Vísir - 15.12.1975, Blaðsíða 2
2
IVIánudagur 15. desember 1975. VISIR
Ársæll Þorsteinsson, nemi: —Nei,
það er ekki hægt að segja það. Ég
hef bara tvisvar farið á hestbak. I
bæði skiptin þótti mér það mjög
gaman.
Viðar Steinarsson, nerni: — Já.
Ég er úr sveit og fer oft á hestbak.
Sjálfur á ég hest, en hann er ekki
kominn á tamningaaldur.
Gyða Haraldsdóttir, nemi:— Nei,
ég hef ekki oft farið á hestbak. Og
ekki nýlega. Það eru komin nærri
þvi tvö ár siðan ég fór siðast á
hestbak.
Snjólaug Steinarsdóttir, nemi: —
Nei. Ég fer þó stöku sinnum á
hestbak. Það er komin ein þrjú ár
siðan ég fór á hestbak siðast. Þá
datt ég af baki og handleggsbraut
mig.
Jóhannes Jóhannesson, nemi: —
Nei, ég hef sjaldan farið á hest-
bak. Siðast i sumar sem leið.
Reyndar er það ekkert til þess að
segja frá þvi ég datt af baki.
Ari Jónsson bifvélavirki: — Það
má eiginlega segja að ég fari
aldrei á hestbak. Að visu hef ég
farið á hestbak, en aðeins töku
sinnum. Mér finnst þó gaman að
fara i útreiðartúra i góðu veðri.
JOLAGCTRAUNIN (9)
Listræn tilþrif Arnaldar eru með af-
brigðum mikil i dag, i þessari næstsiðustu
getraun.
Jólagetrauninni lýkur sem sé á morgun.
Þá hafa Steini, Gunna og fjölskylda
heimsótt i allt tiu þjóðiönd, og smakkað á
vinsæium jólaréttum. Vonandi hafa allir
munað eftir að geyma getraunaseðlana.
Verðlaunin biða nú cins þeirra skarp-
skyggnu sem iendir i hópi þeirra sem hafa
aliar úrlausnir réttar.
Verðlaunin eru glæsilegt Nordmende-
hljómtæki frá Radióbúðinni að verðmæti
kr. 133 þúsund. Tækið er sambyggt segul-
band, plötuspiiari, útVarp og magnari.
Þvi fyigja tveir hátalarar og tveir hljóð-
nemar.
ENSALADA DE
(hvitkálssalad).
REPOLLO
Ca. 300 g finsaxað hvitkál, 1 feitur hvit-
laukur, 5 matsk. saladolia, 2 til 2 1/2
matsk. kryddedik, salt, pipar, 2 egg, 2 1/2
matsk. rjómi, 1 matsk. hökkuð steinselja.
Saxið hvitkálið vel. Smyrjið saladskálina
með hvitlauk sem skorinn er i miðju.
Saladolia, edik, salt, pipar, og saman-
þeytt egg og rjómi blandist i pott, sem
settur er i vatnsbað. Þeytið i sifellu með-
an blandan hitnar þar til hún er þykk.
Hellið henni þá i skál og kælið. Þeytið i
henni við og við. Þegar hún hefur kólnað
blandist hún við hvitkálið, og hökkuð
steinseljan dreifist yfir. Saladið fer vel
með þungum kjötréttum.
Nafnið á jólaréttinum
hljómar ekki slorlega —
Ensalada de repollo — vonandi
smakkast rétturinn jafn vel og
nafnið hljómar. Þá er það ykk-
ar, lesendur góðir, að f inna út í
hvaða landi litla fjölskyldan
fær þennan rétt.
□ JÚGÓSLAVÍU
□ KANADA
□ SPÁNI
Krossið við rétt svar. Geymið
seðilinn þar til getrauninni er
lokið. Safnið þá seðlunum
saman, og sendið ásamt nafni
til Vísis. Dregið verður úr rétt-
um úrlausnum fyrir jól.
Spillingakerfið
Halldór Vigfússon skrifar:
Hversu lengi á að viðhalda
þeirri reginvitleysu sem kallast
lifeyrissjóðir?
Fyrir hverja er verið að spara
i þjóðfélaginu? Svo mikið er
vist, að ekki eru það
launþegarnir, þvi þeir fá aldrei
helming af þvi fé sem tekið er af
launum þeirra i þessa sjóði.
Spara fyrir þjóöfélagið! !!
Þvilik blekking. Jú, það eru
bankastjórar þessa lands sem
ráða ferðinni i lifeyrissjóðum
landsmanna. Fyrir hverja?
Það er verið að fárast yfir að
sjóðir þessir brenni upp i
verðbólgunni. Til hvers er þá
verið að viðhalda þeim? Af
hverju krefst ekki verkalýðsfor-
ystan þess, að þessir sjóðir
verði lagðir niður? eða þá sjálfir
félagarnir I verkalýðshreyfing-
unni?
Til hvers er verið að viðhalda
tvöföldu kerfi ellilifeyrisbóta?
Það er almannatrygginga-
kerfinu me'ð tekjutryggingu
sem er skert er nemur greiðsl-
um úr lifeyrissjóðum félaga?
Löggjafinn hýrudregur
minnimáttar.
Svo er verið að halda
ráðstefnur til bjargar spillingu
þeirri sem viðgengst i lifeyris-
sjóðakerfinu. Krafa dagsins er
burt með spillingakerfið, lif-
eyrissjóðina.
Það hefur margur verið hýru-
dreginn um meiri og minni fjár-
hæðir i sjóðakerfið. Hvenær fá
til dæmis sparimerkjaeigendur
það sem löggjafinn hefur af
þeim tekið?
Var einhver að tala um hring-
leikahús þjóöarinnar? (Alþingi)
Svo eru Alþingismennirnir að
undrast yfir áhrifaleysi, já og
þykjast ekki vita um ástæðuna.
Er það lýðræði okkar þjóðar
að löggjafinn hýrudragi þá sem
mega sin minnst? Þetta er ekki
spurning um réttlæti löggjafans
og þjóðarinnar. Heldur
spillingu.
Var einhver að hlæja? Þá
ætti sá hinn sami að vara sig,
þvi þá er oft stutt i tárin.
AFENGISLAUS JOL
OG ÁRAMÓT!
3082-4342 skrifar:
Um tima var ég háður Bakk-
usi og hans vélabrögðum. En ég
átti eftir að frelsast og kynnast
Kristi og hans náðarkrafti.
Hvilik upplifun að koma úr
myrkrinu og inn i ljósið. Þá sá
ég fyrst hvað Bakkus var I raun
og veru, ekkert annað en verk-
færi Satans. Svo geta menn
dýrkað þetta. Og benda á hve
rikið missi nú af miklum fjár-
munum ef Afengisversluninni
yrði lokað.
Ég vil halda þvi fram, að ég
tel það mjög niðurlægjandi fyrir
islenska rikið að afla þess fjár
sem raun ber vitni, með þvi að
selja mönnum þetta eiturlyf.
Einn er sá maður sem hvað
eftir annað hefur bent á þetta
vandamál og ekki hikað við að
láta skoðanir sinar i ljós þótt
hann eigi marga óvildarmenn.
Það er séra Arelius Nielsson.
Ég þakka þér, vinur, fyrir þin
bréf, og haltu ótrauður áfram..
Takmarkið er að sigra Bakkus,
einn helsta óvin islensku þjóðar-
innar.
Höldum áfengislaus jól og
áramót.