Vísir - 04.12.1975, Blaðsíða 10
10
Fimmtudagur 4. desember 1975.
VISIR
FLUGMAL
UMSJON
Flugstöðin, sem bæði er leigu-
flugfélag og svo flugskóli, hefur
marga nemendur. Það vakti at-
hygli okkar hversu margir
læknar virðast hafa áhuga á þvi
að fljúga.
Læknastéttin á marga full-
trúa I flugnámi. Við spjölluðum
þvi við fjóra lækna sem annað
hvort hafa lokið prófum eða eru
að læra. Allir eru þeir i fullu
starfi, en af hverju völdu þeir
llugiö í frístundum?
Lœknastéttin
ó marga
fulltrúa
í flugnómi
Við spjölluðum við fjóra sem
allir lœra hjá Flugstöðinni
,,Ég er fyrst og fremst leikmað-
ur, og verð aldrei annað en leik-
maður” — Frosti Sigurjónsson
skurðiæknir.
voru öllum stundum á
Sandskeiði. Einu sinni
tóku þeir mig með, og
eftir það var ég þar!”
bað er Frosti Sigurjónsson
skurðlæknir á Borgarspitalan-
um sem þetta segir. Frosti hef-
ur lokið sólóprófi og situr nú á
námskeiði fyrir einkaflug-
mannspróf.”
„Eftir að hafa verið i svifflug-
inu vildi ég fá mótor i vélina. Ég
fór þvi til Eliesers Jónssonar á
Flugstöðinni til þess að læra
þar. Áður hafði ég kynnst flug-
inu i litlu vélunum, enda höfum
við þurft mikið á þeim að
halda.”
Frosti hefur rúmlega 50 tima-
Ekkert hœttulegra
en að keyra bíla
##
.##
— segir Frosti Sigurjcmsson skurðlœknir
,,Ég byrjaði i svif-
flugi. Þvi kynntist ég
fyrst i Þýskalandi, en
það datt siðan niður hjá
mér. Seinna kynntist
ég þvi aftur i gegnum
tvo kollega mina, sem
að baki. „En ég er fyrst og
fremst leikmaður”, segir hann,
,,og ég verð aldrei annað en
leikmaður.”
„Ég held að flugið sé ekkert
hættulegra en það að keyra
bila,” heldur Frosti áfram og
bætir við: ,,Ég ætla að notfæra
mér flugið til þess að skoða
landið.”
„Ég hef mik-
inn óhuga fyrir
flugi, en
atvinnuflug-
maður verð
ég ekki!"
— segir Ólafur Ingi-
björnsson lœknir
Ólafur Ingibjörnsson
er læknir og er með
læknastofu i Domus
Medica. Ólafur er með
sóló-próf, sem veitir
honum rétt til þess að
fljúga einliðaður innan
svokallaðs vallarsviðs.
,,Ég var i Dublin árið
1963 þegar ég fór i mina
fyrstu kennslustund,”
sagði Ólafur. ,,Ég var á
háskólaspitala og það
var stúdent hjá mér
sem var uppgjafaher-
„Tók niinar fyrstu kennslu-
stundir i Dublin” — ólafur Ingi-
björnsson iæknir.
maður hjá Royal Ari-
force. Hann tók mig
með sér i nokkrar ferð-
ir.”
„Síðan lagðist þetta nú niður
en þegar ég var á Stykkishólmi
1967, ákvað ég að taka þetta upp
aftur. ég hafði talsvert af
sjúkraflugi að segja og fór þá
fyrir alvöru að taka kennslu-
stundir hjá Flugstöðinni. Sóló-
prófið tók ég svo 1968.”
„Eftir það fór ég ekki mikið
lengra en ætli ég sé.ekki með 70-
80 tima að baki. Ég hef lika ver-
ið með i sjúkraflugi og það má
segja að ég sé alltaf með annan
fótinn i þessu.”
„Ég hef mikinn áhuga fyrir
flugi og hef mjög gaman af þvi
aö vera i loftinu, en atvinnuflug-
maður ætla ég mér ekki að
verða!”
Og það má geta þess að þegar
Ólafur byrjaði að læra að fljúga,
kostaði timinn á Sky-hawk, sem
er 4ra sæta vél og eins hreyfils,
250-300 krónur. Nú er hann kom-
inn i nokkur þúsund.
ANDRESDOTTIR
„Ég flýg mér tii ánægju og
fróðleiks” — Óiafur Þ. Jónsson
svæfingaiæknir.
„Ætli það
kosti meira
en 4 góðar
laxveiði-
ferðir/7
w
Olafur Þ. Jónsson
svœfingarlœknir á
stutt eftir í einka-
flugmannsprófið
,,Ég held að það sé
tilviljun að svona
margir læknar læri að
fljúga. Ég hef ekki trú
á þvi að þetta sé nein
sérstök bakteria,”
sagðiÓlafurÞ. Jónsson
svæfingalæknir á
Borgarspitalanum,
þegar við spjölluðum
við hann.
Hann tók sina fyrstu tima
fyrir 12 árum siðan. Eftir það
fór hann i sérnám og þá varð
hann að leggja fliigið á hilluna.
Fyrir nokkru siðan tók hann svo
upp þráðinn aðnýju. Hann hefur
nú lokið bæði sólóprófi og einka-
flugmannsprófi, og á eftir
nokkra tima i það verklega.
„Ég hef haft áhugann fyrir
fluginu i mörg ár, alveg frá þvi
ég var krakki, en ég held ég hafi
aldrei ætlað mér að verða at-
vinnuflugmaður.”
„Ég ætla að láta mér einka-
flugmannsprófið nægja.
Ég geri þetta mér til ánægju
:ogr fróðleiks. Flugnámið er
kannski dýrt á meðan á þvi
stendur, en ætli það kosti meira
en fjórar góðar laxveiðiferðir! ”
Ólafur hefur haft nokkuð af
sjúkraflugi að segja, og á með-
an hann var i læknadeild kom
hann nálægt fluginu þvi þá
starfaði hann sem hlaðmaður
hjá Flugfélagi Islands i tvö
sumur.
„Eg ókvað að
taka þetta
alvarlega og
lauk einkaflug-
mannsprófi!"
— segir Ólafur Jónsson
lœknir sem ó flugvél
ósamt 6 öðrum
,,Fyrir 10-20 árum
siðan greip ég fyrst i
flugvél,” sagði Ólafur
Jónsson læknir, þegar
við ræddum við hann.
Ólafur hefur lækna-
stofu sina i Domus
Medica, en hann er sér-
fræðingur i lyflækning-
um og meltingar-
sjúkdómum. ,,Ég hef
alltaf haft verulegan
áhuga fyrir flugi,”
segir ólafur, semhefur
lokið einkaflugmanns-
prófi, og á ásamt 6 öðr-
um flugvél.
„Fyrir um það bil tveimur og
hálfu ári siðan byrjaði ég fyrir
alvöru að læra að fljúga. Ég
ákvað að taka þetta alvarlega
og lauk sóló-prófinu. Ég settist
siðan á skólabekk i sambandi
við einkaflugmannsprófið og
lauk þvi skömmu siðar.” Núna
hef ég um 170 tima að baki.”
„Jú, ég á i flugvél ásamt 6
öðrum. Henni flýg ég mikið
fyrst og fremst ánægjunnar
vegna. Enda er vélin ekki at-
vinnutæki, öllu heldur leikfang.
Nei, við höfum ekki fundið fyrir
þvi að það væri slæmt að vera
þetta margir um eina vél.”
— Ætlarðu þér að taka at-
vinnuflugpróf?
„Ég veit það ekki. Það gæti þó
verið, en ekki til þess að vinna
við flug.”
— Hver er skýringin á áhuga
lækna fyrir flugi?
„Áhuginn fyrir flugi er
almennur, og það getur verið að
við höfum fyrst ráð á þvi að læra
að fljúga eftir að námi er lokið
og við erum komnir i fullt starf.
Þó veit ég' ekki hvort þetta er
rétta skýringin”.
Ég hef alltaf haft verulegan
áhuga fyrir flugi,” — Ólafur
Jónsson iæknir.