Vísir - 15.12.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 15.12.1975, Blaðsíða 4
4 Mánudagur 15. desember 1975. vism Bækurnar frá Almenna bókafélaginu Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi III. bindi Með þessu bindi er lokið merku rit- gerðasafni, sem ugglaust verður mönnum því dýrmætara, sem lengra líður, bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágætasta son íslands á þessari öld. Verð m/sölusk. kr. 3.360.- Öll þrjú bindin m/sölusk. kr. 5.520.- ratória Guðmundur Daníelsson: Óratóría 74 Saga úr sjúkrahúsi með skopteikning- um Halldórs Péturssonar. Höfundur bregður skoplegu Ijósi á harðvítugt og tvísýnt stríð upp á líf og dauða við menn og máttarvöld, og hvernig honum tekst að lifa af heila þjóðhátíð tvennar kosningar og tvo holskurði á einu og sama sumrinu. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- Guðmundur Hagalín: Segið nú amen séra Pétur Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga um hvernig mannleg náttúra, fjár- hyggjaog kynkvöt búa mönnum örlög. Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega og geðríka Herborg Bjarnadóttir er einhver eftirminnilegasta kvenlýsing Hagalíns. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- krislmaun (íuðniundsson Stjörnuskipið (»cintfcn>asajia Kristmann Guðmundsson:: Stjörnuskipið GEIMFERDASAGA Vísindaskáldskapur hefur rutt sér mjög til rúms á bókmenntasviðinu og hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja saga er spennandi og ákaflega fjör- lega rituð um lífið á hinum ólíkustu stöðum í himingeimnum. Verð m/sölusk. kr. 2.400.- Jóhanna Þráinsdóttir Utrás Jóhanna Þrdinsdóttir: Útrós Útrás er fyrsta frumsamda bók höf undar, en áður hef ur hún birt smá- sögur í tímaritum. Skáldsagan útrás er raunsæ og hispurslaus lýsing á lífi ungrar ekkju, sem missir mann sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út í hringiðu skemmtanalffsins og kemst þá í kynni við ýmsar dekkri hliðar lífs- ins, fyrst hér heima og síðan í Banda- ríkjunum. Sagan er gáskafull og bráðskemmti- legen um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu og djörfum bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.- Jorge Luis Borges: Suðrið Smásagnasafn, valið og þýtt hefur Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru sprottnar úr suðuramerískum jarð- vegi en eiga erindi við fólk hvar í heiminum sem er. Borges er í hópi virtustu skájda sem nú eru uppi og mikill aðdáandi forníslenzkra bók- mennta. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Dusko Popov: Njósnari nasista í þjónustu breta Bókin lýsir einstæðum njósnaferli höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær- asta njósnara sinn en í reynd njósnaði hann fyrir breta og lifði í stöðugri lífs- hættu. Hann varaði við árásinni á Pearl Harbor löngu áður en hún var gerð en FBI trúði honum ekki. Popov var mikill gleðimaður og fyllyrt er, að hann sé fyrirmyndin af James Bond. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- Michael Mooney: Hindenburgslysið Hindenburgloftfarið var tákri um mátt og megin nasismans — þar til sprengingin mikla varð 6. maí 1937 við Lakehurst í Bandaríkjunum og Hindenburg brann til ösku og 36 manns fórust í augsýn hjálparvana áhorf- enda. Hvað gerðist? Var það skemmdar- verk. Þessum spurningum og mörgum fleiri svarar þessi spennandi bók. Verð m/sölusk. kr. 2.280.- MENNOG ZASSENHAUS' Hiltgunt Zassenhaus: Menn og múrar Þýðandi Tómas Guðmundsson. Heillandi frásögn um fórnfýsi og hetjulund ungrar stúlku í síðustu heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill fanganna og hér rekur hún minningar sínar frá þessum örlagaríku árum, sem hverjum lesanda hljóta að verða ógleymanlegar. Verð m/sölusk. kr. 2.640.- ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18 — Bolholti 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.