Vísir - 12.12.1975, Síða 24
NATO heyrir aftur frá
íslendingum í dag
— Einar Ágústsson rœðir á ný ásiglingu dráttarbátanna —
VÍSIR
Föstudagur 12. desember 1975.
ÞÓR út aftur
eftir bráða-
birgðaviðgerð
Varðskipin Þór og Týr voru
enn i Loðmundarfirði i morgun
og var unnið að bráðabirgðavið-
gerð á Þór. Þótt skemmdirnar
hafi verið töluverðar urðu þær
mest á þyrlupalli skipsins. Á
skrokknum urðu ekki teljandi
skemmdir og er skipið því sjó-
hæft eftir sem áður.
Það iná þvi búast við að það
fari aftur til gæslustarfa um íeið
og bráðabirgðaviðgerð er lokið.
Skipið er klárt og Ilelgi
llallvarðsson, skipherra, og
áhöfn hans áreiðanlega til að
,,ræða” málið frekar við
dráttarbátana. —ÓT.
Full Air
Viking vél
til Kanarí
— Það fer sneisafull vél
frá okkur tí 1 Kanarieyja á
morgun, sagði Guðni Þórð-
arson, forstjóri Sunnu og Air
Viking, við VIsi i morgun. —
Aðsóknin var reyndar svo
mikil að við urðum að senda
18 farþega með Flugleiðum
til London. Við höfðum ekki
pláss fyrir þá, en vildum
leysa vanda þeirra. Það er
lika gott að Flugleiðir njóta
góðs af.
Sunna á ekki i neinum
erfiðleikum. Það standa ekki
á henni neinar vanskila-
skuldir og viðskiptavinir
okkar erlendishafa ekki tek-
ið mark á áróðursherferð-
inni — enda sumir átt við
okkur viðskipti i áratugi.
— ÓT.
GEKK A
VÆNGJA-
HURÐ OG
SKARST
Á FÓTUM
Maður skarst á fótum er hann
gekk á vængjahurð i nótt. Hann
var fluttur á slysadeild.
Atburðurinn átti sér stað á
Hótel Sögu. Maðurinn var að
koma úr fatahengi og ætlaði sér
inn á Mimisbar.
Vængjahurð liggur að barnum
og gekk maðurinn á hurðina
með þeim afleiðingum að glerið
brotnaði og hann skarst á fót-
um. — EA 1
„Ég mun láta i mér
heyra nú á eftir, þegar
gengið verður frá yfir-
lýsingu fundarins”,
sagði Einar Ágústsson,
utanrikisráðherra, i
viðtali við Visi í
morgun. — Ráðherr-
ann kvaðst myndu taka
upp að nýju ásiglingu
bresku dráttarbátanna
á Þór. Hann hefði nú
undir höndum full-
komna skýrslu um
málið, og myndi krefj-
ast þess, að málsins
yrði getið i yfirlýsingu
fundarins.
Utanrikisráðherra hélt blaða-
mannafund i gær, og var hann
óvenju-fjölmennur. Um eitt
hundrað blaðamenn sátu fund-
inn, og báru þeir fram mikinn
fjölda spurninga. Utanrikisráð-
herra kvað það álit sitt, að þessi
fundur hefði haft veruleg áhrif
i þá átt að skýra betur málstað
islendinga.
BUast má við, að Einar
Ágústsson verði harðorður i
garð breta, þegar hann tekur til
máls á fundinum i dag, einkum
þegar þess er gætt, að i gær
hafði hann takmarkaðar upp-
lýsingar undir höndum um
átökin i mynni Seyðisfjarðar.
Utanri'kisráðherrafundi
NATO átti að ljúka nú skömmu
eftir hádegi.
— AG
RAFMAGNSVEITUR RIKISINS
FLUTTAR TIL AUSTFJARÐA?
Tillögur um flutning ríkisstofnana af höfuðborgarsvœði
Heildarflutningur 25 stofnana,
deildaflutningur sem snertir 12
stofnanir, stofnun útibúa 36
stofnana og efling.. útibúa 11
stofnana eru tillögur Stofnana-
nefndar. Þessi nefnd var sett á
laggirnar vorið 1972 og var
tilgangur hennar að kanna
staðarval rikisstofnana og athuga.
hverjar breytingar kæmu helst til
greina i þvi efni.
Nefndin hefur nú lagt fram álit
sitt og skiptist það i þrjá megin-
hluta. t fyrsta hluta er fjallað um
þróun íslenska stjórnkerfisins.
Annar hluti fjallar um stofnana-
flutning á almennan hátt. Þriðji
hluti inniheldur svo áðurnefndar
tillögur. Auk þessara aðal-
tillagna leggur nefndin fram
ýmsar aðrar tillögur.
Dæmi um tillögur nefndarinnar
má nefna að hún leggur til að átta
lándbúnaðarstofnanir verði flutt-
ar til Borgarfjarðarsvæðisins,
m.a. Búnaðarfélag Islands, Raf-
magnseitur rikisins hafi
framtiðaraðsetur á Austfjarða-
•svæði og Kennaraháskóli verði i
Eyjafirði.
-VS.
Fleiri fyrirtœki en Air Viking mega
búast við aðgerðum
Air Viking er alls ekki eina
fyrirtækið sein er undir smá-
sjánni vegna skulda við Alþýðu-
bankann. Ýmsir aðrir stórir
lánþiggjendur eru nú í mjög ná-
kvæmri rannsókn —og svo kann
að fara að gripið verði til ein-
hvers konar aðgerða gegn þeim
fljótlega.
— Það er verið að kanna mjög
nákvæmlega hag og stöðu nokk-
urra fyrirtækja, sagði Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, i við-
tali við Visi.
— Það er könnuð tryggingaleg
staða þeirra gagnvart Alþýðu-
bankanum og heildarhagur
þeirra. Þar er að finna vanda-
mál sem kunna að leiða til inn-
heimtuaðgerða eða annarra aö-
gerða af hálfu bankans fijót-
lega.
— Þetta er mikið og flókið
mál, en þvi verður hraðað eins
og unnt er. Það er ekki verið að
fara neina herferð gegn Air Vik-
ing. Þareru stærstar fjárhæðir i
hættu að mati bankans, en önn-
ur fyrirtæki eru lika i rannsókn.
— ÓT.
„Flugmenn geta ekki enda-
laust gert kraftaverk..."
segir flugmálastjóri sem hyggst loka
flugvöllum úti á landi ef ekki fœst fé
fyrir öryggisbúnaði
Farþegar i innanlandsflugi á
tslandi eru I llfshættu vegna al-
gers skorts á hverskonar
öryggisútbúnaði við flugvelli úti
á landsbyggðinni. Rikisvaldið
veitir ekki eyri til flugmála
innanlands og ef ekki verður bót
á þvf hyggst flugmálastjóri loka
flugvöllum úti á landi.
— Við höfum verið mjög lán-
samir að ekki skuli hafa orðið
slys á reglubundnu áætlunar-
flugi, sagði Agnar Kofoed-Han-
sen, flugmlastjóri, á fundi með
fréttamönnum i gær.
— Það þýðir ekkert að benda á
að hingað til hafi verið flogið
slysalaust. Þar er eingöngu
fyrir að þakka islenskum flug-
mönnum sem eru frábærlega
hæfir. En það er ekki hægt að
ætlast til að þeir geri endalaust
kraftaverk.
— Það er mikil ábyrgð að leyfa
flug á velli úti á landi, og ég er
sekur i þvi efni. Hættan eykst
lika með tiðni flugferða og þvi
að farið er að fljúga á fleiri
staði. Einhverntima gefst
maður hreinlega upp og nú má
segja að mælirinn sé fullur.
Ekkert fé til flugmála
A fjárlögum árið 1975 voru
veittar 202 millj. króna til fram-
kvæmda i flugmálum. Þar að
auki fékkst heimild til að taka
tuttugu milljón króna lán til að
malbika hluta af vellinum á
Isafirði.
Þetta var siðan skorið niður i
182 milljónir og voru mal-
bikunarpeningarnir felldir inn i
þá upphæð. Fyrir árið 1976 bað
Flugmálastjórnin um 979
milljónir til brýnustu fram-
kvæmda en fékk 252. Fé það
sem rikið græðir á ýmsum lið-
um flugmála nemur svipaðri
upphæð. þannig að i rauninni
veitir það ekkert fé til þessara
mála.
Vonlaust að halda
svona áfram
— Það er alveg þýðingarlaust
að balda svona áfram, sagði
flugmálastjóri. Þetta er að
bjóða hættunni heim. Ef ekki
fæst fé til að gera einhverjar
öryggisráðstafanir er ekki um
annað að ræða en loka flugvöll-
um úti á landi. -ÓT
Agnar Koefod Hansen, flugmálastjóri, á fundi með blaðamönnum i
gær.