
Að sögn Finnbjörns Þorvalds-
sonar, skrifstofustjóra, er fyrir-
hugað að a.m.k. ein hæð af
þremur verði tilbúin til notk-
unar 1. október næsta haust og
hinar um áramót þar á eftir.
Byrjað verður á þvi að flytja
allar skrifstofur Flugleiða —
sem nú eru til húsa i Bændahöll-
inni — i hið nýja húsnæði, en i
framtiðinni verður þarna að
finna allar aðalskrifstofur fé-
lagsins.
Stærð hverrar hæðar er um
700 fermetrar.
— EB/Ljósm. Bragi.
GEYMT EN EKKI
Breski fréttamaðurinn
I iVl ■ enn n Neskaupstað
Breski fréttamaðurinn McPhee
sem laumaðist i land af eftirlits-
skipinu Miröndu er enn á Nes-
kaupstað.
Böðvar Bragason, bæjarfótgeti
þar, sagði í viðtali við Visi i morg-
un að hann biði nú fyrirmæla frá
dómsmálaráðuneytinu um
hvernig málið skyldi endanlega
til lykta leitt.
McPhee hefur skýrt frá þvi aö
skipstjóri Miröndu hafi tjáð sér
að búið væri að ganga frá öllum
málum við islensk yfirvöld, og
ekkert væri þvi til fyrirstöðu að
hann færi i land.
Eftirlitsskipinu Miranda hefur
verið gert að snúa aftur til Nes-
kaupstaðar og sækja manninn. Að
sögn Böðvars Bragasonar hefur
skipið veriö á leiö til lands frá þvi
um miðnætti, en hefur ekki viljað
gefa upp væntanlegan komutima
sinn til Neskaupstaðar. Böðvar
sagðist hins vegar hafa hug-
myndir um að Miranda væri nú
skammt undan landi.
Ólafur Stefánsson hjá dóms-
málaráðuneytinu sagði að
hugsanlegt væri að tekin yrði
skýrsla af McPhee vegna þessa
máls, en ef Miranda kæmi fljót-
lega inn og sækti manninn yrði
málinu liklega þar með lokið að
öðru leyti en þvi að það yrði
geymt og munað gagnvart skip-
stjóra Miröndu.
Ef einhver dráttur yrði hins
vegar á komu skipsins þyrfti
e.t.v. að gera einhverjar ráð-
stafanir vegna þess.
— EB
Jolagetraun Vísis hefst á morgun:
Glœsilegri
en nokkru
Iiin áriega jólagetraun Visis
hefst i blaðinu á morgun. Eins
og venjulega er getraunin hæfi-
lega þung, og ættu allir að geta
spreytt sig á henni.
Getraunin veröur i næstu tíu
blöðum. Að þvi ioknu ber að
senda úrlausnir til Visis, og
verður dregið úr réttum úr-
lausnum fyrir jól.
Jólagetraunir Visis hafa löng-
um verið þekktar fyrir glæsileg
vcrölaun. Aö þessu sinni eru þau
glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Verðlaunin cru Nordmende
verðlaun
sinni fyrr
samstæða frá Radió-búðinni. t
samstæðunni, sem kostar 133
þúsund krónur, er plötuspilari,
kassettu-scgulband, magnari og
útvarp, alit i stereo. Þar að auki
fylgja með tveir hátaiarar og
tveir hijóðnemar.
En semsagt, getraunin hefst á
morgun. Þá leggja hjónin Steini
og Gunna upp i mikla heims-
reisu, og bragða á ýmsum
þjóðarréttum. Uppskrift fylgir
með á þeim réttum sem hjúin
bragða á.
— ÓH
Finnar eru klókir menn og
góðir hönnuðir. Fyrir nokkru
héldu finnsku Nokia-skóverk-
smiðjurnar sýningu á skófatn-
aði hér á landi. — Þar voru
meðal annars sýnd þessi vað-
stigvél. Með stigvélunum fylgja
naglar f plastpoka, sem eigend-
ur geta stungið I göt á sóia stíg-
vélanna, ef mikil hálka er. A
myndinni sést hvcrnig þetta er
gert.
Nokia-verksmiðjurnar hafa
um áraraðir selt framleiðslu
sina hér á landi. Islendingar
hafakeyptum lOOþúsundpör af
hverskonar skófatnaði frá fyrir-
tækinu á ári sem er um einn
áttundi af heildarframleiðsl-
unni. Til dæmis hafa verksmiðj-
urnar framleitt ofanálimd stfg-
vél fyrir islenska sjómenn, sam-
kvæmt þeirra eigin ósk.
Mynd: Bragi.
KONA LÉST
EFTIR ÁTÖK
Ung kona, 21 árs, lést í
sjúkrahúsinu í Keflavík í
gærdag. Dánarorsök er
enn ókunn, en skömmu
áöur hafði hún lent í átök-
um við 16 ára pilt. Engir
áverkar voru á líkinu.
Tildrög þessa voru þau að inn
i verslunina Brautarnesti við
Hringbraut i Keflavik komu
nokkrir piltar út gagnfræða-
skólanum og höfðu uppi nokkur
ærsl. Konan vann þar við af-
greiðslu. Hún visaði einum pilt-
anna á dyr, en hann hlýddi ekki.
Fór hún þá fram fyrir borðið og
hugðist ýta honum út fyrir. Kom
þá til stympinga með þeim.
Fóru piltarnir að svo búnu.
Skömmu seinna kom inn i
verslunina 14 ára piltur og sá
engan við afgreiðslu, en heyrði
stunur úr bakherbergi. Hann
gerði viðvart nærstöddu fólki,
sem kom konunni til hjálpar.
Konan lést skömmu siðar á
sjúkrahúsinu.
Sjónarvottum og piltinum ber
saman um að einungis hafi
verið um pústra að ræða, engin
högg eða vopni beitt, enda voru
engir áverkar á likinu. Krufn-
ing á svo eftir að leiða i ljós hver
dánarorsökin var.
Ekki er talið óliklegt að
hjartað hafi gefið sig.
Pilturinn er i haldi hjá lög-
reglunni i Keflavik. — VS