Vísir - 05.12.1975, Blaðsíða 20

Vísir - 05.12.1975, Blaðsíða 20
-*>c pi >tn-r -□□mnn -uol azo- tnm-nD2>! jjcrraui <nnj-* tj-d 2>nu>h 20 Föstudagur 5. desember 1975. VISIR Þaöer grein iH Hvað þvisem segir aö þá? þú sért óskap ' legur nirfill. Ég trúi þvi ekki að nokkur geti sett Lánaðu mér blaðið... ... ég vil lesa þetta sjálfur. \r > Kraftaverkin gerast ennþá! Hann stendur upp! Ég hlýt að hafa haft áhrif á hann! V .Cpf/i1'~y Spáin giidir fyrir iaugardaginn 6. desember. Hrúturinn 21. mars—20. aprfl: Þú ættir að fara út að versla, en gættu þess að stofna ekki til mik- illa skulda. Vinir eða kunningjar kynnu að þurfa hjálpar þinnar með. Reyndu að komast hjá óreglu sem kynni að slita náin bönd. □ Nautift 21. apríl—21. mai: Ekki skjóta á frest verkefnum sem verður að ljúka af hið fyrsta. Það mæðir margt á þér og ábyrgðin eykst. M Tviburarnir 22. mai—21. júni: Venjulegir helgaratburðir gætu orðið leiðigjarnir, reyndu að fitja upp á einhverju nýju. Þú mátt bú- ast við töf á ferðalagi. Trausts er vænst af þér. Krabbinn _________21. júni—23. júlí: Þú skemmtir þér vel, ert daður- gjarn eða stofnar til náinna kynna. Það er liklegt að einhver bregðist trausti þinu. Forðastu að misnota peninga og falla i freistni. Ljónift 24. júlí—23. ágúst: Vinsældir og vinátta glæðast ekki nema þú kyndir undir þvi. Leið- réttu allan misskilning i byrjun og leyfðu öðrum að njóta sin. Láttu ekkert raska ró þinni. M eypé n 24. ágúst—23. sept.: Dagurinn gæti orðið leiðinlegur, reyndu að særa engan eða móðga að tilefnislausu. Þú getur orðið að miklu liði og hjálpað einhverjum úr klipu. Littu i kringum þig. Vogin 24. sept.—23. okt.: Það er ráðlegt að eyða ekki pen- ingum i snyrtivörur og föt, fyrr en þú hefur myndað þér ákveðinn smekk. Vertu þolinmóður við óþekktarormana. Drekinn 24. okt.— 22. nóv.: Það gæti leynst dulin ástæða að baki hróssins, sem þú færð. Sam- ræður geta tekið óheppilega stefnu. Þú ert hindraður I að fara þinar eigin leiðir. K Bogmafturinn 23. nóv.—21. des.: Afstaða þin gagnvart einhverjum er blandin ósamræmi eða sárs- auka. Vertu tillitssamur við sam- starfsfólk þitt sem er viðkvæmt fyrir. Reyndu að forðast nýjar hættur og veldu þér greiðari leið gegnum lifið. & Steingeitin 22. des.—20. jan.: Þú hittir heillandi persónu fyrri hluta dags, en útlitið er ekki eins bjart seinni partinn, hvað varðar fjármálin. Fleira er gull en það sem glóir. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Þér hættir til dagdrauma um ný náin kynni en haltu þér á mott- unni. Forðast að vera þrjóskur, það eru ekki allir á þinu máli. Fiskarnir _______20. febr.—20. mars: Þú verður fyrir áhrifum frá nýj- um vinum. Eitthvað sem aðrir eiga vekur ágirnd þina. Reyndu að vera jákvæður og sjá björtu hliðarnar á tilverunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.