Vísir


Vísir - 12.12.1975, Qupperneq 15

Vísir - 12.12.1975, Qupperneq 15
VISIR Föstudagur 12. desember 1975. 15 Umsjón: Þrúður G. Haraldsdóttir - Sími 86611 Nýtt verk eftir Pál Pampichler Pálsson Kammersveit Reykjavikur heldur 2. tdnleika sina á vetrin- um i sal Menntaskólans við Hamrahlið, sunnudaginn 14 des. kl. 16. Frumflutt verður nýtt verk, sem Páll Pampichler Pálsson hefur samið fyrir Kammer- sveitina og tileinkað henni. Tón- verkið nefnist „Helguleikur” og gefur höfundurinn þá skýringu'á nafninu, að Helga Ingólfsdóttir, semballeikari, sem er einn fé- lagi Kammersveitarinnar, hafi verið einn helsti hvetjandi þess að hann samdi verkið. Helga vildigjarnanleika ný verk á sitt foma hljóðfæri. En ennfremur megi lika mislesa nafnið sem „Helgileik”, þar sem verkið hafi þegar i upphafi verið hugs- að til flutnings á aðventu og lýk- ur verkinu með kórlagi við jóla- ljóð Þorsteins Valdemarssonar, „Jólaljós”. „Helsta leiðarljós mitt við samningu „Helgu- leiks”, segir Páll, „var að gefa flytjendum kost á að músisera af lífi og sál. Þannig hefst t.d. vérkið á kafla, þar sem hljóð- færaleikararnir spila eins og fyrir sjálfa sig”. Auk Kammersveitar Reykja- vikur eru flytjendur i „Helgu- leik” Kór Menntaskölans við Hamrahlið, en stjórnandi hans er Þorgerður Ingólfsdóttir og Karlakór Reykjavikur, sem er undir stjóm Páls P. Páissonar. önnur tónverk á efnisskránni em öll frá barokktimanum og mun ekkert þeirra hafa verið flutt hérlendis áður. Jólasýning Þórdísar Tryggvadóttur ó Mokka „Faðir minn sagði mér þjóð- sögur á kvöldin og persónur sagnanna urðu ljóslifandi i huga mér.Má vera að þaö sé að koma fram fyrst núna,” sagði Þórdis Tryggvadóttir þegar við spjöll- uðum við hana i tilefni sýningar hennar á Mokka. Þórdis sýnir 18 oliupastelmyndir og sækir efni- við sinn að mestu i þjóösögur Þórdis er alin upp við mynd- list frá blautu barnsbeini, for- eldrar hennar voru listmálarar. Hún stundaði nám við Mynd- lista- og handiðaskólann og siöan framhaldsnám i Dan- mörku og Bandarikjunum. Fyrr á árum myndskreytti Þórdis barnabækur og teiknaði jóla- kort. Jólasýning Þórdisar er 6. einkasýning hennar og hefur hún einnig tekið þátt i samsýn- ingum. Listakonan við myndina af Bakkabræðrum. SÍÐARI BÓKMENNTAKYNNING NORRÆNA HÚSSINS: Kynna finnskar og sœnskar bœkur A sunnudaginn kemur veröur siðari kynning I Norræna húsinu á atbyglisverðum bókum af bókamarkaði Norðurianda á ár- inu 1975. I þetta sinn verða finnskar og sænskar bækur á dagskrá, og er kynningin i umsjá finnska og sænska sendikennarans, Etelku Tamminen og Sigrúnar Hall- bedt. og bókasafns hússins. Gestur bókakynningarinnar veröur sænski rithöfundurinn Per Gunnar Evander, og les hann úr verkum sinum. 1 fréttatilkynningu segir m.a. um gest kynningarinnar. „Per Gunnar Evander er fæddur 1933. Hann er fil. mag. frá Uppsölum og kenndi m.a. eðlisfræði, ensku, stærðfræði og sænsku. Siðar vann hann sem leiklistarráðunautur við sænska útvarpiö, en er nú starfsmaður sænska sjónvarpsins. Per Gunnar Evander hefur skrifað margar bækur, bæði skáldsögur og leikrit. Leikritin hafa bæði verið leikin i útvarpi og leik- sviði, og s.l. ár og i ár hafa leik- hús i Stokkhólmi og i Malmö og Gautaborg sýnt leikrit hans. Still Evanders er sérstæður og áhrifamikill. Á persónulegan, hlutlausan hátt greinir hann frá gerðum söguhetja sinna og örlögum þeirra lfkt og hann væri að gefa skýrslu. Þessi frá- sagnarmáti Evanders er sann- færandi og kemur lesandanum til að lita.á söguhetjurnar sem raunverulegar og lifandi. Auk þess fær Evander lesandann til að brosa i barm sér, er hann lýs- ir skoplegum og jafnvel smá- vægilegum atvikum á þennan nákvæma og skýrslugerðarlega máta.” Kynningin hefst kl. 4. ÁGÚST PETERSEN HELDUR ENN SÝNINGU - NÚÁTRÖÐ A Tröö stendur yfir sýning á verkum Agústs Petersen, þar sýnir hann 15 olfu, pastel- og vatnsiitamyndir. Agúst var nteð einkasýningu i Norræna húsinu í haust og tók einnig þátt i haustsýningu FIM. Hefur hann hlotið mjög góða dóma gagnrýnenda. Eyjólfur Einarsson sýnir Eyjólfur Einarsson heldur sýningu á 20 vatnsiitamyndum f Inn- römmun Guðmundar aö Bergstaöastræti 15 Hefur sýningu Eyjólfs verið tekið vel og fjöldi mynda selst. Eitthvað fyrir þig? Þessi mynd hlaut 1. verðlaun i gerð veggspjalda til að nota i herferð gegn ölvun við akstur. Ætlar þú að njóta hclgarinnar heima við? Ef svo er höfum við verkefni sent öll fjölskyldan getur spreytt sig á og um leið stuðlað að eigin öryggi f um- ferðinni. Umferðarráð efnir til sam- keppni i gerð veggspjalda, sem nota á i alþjóðaherferð fyrir auknu öryggi barna i umferð- inni. Veggspjaldið skal skir- skota til ökumanna i þéttbýli og vera ábending til þeirra að gæta Itrustu varkárni gagnvart börn- um innan 10 ára aldurs. öllum er heimil þátttaka i keppninni og til þess að hug- mynd veggspjaldsins hafi al- þjóðlegt gildi þarf hún að vera vel skiljanleg af teikningunni einni saman, og á veggspjaldinu má ekki vera texti. Af myndunum sem fylgja sjá- ið þið að hver sem er getur tekiö þátt i keppninni og leyft sköpun- argáfunni að njóta sin. Þetta er lika gott tækifæri til að leyfa börnunum að eiga sinn þátt i þvi að auka eigið öryggi. Einnig er til veglegra verðlauna að vinna, þvi að fyrstu verðlaun eru u.þ.b. 555 þúsund kr. 1 keppninni hér verða veitt ein verðlaun kr. 140.000, auk þess fá þrjár tillögur viðurkenningu. Ef sá og hinn sami fengi 1. verðlaun hér og jafnframt 1. verðlaun i alþjóðlegu keppninni fengi hann sem svarar 700.000.00 kr. alls. Tillögum ber að skiia til skrif- stofu Umferðarráðs fyrir 15. des. 1975. Sérhver tillaga verður að vera nafnlaus. Á bakhlið til- lögunnar limist venjulegt lokað hvitt umslag sem i eru full- komnar upplýsingar um nafn, heimilisfang og fæðingardag. Samkeppnin er opin áhuga- mönnum og atvinnumönnum. Dómnefndin lýkur störfum fyrir 31. desember 1975 og verða úr- slit birt við opnun sýningar á öllum tillögum i byrjun janúar 1976. önnur sainkeppnin var uni gerð veggspjalda til að nota i baráttunni fyrir aukinni notkun bilbelta. Þar varð þessi inynd hlut- skörpust. HÆ kraUkar Sporaðu ekki spurningarnar þínar spurðu ALVIS svaranna við þeim. Honn kann svar við tvisvar sinnum tveim og tölum llóknum - mínusum og plúsum. Við margföldun og deilingu hann drjúgur er. vertu duglegur að spyrja.. ALVIS svaror þér. ALVIS SVARAR EKKI í TÖLUM, HELDUR JÁ EÐA NEI r-Avr GRÆNTAUGA þó er svarið rétl SPURNAR- HNAPPUR TÖLUSTAFIR' HREINSI- ___ HNAPPUR RAUTT AUGA þó er svarið rangl KVEIKT/SLÖKKT SAMASEM -«f DEILING MARGFÖLDUN FRÁDRÁTTUR - - SAMLAGNING KOMMA ALVÍS er ítallegum giafakossa og með ALVIS í kassanum er HlIfÐARPOKI, LÍM-MERKI og MYNDSKREYTT DÆMABÓK UGLAN ALVIS - ALLRA BARNA VINUR UOVIIC SKRIFSTOFUTAKNI hf. ■ ^V/T Wl Tryggvagölu - Bok 454 - Sími 28511

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.