Vísir - 12.12.1975, Page 7
Umsjón: Guðmundur Pétursson
VISIR Föstudagur 12. desember 1975
IRGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í
7
Patti Hearst fylgt dr fangelsinu i réttarsalinn.
Segist hofa
verið þving-
uð til rónsins
Patricia Hearst mun
bera það fyrir rétti að
henni hafi verið ógnað
með byssu til þess að
taka þátt í bankaráninu
sem hún er sökuð um. —
Svo segir að minnsta
kosti lögmaður hennar,
Lee Bailey.
„Málsvörnin er einföld,” sagöi
verjandinn viö fréttamenn. „Ein-
hver otaöi byssu aö höföi mér, og
ég geröi eins og mér var sagt,”
haföi hann eftir skjólstæöingi sin-
um.
Hann aftók með öllu aö vörnin
mundi bera viö geöveilu. „Það
veröur ekki af þvi i þessu máli,”
sagöi Bailey.----En hann bætti
þvi þó við að reyndi saksóknari að
sanna aö Patty hefði af sjálfsdáö-
um tekiö þátt i bankaráninu
mundi vömin reyna að sýna fram
á að hiin heföi verið heilaþvegin
af félögum symbiónesiska frelsis-
hersins.
Þegar réttur var settur i máli
milljóneradótturinnar i' gær i San
Francisco var hún sjálf viðstödd
ogbrœti, þar sem hún sat á saka-
bekknum, til fjölskyldu sinnar i
áheyrendastúkunni.
Munnlegur málflutningur á aö
hefjast 26. janúar.
Þingið felldi gólga-
frumvarpið með
miklum meirihluta
Eftir miklar umræður
og heitar i neðri mál-
stofu breska þingsins i
gær var tillagan um
endurvakningu dauða-
refsingarinnar felld með
361 atkvæði gegn 232.
t fyrra þegar málið kom til
umræöu var þaö fellt meö 369 at-
kvæöum gegn 217, svo aö sjá má
aö þeim þingmönnum f jölgar sem
fylgjandi eru dauöarefsingunni.
En skoðanakannanir hafa leitt i
ljós aö þorri fólks á Bretlandseyj-
um er eindregiö fylgjandi þvi aö
dauöarefsing verði viöurlög við
manndrápum hryöjuverkamanna
irska lýöveldishersins (88%) Aö
vonum hefur fólk harðnað i skapi
viö blóösúthellingarnar, þvi á
Englandi hafa 50 látiö lifiö i 150
sprengingum hryöjuverkamanna
á siðustu þrem árum.
Þaðeru þósmámunir miðað við .
þær þúsundir, sem myrtar hafa
verið á Irlandi undanfarin ár.
Segir að morðingi
Martin Luther King
hafi verið sektar-
lamb FBI...
Bandarískur rithöfund-
ur heldur því fram að
hann hafi komisf yfir
skjöl þess opinbera sem
sýni, að alríkislögreglan
hafi hylmað yfir
sönnunargögn og falsað
önnur við rannsókn
morðsins á dr. Martin
Luther King.
Harold Weisberg rithöfundur
segir að FBI hafi gripið til þess-
ara ráða til þess aö flýta fyrir
dómsniðurstöðu i málinu.
Fullyröir hann að James Earl
Ray sem játaði á sig morðið á
þessum leiðtoga blökkumanna
örlagadaginn 4. april 1968 i
Memphis i Tennessea hafi
ómögulega getað hleypt af
banaskotinu.
„Ray var ekki einu sinni á
staðnum”, sagði Weisberg á
fundi með blaðamönnum i gær.
Þar upplýsti Weisberg að
hann ætlaði að leggja þessi
„nýju gögn” sem hann hafði
komist yfir siðan hann gaf út
íyrir tveim árum bókina
„Framup”. 1 henni hélt hann
þvi fram að Ray hefði verið
haföur fyrir rangri sök.
Weisberg heldur þvi fram að
skjölin sýni að ógjörningur hefði
verið að skjóta Martin Luther
King þaðan sem lögregla og
FBI hélt að skotið hefði komið
frá.
Hann segir að bretum nefðu
verið veittar rangar upplýsing-
ar til þess að þeir framseldu
Ray, en hann hafði flúið til Bret-
lands eftir morðið.
Hann telur að stjórnmála-
ástæður hafi ráðið þvi að allt
kapp var lagt á snögga dóms-
niðurstöðu til þess að stuðnings-
menn blökkumannaleiðtogans
gengju ekki berserksgang.
NOBELSLAUNIN
Þessi siöbúna fréttamynd hefur borist frá afhendingu Nóbels-
verðlaunanna I Osló á miðvikudaginn. Yelena Sakharov, eiginkona
dr. Andrei Sakharovs, sést taka við friöarverðlaununum úr hendi
formanns Nóbelsnefndar Stórþingsins norska, frú Asu Lionæs.
Heyrnar-
laus orð-
inn af skot-
hvellum
Hæstiréttur i London dæmdi
einum helsta byssusér-
fræðingi bresku lögreglunnar
10.000 sterlingspunda skaða-
bætur. Hann er nær heyrnar-
laus orðinn af rannsóknum
sinum á meintum morðvopn-
um .Svo oft hafa skothvellirnir
glumið i' eyrum honum þegar
hann hefur orðið að kanna
hlaup-merkin á kúlunum.
Var komist svo að orði að
munaði ..einu skoti" að John
McCafferty vfirlögregluþjónn
yrði vitaheyrnarlaus.
Yfirlögregluþjónninn lýsti
fyrir réttinum hvernig hann
hefði i starfi sinu skotið
þúsundum skota af skamm-
byssum, rifflum, vélbvssum
og haglabvssum við rann-
sóknir sinar. — Rétturinn leit
svo á aö vinnuveitandinn hefði
ekki veitt sérfræðingnum nóga
vörn fyrir eyrun.
Auðvelda
hjónaskiln-
aði þýskra
Vestur-þýska þingið hefur
samþykkt ný lög sem leyfa
hjónaskilnaö eftir eins árs að-
skilnað ef samþykki beggja
liggur fyrir.
Eftir stendur þó óbreytt i
eldri lögum að hjónaband er
því aöeins álitið misheppnað
þegar einungis annar aðilinn
krefst skilnaðar að um
sambúð hafi ekki verið að
ræða I þrjú ár.
Afnumin er i nýju lögunum
sú leit að „sök” sem hingað til
hefur veriö forsenda hjóna-
skilnaða i Þýskalandi. Sjónar-
mið Rauðsokka marka einnig
nýju lögin hvað þvi viðkemur
að felld er niður fyrri
skilgreining laganna á hlut-
verki eiginkonunnar sem var
fyrst og fremst umönnum
heimilis.
Þiggja matinn
Sprengjuvargar IRA, sem
innikróaöir eru I Ibúðinni I
London, hafa nú látiö af
þrjósku sinni og þiggja aftur
næringu af lögreglunni.
A myndinni hér sést lög-
reglumaöur láta matinn siga I
körfu niður að glugga Ibúðar-
innar, þar sem hryöjuverka-
mennirnir hafa eldri hjón á
valdi slnu.