Vísir - 15.12.1975, Blaðsíða 11
Ovœnt tap Celtic!
— Tapaði fyrir Aberdeen á heimaveili
2:0, en heldur samt forystunni
„Þetta var einn af þessum
leikjum, þar sem næstum allt
heppnast hjá ööru liðinu — en
ekkert hjá hinu,” sagöi Jó-
hannes Eövaldsson þegar viö
höföum samband viö hann í
morgun. Celtic tapaöi nokkuð
övænt á laugardaginn fyrir
Aberdeen á heimavelli, en
heldur samt forystunni í
efstu-deildinni á bestu marka-
hlutfalli.
,,Um siðustu helgi gerði Aber-
deen sér litið fyrir og vann
Rangers hér i Glasgow,” sagði
Jóhannes og eftir þann leik
sagði nýi framkvæmdastjórinn
hjá Aberdeen, Ali McClaud:
„Fyrst okkur tókst aö vinna
Rangers, þá ætti okkur að tak-
ast að vinna Celtic lika”. Þetta
stóðst hjá honum, en mikil var
heppnl Aberdeen hérna á Park-
head á laugardaginn. Við bein-
linis óðum i marktækifærum,
sérstaklega i siðari hálfleik, en i
markið vildi boltinn ekki. Ég
átti t.d. „þrumu skalla” á
markið af stuttu færi sem mark-
verði Aberdeen tókst á óskiljan-
legan hátt að verja — hann hélt
þó ekki boltanum sem riillaði
eftir marklinunni og mér er
næstum enn óskiljanlegt
hvemig Paul Wilson tókst ekki
að pota honum I markið.
Þeir skoruðu bæði sin mörk i
fyrri hálfleik. Völlurinn var
gaddfreðinn og mjög erfitt að
fóta sig á honum.'Það kom
fyrirgjöf fyrir markið sem Pet-
er Latchford i markinu mistókst
að handsama — rann til og náði
ekki til boltans og Jarvis skall-
aði inn. Stuttu siðar átti ég send-
ingu á Latchford, hann rann
aftur til, en Danny McGrain
tókst að ná til boltans, en um
leið og hann ætlaði að spyrna frá
rann hann lika til og boltinn
hrökk til Graham sem skoraði
af stuttu færi. Við sóttum svo
látlaus i siðari hálfleik, en inn
vildi boltinn ekki hjá okkur.
Úrslit leikjanna á laugar-
daginn urðu þessi:
Celtic—Aberdeen 0:2
Dundee Utd.—Hearts 0:1
Hibs—Motherwell 1:0
ers—Ayr 3:0
St. Johnstone—Dundee 1:3
Rangers átti ekki i erfiðleik-
um með Ayr, Jardine skoraði
fljótlega úr vitaspyrnu og síðan
komu mörk frá Henderson og
McKean.
Motherwell keypti i vikunni
nýjan leikmann, Peter
Marinello frá Portsmouth.
Marinello lék áður með Hibs og
Arsenal, en honum tókst ekki
sem best upp gegn sinum gömlu
félögum, enda Hibs liðið erfitt
heim að sækja. Pat Stanton
skoraði sigurmark Hibs.
Callaghan skoraði mark Hearts
gegn Dundee Utd. og Gordon
Wallace skoraði öll mörk
Dundee gegn St. Johnstone”,
sagði Jóhannes.
Staðan f Skotlandi er nú þessi:
Celtíc 16 9 3 4 31:19 21
Hibernian 16 8 5 3 25:18 21
Motherwell 16 7 6 3 29:21 20
Rangers 16 8 3 5 26:16 19
Hearts 16 6 6 4 19:19 18
Dundee 16 6 4 6 26:30 16
Aberdeen 16 6 3 7 21:22 15
Ayr 16 6 3 7 22:28 15
Dundee Utd. 16 4 3 9 20:26 11
St. Johnstone 16 2 0 14 18:38 4
Jóhannes sagði ennfremur að
um næstu helgi ættu þeir hjá
Celtic erfiðan leik fyrir höndum,
þá lékju þeir gegn Hibs á úti-
velli. Ayr léki gegn Hearts,
Dundee gegn Dundee Utd,
Rangers gegn Motherwell og St.
Johnstone gegn Aberdeen.
— BB
,,Ef okkur heföi tekist aö skora eitt mark, heföi ekki þurft aö
spyrja að leikslokum,” sagöi Jóhannes Eðvaldsson um leik
Celtic og Aberdeen á laugardaginn. „Við áttum leikinn, en inn
vildi boltinn ekki.”
Standard
og
Charleroi
töpuðu
stórt!
Þaö skiptast á skin og skúrir
hjá atvinnumönnunum okkar i
knattspyrnu eins og öörum. t sfö-
ustu viku stóöu þeir Asgeir Sigur-
vinsson og Jóhannes Eövaldsson i
eldlinunni meö liöum sinum og
gekk stórvel, en á laugardaginn
gekk allt á móti liöum þeirra og
einnig liöi Guögeirs Leifssonar I
Belgiu.
Að visu var Guðgeir ekki meö
Charleroi i leiknum á laugardag-
inn, en þá tapaði liðið á útivelli
fyrir Lokeren 4:0. Hefur hann átt
við smámeiðsli að striða, og einn-
ig er einum of margt af útlendum
leikmönnum i liðinu.
Asgeir lék aftur á móti með
Standard Liege við efsta liöið i
deildinni — Brugeois — á útivelli,
en þeim leik tapaöi Standard 3:0
eftir að staðan I hálfleik hafði
verið 0:0.
Standard er nú i 7. til 8. sæti i 1.
deildinni i Belgiu meö 19 stig — 6
stigum á eftir Brugeois — en
Charleroi er i neðsta sæti i deild-
inni ásamt Berchem meö 8 stig.
Búnir að velja
Olympíuliðið
Kanadamenn hafa nú vaiiö
Olympiuliö sitt sem mun keppa á
sumarieikunum I Kanada næsta
sumar og verða keppendurnir 380
talsins.
Þetta er mesti fjöldi keppenda
sem kanadamenn hafa sent á
Olympiuleikana frá upphafi.
HVAÐ ER BETRA I
HALENDIÐ HEILLAR
SAGAN AF
Dúdúdú
Loftur Guómundsson hefur skróó
œvintýralegar frósagnir
11 þekktra Islendinga.
Þeir voru brautryójendur sem
örœfabílstjórar og opnuóu,
öórum fremur, fyrir almenningi
hina stórkostlegu hólendisparadís.
Fjöldi mynda prýóa bókina.
Hin gamansama bók ef tir
Örn Snorrason heitir
Saganaf Dúdúdú.
Bókina myndskreytir
Halldór Pétursson.
BOKAUTGAFA
ÞÓRHALLS BJARNARSONAR